Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Qupperneq 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Qupperneq 28
28 – Sjómannablaðið Víkingur nýliðafræðslu undir handarjaðri Böðvar Einarssonar 2. stýrimanns, íklæddur flot- búningi og leiddur pungsveittur í allan sannleik um öryggisbúnað og öryggis- plan áhafnar / skips. Eins og aðrir Ís- lendingar bíður maður spenntur eftir niðurstöðum um Icesave atkvæðagreiðsl- una sem verður ljós fyrir miðnættið. Niðurstaða afgerandi. Réttlætiskennd landans réði úrslitum, niðurstaða tæp 60% nei. Ekki leggur maður af í dag. Kótelettur upp á gamla móðinn. Sann- kölluð kólesterólsprengja. Sunnudagur 10. apríl. Á siglingu áleiðis til Immingham. Mein- leysisveður. Áframhaldandi dekur við munn og maga. Lambahryggur af sver- ustu gerð. Tekinn lóðs 23.25. Mánudagur 11. april. Sigling upp fljótið. Enn og aftur undrast ég hversu lítið svigrúm skipstjórum er ætlað til að athafna sig á hafnarsvæðinu. Slússan sem fara þarf í til að komast inn á hafnarsvæðið i Immingham er aðeins fjórum metrum breiðari en skipið sjálft. Þegar glíma þarf við vind og straum blasir við að ekki má mikið út af bera við þessar aðstæður. Allt gekk eins og smurt og búið að binda kl. 02.15. Fór ásamt Sig- þóri skipstjóra í skoð- unarferð til Grimsby undir leiðsögn Hilmis Svavarssonar yfir- manns Samskipa á Humbersvæðinu. Óhætt er að segja að dapurlegt hafi verið að sjá gamla fismarkaðinn og athafnsvæðið í næsta nágrenni í al- gjörri niðurníðslu. Meira að segja er búið að loka The Winter Garden þar sem við skipsfélagarnir á gamla Harðbaki EA 3 fórum árið 1968 á dansleik fyrir frá- skyldar konur og ekkjur. Þá var greinar- höfundur 16 ára „togarajaxl“ og hafði aldrei áður lent í þvílíkum aðstæðum þar sem maður sviptist um eins og fáni í stormi, hálfkafnaður með andlitið á kafi milli brjósta barmmikillar ekkju eða frá- skilinnar skonnortu, en það er nú önnur saga. Hilmir sýndi okkur síðan nýja mark- aðinn og fræddi okkur um helstu vaxtar- brodda svæðisins, en með ströndinni er verið að reisa gríðarlegan fjölda vind- mylla. Hefur sú framhvæmd skapað mikla atvinnu og verið lyftistöng fyrir svæðið. Í lokin var okkur boðið í kaffi á skrifstofur Samskipa eftir fræðandi bíltúr með Hilmi sem reyndar er Eyfirðingur og fyrrverandi frystitogarasjómaður til margra ára. Kl. 20.10 – landfestar leystar í Imm- ingham. Komnir á kúrsinn til Rotterdam kl. 22.30. Blíðuveður. Þriðjudagur 12. apríl. Kl. 07.30. Tekinn lóðs utan við Rotter- damhöfn sem er að sögn stærsta far- skipahöfn í veröldinni. Ótrúleg traffík skipa af öllum stærðum og gerðum. Athyglisvert fyrir leikmann að fylgjast með hvernig snúa þurfti skipinu og bakka drjúga vegalengd inn í höfn- inni. Búið að binda kl. 09.30 Endalaus straumur flutningsfarartækja á ferðinni. Við Sigþór skipstjóri fórum í hjóltúr frá höfninni upp í borgina þar sem hann fræddi mig um helstu viðkomustaði íslenskra farmanna í gegn um tíðina. Hjóltúrinn bæði fræðandi og hressandi. Þess má geta að í Rotterdam var bunk- eruð olía fyrir tæpar 50 miljónir. Miðvikudagur 13. apríl. Brottför frá Rotterdam. Haldið áleiðis til Cuxhafen. Á siglingu í blíðskaparveðri. Fimmtudagur 14. apríl. Kl. 02.40. Búið að binda í Cux. Stutt stopp. – Landfestar kl. 06.10. Haldið áleiðis til Varberg í Svíþjóð. Á siglingu. Sólbaðsveður og algjört skjól bak við brúna. Föstudagur 15. apríl. Landfestar kl. 04.35 í höfn í Varberg. Fallegur bær og að sögn mjög vinsæll ferðamannastaður yfir sumartímann. Fékk hjólandi leiðsögn frá félaga Sigþóri skipstjóra. – Landfestar kl. 14.05. Farið yfir öryggismál og sýndar fræðslumyndir sem segir mér að einu sinni í viku eru öryggismálin tekin fyrir. Kl. 20.50. búið að binda í Árhus. Glæsileg umskipunarhöfn í eigu Mærsk skipafélagsins. Höfnin hefur fengið margar viðurkenningar fyrir góða og hraða þjónustu. Laugardagur 16.apríl. Kl. 05.10 – Landfestar í Arhus. Haldið sem leið liggur til Kollafjarðar í Fær- eyjum. Eitt nýjasta skipið undir merkjum Samskipa í Rotterdamhöfn. Böðvar 2. stýrimaður á vaktinni.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.