Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Blaðsíða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Blaðsíða 29
Sjómannablaðið Víkingur – 29 Sunnudagur 17. apríl. Á siglingu áleiðs til Kollafjarðar. SV fræsingur. Fór í leiðangur niður í véla- rúm og rakti garnirnar úr þeim Trausta yfirvélstjóra og Þorgeiri 1. vélstjóra. Vélarúmið rétt eins og vaktklefinn ber þeim félögum og ekki síður Kalla dag- manni fagurt vitni, þar sem allt er gjör- samlega spikk og span þannig að í raun væri hægt að halda gala dansleik á svæðinu. Mánudagur 18. apríl. Komnir í höfn í Kollafirði um kl. 06.00 að morgni. Friður og ró yfir þessum bæ okkar bestu vinaþjóðar sem við færðum timbur og fleiri nauðsynjavörur. Látið úr höfn um hádegisbil. Haldið áleiðis til Reykjavíkur. Þriðjudagur 19. apríl. Á siglingu til Reykjavíkur. Það var sér- stök upplifun að verða vitni að því þegar tollurinn er afhentur. Virkaði á mig eins og ákveðin trúarathöfn. Menn stóðu í röð og biðu eftir björginni sem er reynd- ar ekki til skiptanna ef svo má að orði komast. Ein flaska af sterku, 12 lítrar af bjór og eitt carton af sígarettum. Reyndar fá yfirmenn tvöfaldan skammt. Miðvikudagur 20. apríl. Kl. 01.10 búið að binda í Reykjavík. Toll- skoðun lokið rúmum klukkutíma síðar. Fróðlegri og skemmtilegri ferð lokið. Þakka Sigþóri og áhöfn hans fyrir frábær kynni og óska þeim sem og öðrum ís- lenskum farmönnum alls hins besta í framtíðinni. Vonandi rennur upp sú stund að „íslenskum“ skipafélögum verði búnar þær aðstæður að þau skip, sem sjá þjóðfélaginu fyrir aðföngum frá útlöndum, sigli undir íslenskum fána. Takk fyrir mig. Viðurkenndar stuðningshlífar Höfnin í Vestmannaeyjum framundan. Hér sést glöggt hversu Vestmannaeyjarhöfn er þröng fyrir skip af þessari stærð.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.