Fréttablaðið - 05.10.2022, Síða 20
Grunnverð: 13.990.000 kr.
Hestöfl: 469
Tog: 630 newtonmetrar
Hröðun 0-100 km: 4,1 sek.
Hámarkshraði: 245 km/klst.
Rafhlaða: 93 kWst.
Eigin þyngd: 2.420 kg
Drægi: 475 km
L/B/H: 4.990/1.960/1.410 mm
Hjólhaf: 2.900 mm
Farangursrými: 366 lítrar
Audi e-tron GT quattro
KosTir
n Aksturseiginleikar
n Framsæti
n Grunnbúnaður
GAllAr
n Aðgengi
n Útsýni
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
njall
@frettabladid.is
Það var reyndar ekki þrumu-
guðinn sem ók bílnum
fyrst í Avenger-myndinni
Endgame en þar var Járn-
maðurinn Tony Stark undir
stýri þegar bíllinn birtist
fyrst almenningi árið 2019.
Audi e-tron GT kom fyrst
fram sem tilraunabíll á bíla-
sýningunni í Los Angeles
árið 2018.
Audi e-tron GT hefur verið á sölu-
lista Audi síðan í mars í fyrra en
hefur nú verið kynntur á Íslandi.
Bíllinn er byggður á sömu J1-botn-
plötu og Porsche Taycan og deilir
um 40% af íhlutum með honum.
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á nýjustu útgáfunni sem er
með hleðsluporti á báðum hliðum
til að auðvelda aðgengi að hleðslu.
Audi e-tron GT getur tekið við allt
að 270 kW hleðslu í grunnútgáfu
sinni.
Það verður ekki skrifað um Audi
e-tron GT án þess að segja hversu
skemmtilegt er að aka honum.
Eitt af því sem gerir aksturinn
skemmtilegan eru rafmagns-
mótorarnir en þeir eru tveir hvor
á sínum öxli og skila samtals 469
hestöflum. Þeir geta gefið auka-
orku í 2,5 sekúndur og fer þá aflið
í 523 hestöfl sem dugar til að skila
bílnum í hundraðið á 4,1 sekúndu.
Í upptakinu er bíllinn eldsnöggur
af stað án þess að spóla og heldur
svo áfram að skila inn togi án þess
að missa niður kraft. Það þýðir að
bíllinn er einnig með næga orku á
ferðinni sem er ekki alltaf reyndin
þegar kemur að rafmagnsbílum.
Að vísu er nokkur hvinur frá raf-
mótorunum á minni hraða en eins
skrýtið og það hljómar er hljóðið
nokkuð töff og er eins og það hafi
komið úr hljóðsafni George Lucas.
Bíllinn er mjög nákvæmur í stýri
og manni líður eins og maður hafi
bílinn í fingurgómunum. Bíllinn
liggur einstaklega vel og leggst
ekki niður á hornin eins og maður
hefði búist við í þetta þungum bíl.
Heildarútkoman er því sérlega
skemmtilegur akstursbíll sem
hefur bæði afl og grip í góðum
mæli.
Það hljómar kannski skringi-
lega að segja að notkun takka í
mælaborði sé kostur en þannig er
því farið í e-tron GT. Miðjuskjárinn
Bíllinn fyrir ökuþóra
Farangursýmið
er þokkalega
rúmgott en
búnaður fyrir
vindskeið tekur
sitt pláss í skott-
lokinu.
Audi e-tron GT með fjórhjóladrifi er sannkallður akstursbíll sem liggur eins og skata en er skjótur eins og hlébarði. MYNDIR/ANTON BRINK
Eitt af því sem gerir
aksturinn
skemmtilegan eru raf-
magnsmótorarnir en
þeir eru tveir hvor á
sínum öxli og skila
samtals 469 hestöflum.
Þeir geta gefið aukaorku
í 2,5 sekúndur og fer þá
aflið í 523 hestöfl.
Kostir: Aksturseiginleikar, framsæti,
grunnbúnaður
Gallar: Aðgengi, útsýni
Audi e-tron GT quattro
Grunnverð: 13.990.000 kr
Hestöfl: 469
Tog: 630 Nm
Hröðun 0-100 km: 4,1 sek
Hámarkshraði: 245 km
Rafhlaða: 93 kWst
Drægi: 475 km
L/B/H: 4.990/1.960/1.410 mm
Hjólhaf: 2.900 mm
Farangursrými: 366 lítrar
Eigin þyngd: 2.420 kg
6 BÍ l A Bl A Ði Ð 5. október 2022 MIÐVIKUDAGUR