Fréttablaðið - 05.10.2022, Blaðsíða 27
Grænir skátar reka grennd-
argáma og móttökustöð í
Hraunbæ en bjóða líka upp
á þá þjónustu að setja upp
ílát fyrir dósir og flöskur í
fjölbýlishúsum, hjá félaga-
samtökum og fyrirtækjum.
Grænir skátar sækja svo
ílátin þegar þau eru full og
skila peningagreiðslu til
baka.
Sækja umbúðirnar til fólks
„Síðustu þrjú ár höfum við verið
að auka og efla þjónustuna okkar,
sérstaklega þann hluta sem snýr að
því að sækja umbúðir til veitinga-
staða og húsfélaga. Við komum
á staðinn og setjum upp ílát sem
henta stærð og umfangi og svo
komum við og sækjum þau og
setjum ný ílát þegar þau fyllast,“
segir Kristinn Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Grænna skáta.
„Margir gefa okkur umbúðirnar
en við bjóðum líka upp á að greiða
út skilagjaldið og þá borgum við að
hámarki 11 krónur fyrir hverja ein-
ingu, en skilagjaldið er 18 krónur,
svo við höldum eftir 7 krónum
fyrir fyrir okkar þjónustu.
Við getum bæði komið og sótt
ílátin reglulega í samráði við
fólk, og líka boðið upp á ílát sem
eru búin skynjurum, þannig að
við sjáum hvenær við þurfum að
koma,“ útskýrir Kristinn.
„Við bjóðum líka upp á þessa
þjónustu fyrir félagasamtök og
fyrirtæki og umfangið hefur verið
að aukast hratt. Hótel og veitinga-
aðilar hafa einnig leitað til okkar
í auknum mæli, en þeir hafa verið
að átta sig á hversu þægilegt það er
að fá okkur til að sjá um þennan
hausverk.“
Kristinn segir fyrirtækja-
þjónustu Grænna skáta í raun vera
viðbót við almenna sorphirðu.
„Við erum byrjaðir að hasla
okkur völl í þeim bransa. Það er
nýtt fyrir mörgum að hægt sé að
fá einhvern til að sækja þennan
endalausa straum af umbúðum
og margir vilja losna við vinnuna
og sóðaskapinn sem því fylgir,
en samt fá peninga út úr umbúð-
unum.“
Grænir skátar hafa því þrí-
þættan megintilgang.
„Við viljum auka umhverfis-
vitund, afla fjár fyrir skátana, sem
rennur óskert í uppeldis- og félags-
starf ungs fólks á vegum íslenskra
skáta víðs vegar um landið, og
veita þeim vinnu sem þurfa
stuðning í vinnu í samvinnu við
verkefnið Atvinna með stuðningi
hjá Vinnumálastofnun. Nú erum
við með yfir þrjátíu starfsmenn
í mismunandi starfshlutfalli og
langflestir starfsmenn okkar koma
úr þessu verkefni. Við leggjum
áherslu á þessa grunnþætti í öllum
ákvörðunum og vinnu innan fyrir-
tækisins.“
Sparar tíma, vinnu og sóðaskap
„Fólk skilar líka umbúðum til
okkar í grenndargámana og þær
fáum við að eiga, en við tökum
einnig við umbúðum í flösku-
móttökunni í Hraunbæ 123,
sem við rekum í samvinnu við
Endurvinnsluna og þar er opið alla
daga vikunnar. Þangað er hægt
að skila umbúðum á sama hátt
Sérfræðingar í flöskum og dósum
Hér má sjá Lárus
Þórhallsson og
Kristin Ólafsson,
framkvæmda-
stjóra Grænna
skáta, fara með
nýja flösku- og
dósagáma til
viðskiptavina.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Stefán Gunnar Kjartansson
lærði á barnsaldri hjá skát-
unum að umgangast náttúr-
una af virðingu. Hann fékk
því Græna skáta til að sækja
flöskur og dósir í fjölbýli
eldri borgara í Hlíðunum.
„Mér datt þetta í hug þegar við
konan mín undirbjuggum flutning
í nýja húsið, og ég sá til Grænu
skátanna tæma gám í nágrenninu,
að athuga hvort hægt væri að fá þá
til að vera með gám í ruslageymsl-
unni hjá okkur eldri borgurunum
til að safna í f löskum og dósum
til endurvinnslu,“ segir Stefán
Gunnar Kjartansson, íbúi við
Austurhlíð, sem er ný gata við hlið
Kennaraháskólans í Hlíðahverfi
Reykjavíkur.
„Í húsinu, sem var tekið í notkun
í fyrrasumar og byggt af Samtök-
um aldraðra, eru sextíu íbúðir fyrir
eldri borgara. Sjálfur er ég gamall
skáti og vissi að Grænu skátarnir
söfnuðu flöskum og dósum og fékk
þá til að koma með söfnunargám
í húsið og þar fer vel um hann
innan um ruslagámana sem fyrir
eru. Við vildum jafnframt láta gott
af okkur leiða svo að skátastarfið
nyti góðs af en líka vegna þess að
það er umhverfisvænt að flokka
og endurvinna umbúðir. Það er
ansi drjúgt sem til fellur úr sextíu
íbúðum, en fólk kemur líka með
dósir úr sumarbústöðunum sínum
og fer með í söfnunargám skát-
anna niðri í ruslageymslu,“ greinir
Stefán frá.
Einu sinni skáti, ávallt skáti
Flösku- og dósagámi Grænu
skátanna hefur verið vel tekið hjá
íbúunum í Austurhlíð.
„Það er auðvitað þægilegt og
handhægt að geta skokkað niður
með dósirnar um leið og maður
fer með ruslið, í stað þess að þurfa
að rogast með stóra poka fulla
af flöskum og dósum í Sorpu. Ég
hef reyndar það sjónarmið að
við eigum ekki að þurfa að fara í
Sorpu. Íbúarnir eru því ánægðir
að hafa gáminn í húsinu og svo
fara peningarnir í kaffisjóð, því
þótt við gefum skátunum dósirnar
til endurvinnslu fáum við hluta
andvirðisins til baka. Það þarf
nefnilega að vera ávinningur fyrir
báða aðila svo fleiri taki sig til og
endurvinni þessar umbúðir, en nú
vantar okkur bara fatagám til að
geta endurunnið enn meira,“ segir
Stefán, ánægður með þjónustu
Grænu skátanna.
Hjá Stefáni sannast hið forn-
kveðna: einu sinni skáti, ávallt
skáti.
„Ég byrjaði níu ára í Skátafélagi
Reykjavíkur og 85 ára gamall er
ég enn í skátahópi sem kallar sig
Fet fyrir fet, en við göngum saman
einu sinni í mánuði og höfum gert
í þrjátíu ár. Við kynntumst þegar
við störfuðum öll sem skátar í
bröggunum við Snorrabraut. Svo
vorum við með skátaskála uppi á
Hellisheiði þar sem við stunduð-
um útivist og í skátunum var alltaf
lögð rík áhersla á að umgangast
náttúruna af virðingu, skilja
hvergi eftir rusl og ganga vel um
landið okkar,“ segir Stefán, sem
kynntist Pálínu konunni sinni líka
í skátunum.
„Við hjónin erum væn og græn
þegar kemur að umhverfisvitund.
Við eigum sumarbústað þar sem
við höfum verið með safnhauga
árum saman og við f lokkum allt
og endurvinnum eins og vera ber.
Við þurfum öll að vera samtaka í
því að halda náttúrunni hreinni
og ómengaðri, og þá er ekki verra
að hafa Grænu skátana í liði með
sér.“ n
Gott að hafa Grænu skátana í liði með sér
Stefán Gunnar Kjartansson segir ákaflega þægilegt að geta skotist niður í
ruslageymsluna heima til að losa sig við flöskur og dósir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Við vildum láta
gott af okkur leiða
svo að skátastarfið nyti
góðs af, en líka vegna
þess að það er umhverf-
isvænt að flokka og
endurvinna umbúðir.
Stefán Gunnar Kjartansson
Við erum jú sér-
fræðingar á þessu
sviði og fólk styður
samhliða góðan málstað.
Kristinn Ólafsson
og fólk er vant og fá allt andvirði
umbúðanna, en við fáum umboðs-
gjald frá Endurvinnslunni fyrir að
sjá um stöðina,“ útskýrir Kristinn.
Hann hvetur alla sem vilja losna
við vesen og sóðaskap í kringum
flöskur og dósir að hafa samband
við Græna skáta.
„Við erum jú sérfræðingar á
þessu sviði og fólk styður samhliða
góðan málstað,“ segir Kristinn
kátur. n
Nánari upplýsingar má finna á
dosir.is
kynningarblað 7MIÐVIKUDAGUR 5. október 2022 EndurvinnSla oG umhvErfiSvitund