Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Side 17
Sjómannablaðið Víkingur – 17
lagði upp frá Íslandi sökkti Scharnhorst í
mikilli sjóorrustu í Barentshafi annan í
jólum 1943. Margar tilraunir voru gerðar
til að granda Tirpitz. Það tókst loks í
nóvember 1944 þegar skipinu hvolfdi í
loftárásum breskra flugvéla við Tromsö.
Tæplega þúsund manns fórust. Þjóð-
verjar misstu einnig 32 kafbáta í Íshaf-
inu, flesta með allri áhöfn. Auk þessa
töpuðu Þjóðverjar fjölda flugvéla í ár-
ásum á skipalestirnar.
Bók væntanleg
Saga Íshafsskipalestanna lýsir fjölmörg-
um harmleikjum sem áttu sér stað í
miskunnalausum stríðsátökum þar sem
einstaklingarnir voru leiksoppar atburða
sem enginn virtist í raun hafa nokkra
stjórn á. Meðal þeirra má nefna örlög
skipalestarinnar PQ17 sem var hreinlega
slátrað á leið frá Hvalfirði til Rússlands.
Einnig QP13 sem villtist vegna veðurs
inn í tundurduflabelti við Vestfirði.
Fjöldi skipa fórst þá í mannskæðasta sjó-
slysi sem orðið hefur við Íslandsstrendur.
Ísland og Hvalfjörður urðu skyndilega
miðstöð siglinga og flotaaðgerða þar sem
þúsundir manna tóku þátt, oft með mikl-
um blóðfórnum og þjáningum. Aldrei í
sögunni hafa jafn viðamiklar hernaðar-
aðgerðir átt sér stað á hafsvæðunum í
grennd við Ísland. Skipalestirnar frá
Hvalfirði og atburðir í tengslum við þær,
SJÓMANNASAMBAND ÍSLANDS LANDSSAMBAND ÍSLENSKRA ÚTVEGSMANNA
Sjómennt – Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins – Háteigsvegi – 105 Reykjavík – sími 514 9000
Átt þú rétt á styrk?
Sjómennt er fræðslusjóður sjómanna og útgerðarfyrirtækja. Félagsmaður,
sem hefur unnið í a.m.k. sex mánuði sl. 12 mánuði skv. kjarasamningi SA/LÍU
við Sjómannasamband Íslands hjá útgerðum innan LÍU og greitt til aðildar-
félags Sjómenntar á þeim tíma, á rétt á stuðningi til náms.
Samtök atvinnulífsins (SA), Landsamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og
Sjómannasamband Íslands (SSÍ) standa að Sjómennt.
Nánari upplýsingar á www.sjomennt.is og á sjomennt@sjomennt.is
Ertu búinn að vera á sjónum í eitt ár eða meira?
Langar þig að fara á námskeið eða í skóla?
Breska fl utningaskipið Empire Lawrence siglir út Hvalfjörð áleiðis til Rússlands 21. maí 1942. Viku síðar var skipinu sökkt í loftárás þýskra fl ugvéla í Barentshafi .