Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2012, Blaðsíða 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2012, Blaðsíða 35
Sjómannablaðið Víkingur – 35 Stærð og þróun íslenska kaupskipaflotans 1945-1960 Eins og frá var sagt í síðustu grein varð íslenski kaupskipaflotinn fyrir allmiklum skakkaföllum á styrjaldarárunum. Mörg skip töpuðust, ýmist vegna hernaðarað- gerða stríðsþjóðanna eða af öðrum or- sökum, og á meðan stríðið geisaði var útilokað að fá aðrar fleytur í staðinn eða endurnýja skip sem orðin voru gömul og úr sér gengin. Í árslok 1945 áttu íslensk útgerðar- félög alls þrettán kaupskip, samtals 9.593 brúttórúmlestir að stærð. Allt voru þetta gufuskip, að Esju einni undanskil- inni, og flest komin til ára sinna. Sex skipanna voru í eigu Eimskipafélags Ís- lands, Skipaútgerð ríkisins gerði út tvö og önnur skip voru í eigu félaga, sem gerðu aðeins út eitt skip hvert. Í þeim hópi voru flóabátar. Þeir voru flokkaðir sem kaupskip (eða flutningaskip) í opin- berum gögnum, en sigldu aldrei á milli landa og fæstir fóru út fyrir það svæði sem þeir áttu að þjóna nema í undan- tekningartilfellum. Þá var olíuskipið Skeljungur talið til íslenskra kaupskipa árið 1945. Það var fyrsta olíuflutninga- skip í eigu Íslendinga og gerði H.f. Shell í Skildinganesi það út til olíuflutninga á milli hafna innanlands. Skeljungur var búinn olíutönkum sem olíu og bensíni var dælt úr og í en einnig var í skipinu allstór lest fyrir olíutunnur, enda voru olíugeymar aðeins á örfáum stöðum á landinu. Gamli Skeljungur var í notkun til 1947 er annað skip með sama nafni tók við hlutverki hans. Það var í notkun 1956 þegar Kyndill kom nýr til landsins. Fimm árum eftir styrjaldarlok, 1950, hafði fjöldi íslenskra kaupskipa nærfellt tvöfaldast. Þá voru þau alls 25 og heild- arstærð flotans var 33.071 brúttórúm- lestir, hafði meira en þrefaldast á fimm árum. Útgerðarfélögum hafði einnig fjölgað að mun, eins og nánar segir frá síðar, og mörg skipanna sem bættust í flotann á þessum árum voru ný, smíðuð fyrir íslenska eigendur. Þessi þróun hélt áfram allan 6. áratug- Smiðjuvegi 74 • 200 Kópavogi • Sími 564 1550 • Fax 554 1650 marvis@marvis.is • www.marvis.is FR U M Marvís flanslegur — opnar og lokaðar —færibönd Henta í alla matvæla- vinnnslu Heildarlausnir í drifbúnaði Allir gírar eru með ryðfríum hulsum og boltum Hekla siglir inn á Pollinn við Akureyri. Mynd: Minjasafnið á Akureyri

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.