Fréttablaðið - 13.08.2022, Qupperneq 88
Mér leið svolítið á þess-
ari hringferð eins og
hundi í bíl af því ég var
bara einhvern veginn
með hausinn út um
gluggann að horfa. Þá
fékk ég þessa hug-
mynd að sýningunni.
Fritz Hendrik IV
Í sýningunni Regnbogi
hunds setur myndlistar-
maðurinn Fritz Hendrik IV
áhorfendur í spor hunds. Öll
verkin eru unnin út frá lita- og
lyktarskynjun hunda og lista-
maðurinn býður ferfætlinga
velkomna.
tsh@frettabladid.is
Myndlistamaðurinn Fritz Hendrik
IV opnar einkasýninguna Regn-
bogi hunds í Gallerí Þulu á Hjarta-
torgi í dag. Sýningin er unnin út
frá sjónarhorni hunds sem fylgist
með heiminum úr bíl og tekur lita-
palletta verkanna, uppröðun og
viðfangsefni mið af skynjun besta
vinar mannsins.
„Ég var í bílferð að ferðast um
landið síðasta sumar. Í mínu sam-
bandi þá keyrir kærastan mín alltaf
því hún er svo mikill aftursætisbíl-
stjóri sem farþegi hjá öðrum og mér
finnst bara fínt að vera í farþega-
sætinu og DJ-a. Mér leið svolítið á
þessari hringferð eins og hundi í bíl
af því ég var bara einhvern veginn
með hausinn út um gluggann að
horfa. Þá fékk ég þessa hugmynd að
sýningunni, að ímynda mér hvernig
það væri að vera hundur, af því þeir
eru náttúrlega með aðra litaskynjun
en við,“ segir Fritz.
Rannsakaði skynjun hunda
Hann lagðist í rannsóknarvinnu
á skynjun hunda og notaði meðal
annars smáforritið Dog Vision sem
gerir notendum kleift að sjá heim-
inn eins og hundar skynja hann.
„Ég hélt alltaf að þeir sæju bara
svarthvítt en svo fór ég að kynna
mér þetta og þá sjá þeir bláan og
gulan lit. Þeir eru sem sagt með
einhverja útgáfu af rauðgrænni lit-
blindu,“ segir Fritz.
Á sýningunni eru sex olíumál-
verk sem eru máluð með litum sem
hundar sjá og í miðju sýningarrým-
isins má sjá skúlptúr í formi hindr-
unar sem notaðar eru á hunda-
sýningum með þremur stöngum,
blárri, grárri og gulri, sem tákna
hinn eiginlega regnboga hunds.
„Þetta er svona einshvers konar
myndræn framsetning á regnboga
hunds, ef hundur sæi regnboga, af
því hans regnbogi er náttúrlega
strípaðri heldur en okkar,“ segir
Fritz.
Lyktin af nýslegnu grasi
Auk málverka og skúlptúra má
einna finna lyktarverk sem umlykur
sýningarrýmið og minnir á lyktina
af nýslegnu grasi. Þá eru ferómón í
lyktardreifinum sem hafa róandi
áhrif á hunda.
„Það var í raun bara hluti af því að
reyna að setja sig í spor þessa hunds.
Hundar náttúrlega skynja umhverfi
sitt að miklu leyti með lyktarskyn-
inu þannig að mér fannst áhugavert
að skoða það. Ég fékk góða hjálp frá
henni Lilju Birgisdóttur í Fischer,
fékk að stíga öðrum fæti inn í ilm-
gerðina hjá þeim. Ég fann á netinu
hvaða efnafræðilegu eiginleika
nýslegið gras hefur og þau áttu
meira að segja til mjög sérstakar
ilmolíur fyrir það,“ segir Fritz.
Myndirðu segja að sýningin væri
aðgengileg fyrir hunda?
„Verkin eru hengd í hundahæð
þannig að það er auðvelt að skoða
þau ef maður er hundur en ég get
ekki sagt til um það hvernig þeir
upplifa sýninguna. En allir hundar
eru velkomnir og ég ímynda mér að
litirnir höfði til þeirra.“
Heimsmynd manns og hunds
Verk Fritz Hendriks fjalla gjarnan
um þá ómeðvituðu sviðsetningu
sem einkennir lífið, listir og menn-
ingu. Þá samanstanda sýningar
hans oftast af heildrænni frásögn
og listrænni heimsmynd sem áhorf-
endur stíga inn í. Spurður um hvort
því sé eins farið með Regnboga
hunds segir hann:
„Já, ég held það. Það verður til ein-
hver ákveðin stemning hérna inni,
sérstaklega með því að lækka vegg-
hæðina í samhengi við upphengið,
síðan þessi lykt og lýsingin er líka
aðeins dempuð til að líkja eftir því
að þú sért inni í bíl.“
Að sögn Fritz segist hann upp-
runalega hafa lagt upp með að gera
létta og skemmtilega sýningu, eins
og hann sér fyrir sér persónuleika
hunda, en eftir því sem verkin tóku
á sig mynd hafi hann rekist á dýpri
tilvistarlegar spurningar.
„Ég sá fyrir mér að þetta væri bara
ótrúlega kæruleysisleg og ligeglad
sýning. En eftir því sem hugmynd-
in vatt upp á sig þá fór ég meira að
vinna með þennan symbólisma
í hugmyndinni að vera farþegi í
einhverju farartæki sem er að fara
eitthvert og þú hefur enga stjórn á,
þarft bara að sitja og njóta. En það
að vera undirgefinn og vera alltaf að
sýna sína bestu hlið fyrir þeim sem
er ofar manni, gerir mann kannski
pínu bældan.“ n
List fyrir hunda og menn
Fritz Hendrik segist upphaflega hafa ætlað að gera létta og skemmtilega sýningu en eftir því sem verkin tóku á sig
mynd hafi hann rekist á dýpri tilvistarlegar spurningar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Verkin á sýningunni eru öll máluð í litum sem taka mið af litaskynjun hunda.
MYND/FRITZ HENDRIK IV
tsh@frettabladid.is
Danshöfundurinn Anna Kolfinna
Kuran undirbýr nú dansverkið
Femínískt reif í samstarfi við menn-
ingarskólann Litlu systur. Verkið
verður f lutt á Reykjavík Dance
Festival í nóvember og auglýst er
eftir ungmennum til að taka þátt í
verkinu og í starfsemi Litlu systur.
Litla systir er hugarfóstur dans-
höfundarins Ásrúnar Magnús-
dóttur sem hefur áður staðið að
ýmsum samsköpunarverkum með
unglingum. Spurð um hvort Femín-
ískt reif sverji sig í ætt við þau verk
segir Anna Kolfinna:
„Þetta er kannski svolítið svipað
og Ásrún hefur verið að gera í sinni
vinnu sem danshöfundur en þetta
er verk eftir mig þannig að ég er
danshöfundurinn og mun vinna
með krökkunum að allri sköpun.
Þau munu semja verkið með mér.“
Að sögn Önnu Kolfinnu er mark-
miðið að skapa femíníska útópíu
þar sem allir upplifi sig örugga og
frjálsa, óháð kyni og bakgrunni.
„Við ætlum að búa til heim þar
sem okkar reglur gilda og raunveru-
legt jafnrétti. Öll mega vera eins og
þau vilja, skilgreina sig eins og þau
vilja og klæða sig eins og þau vilja.“
Öll ungmenni 14-19 ára geta sótt
um að vera með til 1. september á
annakolfinna@gmail.com. n
Skapa femíníska útópíu
Anna Kolfinna, Flóki Dagsson úr Litlu
systur og Ásrún Magnúsdóttir.
Minningarsjóður um Jean-Pierre Jacquillat, fyrrum
aðal stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands, mun á
þessu ári veita efnilegum tónlistarmanni styrk til
framhaldsnáms erlendis á skólaárinu 2022-2023.
Veittur er einn styrkur að upphæð 1.500.000 kr.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil
og framtíðaráform, sendist til formanns
sjóðsins á netfangið: jpj@i8.is fyrir 4. sept. nk.
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár
frumsaminna verka eða önnur gögn sem sýna
hæfni umsækjenda.
2021 Hjörtur Eggertsson - selló & hl.sv.stj.
2020Álfheiður E. Guðmundsdóttir- söngur
2019 Geirþrúður A . Guðmundsdóttir- selló
2018 Hrafnhildur M. Guðmundsdóttir-selló
2017 Sölvi Kolbeinsson-saxófón
2016 Baldvin Oddsson-trompet
2015 Rannveig Marta Sarc-fiðla
2014 Sólveig Thoroddsen-harpa
2013 Hulda Jónsdóttir-fiðla
2012 Benedikt Kristjánsson-söngur
2011 Matthías I. Sigurðsson-klarinett
2010 Gunnhildur Daðadóttir-fiðla
2009 Helga Þóra Björgvinsdóttir-fiðla
2008 Jóhann Nardeau-trompet
2007 Melkorka Ólafsdóttir-flauta
2006 Elfa Rún Kristinsdóttir-fiðla
2005 Ögmundur Þór Jóhannesson-gítar
2004 Víkingur Heiðar Ólafsson-píanó
2003 Birna Helgadóttir-píanó
2002 Lára Bryndís Eggertsdóttir-orgel
2001 Pálína Árnadóttir-fiðla
2000 Hrafnkell Orri Egilsson-selló
1999 Una Sveinbjarnardóttir-fiðla
1998 Árni Heimir Ingólfsson-píanó
1997 Þórður Magnússon-tónsmíðar
1996 Ingibjörg Guðjónsdóttir-söngur
1995 Sigurbjörn Bernharðsson-fiðla
1994 Guðni A . Emilsson-hljómsveitarstjórn
1993 Tómas Tómasson-söngur
1992 Þóra Einarsdóttir-söngur
Ím
y
n
d
u
n
a
ra
fl
/
M
-J
PJ
» F Y R R U M S T Y R K Þ E G A R «
w w w. m i n n i n g a r s j o d u r - j p j . i s
Tilkynnt verður um styrkhafa fyrir 1. október 2022.
Styrkur til
tónlista r ná ms
MINNINGAR
SJÓÐUR
JPJ
Undirbúningsstyrkir
Styrkir til sýningaverkefna
Útgáfu-/rannsóknastyrkir
og aðrir styrkir
M
yn
dl
is
ta
rs
jó
ðu
r
Veittir verða styrkir allt að 3.000.000 kr.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 þann 22. ágúst 2022
Upplýsingar um myndlistarsjóð,
umsóknareyðublað, úthlutunar
reglur og leiðbeiningar má finna
á vefsíðu myndlistarsjóðs,
myndlistarsjodur.is
Úthlutað verður í september
mánuði. Um er að ræða seinni
úthlutun úr sjóðnum árið 2022.
Umsóknarfrestur
í myndlistarsjóð
rennur út
22. ágúst
48 Menning 13. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 13. ágúst 2022 LAUGARDAGUR