Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Side 25
Gildi norrænnar
samvinnu
Guðlaugur Rósinkranz
EKKI ER MEÐ neinni vissu hægt að segja, hvenær hugmyndin um sam-
band eða samvinnu Norðurlandaþjóðanna hefur fyrst komið fram. Með
krýningu Eiríks av Pommern sem konungs hinna þriggja Norðurlanda, Dan-
merkur, Noregs og Svíþjóðar árið 1397, hefur oft verið talið, að fyrsta tilraun til
norrænnar samvinnu hafi verið gerð. Samband þetta er kallað Kalmarsambandið.
En þar var ekki um norræna samvinnu að ræða í sama skilningi og nú er. Það
var eingöngu stjórnarfarslegt atriði, sameining þriggja ríkja undir veldissprota
eins konungs.
Það er fyrst á síðustu áratugum síðustu aldar að byrjað er að ræða um menn-
ingarsamvinnu Norðurlandaþjóðanna á grundvelli frjálsra samtaka menntamanna.
Þessi hugmynd kom þá einkum fram á sameiginlegum fundum Norðurlanda-
stúdenta. Voru þá oft fluttar hásemdar ræður um þessa samvinnu, en lítið varð
um raunhæfar framkvæmdir. Þessi þáttur í hinni norrænu samvinnu hefur síðan
oft verið kallað stúdentaskandinavismi og ekki talinn merkilegur. En þessi hreyf-
ing var þó grundvöllur undir þá norrænu samvinnu, sem byrjaði með stofnun
Norrænu félaganna, er hófu störf í Danmörku, Noregi og Svíþjóð 1919, á íslandi
23