Fréttablaðið - 05.10.2022, Side 2
Opna tímabundið úrræði
Starfsfólk Rauða krossins opnaði fjöldahjálparstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Flóttafólki, meðal annars frá Úkraínu, hefur fjölgað mjög .
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sigurður Örn Ragnarsson
varð um helgina fyrstur
Íslendinga til að vinna alþjóð-
lega keppni í járnkarli þegar
hann kom fyrstur í mark af
1.611 þátttakendum í Barce-
lona. Hitinn reyndist Íslend-
ingnum erfiður.
kristinnpall@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR „Maður finnur alveg fyrir
þessu. Einfaldar athafnir eins og að
labba upp og niður stiga eru erfiðar
daginn eftir. Annars er ég nokkuð
góður, ég gæti örugglega skokkað
stuttan hring ef lærvöðvarnir væru
betri,“ segir Sigurður Örn Ragnars-
son glettinn, aðspurður hvernig
skrokkurinn sé en Sigurður Örn
varð um helgina fyrsti Íslendingur-
inn til að vinna alþjóðlega Járn-
karlskeppni (e. Ironman challenge).
Sigurður kom í mark á 8 klukku-
tímum, 42 mínútum og einni sek-
úndu, 6 mínútum á undan næsta
manni en alls tóku 1.610 manns
þátt. Með sigrinum tryggði hann
sér þátttökurétt á heimsmeistara-
mótinu á næsta ári.
„Þetta var fyrsti járnkarlinn
minn og um leið í fyrsta sinn sem
ég tek maraþon. Þetta var ákveðið
óvissustökk. Ég er með bakgrunn úr
sundi og vissi að það myndi ganga
vel, hjólið gekk vel enda var ég með
góða leikáætlun. Hlaupið var svo
erfiðasti hlutinn því maður kemur
þreyttur af hjólinu,“ segir Sigurður
og heldur áfram:
„Þríþrautarhjól reyna mjög mikið
á lærvöðvana sem eru vöðvar sem
eru mikilvægir í hlaupinu. Vöðv-
arnir gefa sig á endanum og þá er
bara að bíta á jaxlinn og hugsa að
það sé bannað að stoppa.“
Járnkarl er ein erfiðasta þrekraun
heims, þar sem einstaklingar synda
3,9 kílómetra, hjóla 180 kílómetra
og hlaupa að lokum 42,2 kílómetra
eða það sem jafngildir einu mara-
þoni. Sigurður var að keppa í járn-
karli í fyrsta sinn en hann er fimm-
faldur Íslandsmeistari í ólympískri
þríþraut.
„Ég gerði ekki ráð fyrir að vinna
gull í þessari grein alveg strax en
vissi að tímamarkmiðið sem ég setti
mér myndi líklegast duga í efstu
tíu. Um leið er þetta löng keppni og
maður veit aldrei hvað getur gerst,
það eru margir óvissuþættir. Ég sá
þegar ég fór af hjólinu að staðan
var góð og byrjaði um leið í hugar-
reikningi á hvernig staðan væri,
hversu gott forskot ég væri með og
á hvaða hraða ég þyrfti að vera,“
segir Sigurður um frumraun sína í
keppninni og segir afrekið vera að
síast inn.
„Þetta er að síast inn daginn eftir.
Í keppninni var maður mest bara að
einblína á að halda forskotinu því
þarna voru aðilar sem voru mun
vanari þessum aðstæðum. Fyrsta
markmiðið var að bæta Íslandsmet-
ið en ég sá f ljótlega að það myndi
ekki nást og það munaði þremur
mínútum.“
Glampandi sól gerði keppendum
erfitt fyrir, sérstaklega Sigurði sem
gat eðli málsins samkvæmt ekki æft
í þrjátíu stiga hita á Íslandi.
„Það var mjög heitt, ekki ský á
himni og þetta var í raun eins og að
vera í bakarofni. Eftir að hafa æft í
8–9 gráðum voru þetta mikil við-
brigði.“ n
Frumraun Sigurðar Arnar í
járnkarli í sögubækurnar
Sigurður Örn var þremur mínútum frá Íslandsmetinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Vöðvarnir gefa sig á
endanum og þá er bara
að bíta á jaxlinn og
hugsa að það sé bann-
að að stoppa.
Sigurður Örn Ragnarsson
ser@frettabladid.is
NÝSKÖPUN Ísland er í tuttugasta
sæti á lista Alþjóðahugverkastofn-
unarinnar yfir mest nýskapandi ríki
heims. Í fyrra var Ísland í 17. sæti
listans og hefur fallið um þrjú sæti.
Þrjú efstu sæti listans skipa Sviss,
Bandaríkin og Svíþjóð, líkt og í
fyrra. Kína hefur risið hratt á listan-
um undanfarin ár og er nú í ellefta
sæti.
Listinn er byggður á mati á áttatíu
mismunandi þáttum sem tengjast
annars vegar aðstæðum til nýsköp-
unar og hins vegar niðurstöðum
nýsköpunar.
Í tilkynningu frá Hugverkastof-
unni segir að Ísland skori hærra
en f lestar Evrópuþjóðir í þessum
efnum, miðað við þjóðarfram-
leiðslu, en þar er landið í 12. sæti
listans af 39 Evrópuþjóðum. n
Nýsköpun skorar
hátt á Íslandi
Frá Nýsköpunarviku í Grósku.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
KAUPUM BLEIKU SLAUFUNA
Sýnum lit
á bleikaslaufan.is og á sölustöðum
um allt land 1. – 20. október
LíFIÐ E AÐ
VERÐA BUMBULT
Á JÓLUNUM
benediktboas@frettabladid.is
ÍÞRÓT TIR Garðabær og Knatt-
spyrnusamband Íslands hafa samið
um æf ingaaðstöðu fyrir yngri
landslið Íslands í íþróttahúsinu
Miðgarði í Garðabæ.
Samningurinn er til þriggja ára.
KSÍ hafði æft í Skessunni, húsi FH,
síðustu ár.
KSÍ fær til afnota aðstöðu á skil-
greindum rýmum í Miðgarði á til-
teknum tímum dagsins, en um er
að ræða bæði knattspyrnusalinn og
stoðrými, svo sem búningsaðstöðu,
sjúkraherbergi, fundaraðstöðu og
mataraðstöðu, dómara- og þjálf-
araherbergi og þrekæfingasvæði
með gervigrasi.
Fyrstu KSÍ-æfingarnar í húsinu
voru á dagskrá í september þegar
hæfileikamótun drengja fór fram.
Fram undan í október eru æfingar
yngri landsliða. n
Landsliðsæfingar hafnar í Garðabæ
Vanda Sigur-
geirsdóttir, for-
maður KSÍ, og
Almar Guð-
mundsson
bæjarstjóri
undirrita
samninginn.
2 Fréttir 5. október 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ