Fréttablaðið - 05.10.2022, Qupperneq 4
Tvær konur og einn karl-
maður eru í gæsluvarð-
haldi vegna manndráps-
málsins á Ólafsfirði
benediktboas@frettabladid.is
GRINDAVÍK Bæjarstjórn Grinda-
víkur hefur samþykkt að bæta hálfri
milljón við fjárhagsáætlun vegna
árshátíðar starfsmanna Grinda-
víkurbæjar.
Ásrún Helga Kristinsdóttir, for-
seti bæjarstjórnarinnar, tók til máls
undir liðnum. Lagt var til að viðauk-
inn yrði fjármagnaður með lækkun
á handbæru fé.
Var viðaukinn samþykktur sam-
hljóma í bæjarstjórn og er því hægt
að blása í enn betri og stærri árs-
hátíð. n
Grindvíkingar
blása vel í
partílúðurinn
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Enn eru í gildi miklar tak-
markanir á ferðalögum fólks frá
Íslandi í fimm löndum heimsins
vegna Covid-19. Þeirra á meðal eru
Kína og Úkraína.
Í Taívan, Hong Kong, Mið-
Afrík ulýðveldinu og í Makaó
þarf ferðafólk frá Íslandi að fara í
Covid-próf og sóttkví við komuna
til landsins. Í 42 löndum þarf ferða-
fólk að undirgangast Covid-próf við
komuna en sóttkví er ekki skylda,
þar á meðal eru Kúba, Venesúela og
Ísrael.
Algengast er að allar takmarkanir
séu fallnar úr gildi á landamærum,
en það á við um 159 lönd. Þar þarf
ekki að undirgangast Covid-próf
og í f lestum tilfellum þarf ekki að
sýna bólusetningarvottorð. Ferða-
fólk sem ferðast til dæmis til Banda-
ríkjanna og Japan frá Íslandi þarf
að sýna bólusetningarvottorð og er
ferðafólki alltaf ráðlagt að kynna sér
reglur þess lands sem ferðast er til
fyrir brottför.
Guðrúnu Aspelund sóttvarna-
læknir segir bólusetningarvottorð
gilda, samkvæmt reglugerð Evrópu-
sambandsins, í níu mánuði eftir
grunnbólusetningu en eftir örv-
unarskammt lengist gildistíminn
ótímabundið. Hún bendir á að ekki
krefjist mörg lönd framvísunar vott-
orða og að reglugerð Evrópusam-
bandsins um bólusetningarvottorð
hafi verið framlengd þar til í júní á
næsta ári.
„Hvað tekur við þá er ekki
ákveðið. Þá geta lönd verið með
sínar eigin reglur hvað varðar
hvort krafist er örvunarskammts
og varðandi gildistíma, sérstaklega
lönd utan Evrópusambandsins og
Evrópska efnahagssvæðisins,“ segir
Guðrún. n
Bólusetningarvottorða er ekki krafist víða
Það verður stuð á árshátíð Grinda-
víkur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
benediktboas@frettabladid.is
SLYSAVARNIR Slysavarnafélagið
Landsbjörg leitar að styrktaraðilum
til að koma með sér inn í stærsta
fjárfestingarverkefni félagsins sem
er að endurnýja björgunarskipa-
flotann.
„Fyrsti báturinn af þremur er
kominn til Vestmannaeyja. Þar
greiddi ríkið helminginn á móti
okkur. Það er í gildi viljayfirlýsing
um tíu björgunarbáta í viðbót,“
segir Otti Rafn Sigmarsson formað-
ur Landsbjargar. Nýr bátur kostar
hátt í 300 milljónir og stendur til að
endurnýja alla þrettán bátana.
Fyrsta skipið, Þór, var vígt í Vest-
mannaeyjum um helgina. Næsta fer
á Siglufjörð í janúar og það þriðja
verður staðsett í Reykjavík. „Það
er ekki verið að taka nokkur skref
áfram heldur margar kynslóðir
áfram í björgunarskiparekstrinum.
Þetta eru öflugustu og best búnu
björgunarskip Evrópu í dag,“ segir
Otti.
Næsta skref hjá Landsbjörg er að
halda áfram samtalinu við ríkið og
fá fleiri að borðinu en Sjóvá styrkti
Landsbjörg um 142 milljónir. „Við
erum að leita að f leirum til að
koma um borð í þetta verkefni.
Útgerðirnar til dæmis sem hafa hag
af því að hafa þessa hluti í lagi. Það
eru spennandi tímar fram undan,“
segir formaðurinn. n
Nýjasti báturinn
er sá öflugasti
Með nýjum björgunarskipum verður
bylting í viðbragðstíma og aðbúnaði
fyrir áhafnir og skjólstæðinga.
75 hjúkrunar fræðingar segja
ógn við öryggi sitt á vinnu-
stað þátt í því að þeir vilji
segja upp starfi sínu. Ógnin
getur meðal annars falist í að
heilbrigðisstarfsfólk telji sig
eiga á hættu að vera refsað.
birnadrofn@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Sjötíu og fimm
hjúkrunarfræðingar, eða 5,9 pró-
sent svarenda í nýrri könnun Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga, segja
ógn við öryggi sitt á vinnustað hafa
vakið upp hjá þeim hugmynd um að
segja upp starfi sínu.
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður
félagsins, segir að ekki hafi verið sér-
staklega spurt um það í könnuninni
hvað það sé sem ógni öryggi hjúkr-
unarfræðinganna en að hún geti
nefnt nokkur dæmi.
„Það getur verið þannig að okkur
stafi ógn af þeim sem við erum að
sinna og það getur líka verið ógn
í því að hafa ekki þau tæki, tól og
búnað sem við þurfum til að sinna
starfi okkar,“ segir Guðbjörg.
„En annar stór þáttur sem gleym-
ist í þessu er ógnin í því að hægt sé
að sækja heilbrigðisstarfsfólk til saka
vegna kerfisbundinna villna innan
kerfisins,“ bætir Guðbjörg við.
Þar vísar hún meðal annars í mál
frá árinu 2014 þegar hjúkrunarfræð-
ingur var sóttur til saka fyrir mann-
dráp af gáleysi. Hún var sýknuð en
málið hafði í kjöfarið mikil áhrif á
starf hjúkrunarfræðinga.
„Ef þú ert að vinna á undirmönn-
uðum vinnustað, þar sem mönnunin
er ekki í samræmi við vinnuálagið og
starfsaðstæður eru ófullnægjandi, þá
ertu að setja sjálfan þig og þitt starfs-
leyfi í hættu,“ segir Guðbjörg.
Willum Þór Þórsson heilbrigðis-
ráðherra hefur hafið vinnu við
lagabreytingar sem kveða á um að
afnema refsinæmi vegna mistaka
heilbrigðisstarfsfólks og segir Guð-
björg nauðsynlegt að af breyting-
unum verði.
Undir orð hennar tekur Sigur-
björg Sigurgeirsdóttir, prófessor
í stjórnsýslufræði við Háskóla
Íslands, en hún hefur rannsakað
refsivæðingu mannlegra mistaka í
heilbrigðisþjónustu og áhrif hennar
á heilbrigðisstarfsfólk.
„Rannsóknir mínar styðja ein-
dregið við það að þessu þarf af
breyta,“ segir Sigurbjörg.
Hún segir hjúkrunarfræðinga
mun meðvitaðri um bæði þá per-
sónulegu og faglegu áhættu sem
fylgi starfi þeirra eftir mál hjúkr-
unarfræðingsins árið 2014.
„Rannsóknir sýna að í kjölfar
svona mála veigrar fólk sér við að
vinna þar sem áhættan er mikil. Svo
sem á bráðdeild eða gjörgæsludeild
vegna þess að að þar hefur fólk ekki
stjórn á aðstæðum og verður að taka
þeim verkefnum sem að því er beint
og leysa þau,“ segir hún.
Sigurbjörg segir að í vinnuaðstæð-
um þar sem undirmönnun sé mikil
myndist ákveðinn vítahringur. „Það
eru fáir á vakt og því meiri hætta á að
eitthvað gerist, hjúkrunarfræðingar
verða því varari um sig og taka ekki
tvöfaldar vaktir sem ýtir aftur undir
undirmönnun,“ segir hún.
„Mönnunin hefur alltaf reitt sig
á það að hjúkrunarfræðingar taki
tvöfaldar vaktir en núna kippa þeir
að sér hendinni og vilja ekki fara út
í aðstæðurnar sem konan sem var
kærð var í,“ bætir hún við.
Sigurbjörg segir hjúkrunarfræð-
inga eiga auðvelt með að setja sig í
spor konunnar sem kærð var, þeir
þekki aðstæðurnar sem hún var í
en það geri almenningur síður. „Þess
vegna er hann refsiglaðari.“
Þá segir Sigurbjörg rannsókn sína
sýna að hjúkrunarfræðingar séu
flestir sammála um að afnema eigi
refsinæmi en þó ekki í tilfellum þar
sem um ásetning sé að ræða.
„Fari fram rannsókn sem bendi til
ásetnings, þá ætti að kæra og ekki
að hylma yfir það, en það þarf að
gera greinarmun á því hvers konar
atvik á sér stað,“ segir hún. „Það vill
enginn vinna í aðstæðum þar sem
þú getur lent í svona.“ n
Upplifa ógn á vinnustaðnum
Heilbrigðis-
ráðherra hefur
hafið vinnu við
lagabreytingar
til að afnema
refsinæmi
vegna mistaka
hjá heilbrigðis-
starfsfólki.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
Guðbjörg Páls-
dóttir, formaður
Félags íslenskra
hjúkrunar-
fræðinga
Sigurbjörg
Sigurgeirsdóttir,
dósent við
Háskóla Íslands
kristinnhaukur@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Tvær konur og einn
karlmaður voru f lutt í fangelsið
á Hólmsheiði í gær vegna mann-
drápsmálsins á Ólafsfirði. Ekki eru
lengur fangageymslur á Akureyri
þar sem rannsókn málsins fer fram.
Viðkomandi voru úrskurðuð í viku-
langt gæsluvarðhald á mánudags-
kvöld í héraðsdómi Norðurlands
eystra.
Hinn látni var karlmaður á fimm-
tugsaldri sem lést eftir árás með
eggvopni aðfaranótt mánudags.
Hann var gestkomandi á þeim stað
sem hann lést. Á gamlársdag í fyrra
hafði hann gengið í hjónaband með
annarri konunni sem situr í gæslu-
varðhaldi. Hún er á fertugsaldri.
Hin konan sem sætir gæsluvarð-
haldi er hálffertug. Hún er frá Ólafs-
firði og býr þar nú þótt hún hafi
búið annars staðar við Eyjafjörð
um skeið.
Atvikið er talið hafa átt sér nokk-
urn aðdraganda því væringar hafi
verið innan hópsins um allnokk-
urt skeið samkvæmt samtölum við
bæjarbúa.
Í gær var greint frá því að lögregla
hefði áður þurft að hafa afskipti af
fólkinu sem og Barnavernd. Greint
var frá stormasömu sambandi hins
látna og annarrar konunnar þar sem
heimilisofbeldi og fíkniefnaneysla
hafi mögulega komið við sögu. En
sambandi hins látna og annarrar
konunnar var lokið þegar mann-
drápið átti sér stað. n
Þrjú flutt í gæsluvarðhald á Hólmsheiði
Lögreglan á vettvangi manndrápsins á mánudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/GAR
Fyrsta skipið, Þór, var
vígt í Vestmannaeyjum
um helgina.
Ferðafólk sem ferðast
til dæmis til Banda-
ríkjanna og Japan frá
Íslandi þarf að sýna
bólusetningarvottorð.
4 Fréttir 5. október 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ