Fréttablaðið - 05.10.2022, Blaðsíða 29
Það dylst engum að Audi e-tron GT er hannaður til aksturs enda bíllinn í senn lágur og straumlínulagaður.
Þaklínan er tekin mikið niður í aftursætum svo að augnlína farþega er komin
upp fyrir gluggann.
Ökumannsrýmið er vel hannað með þægilegum stjórnbúnaði og vel
formuðum sætum.
er reyndar minni en hjá keppi-
nautunum eða aðeins 10 tommur
en hann er fljótvirkur og með góða
upplausn og auðvelt að nota hann.
Framsætin eru bæði rúmgóð og
þægileg og kostur er hversu vel þau
styðja við ökumanninn. Plássið í
framsætum er líka yfirdrifið enda
bíllinn breiður og nóg er af hólfum
og þess háttar. Útsýni er hins vegar
eitthvað sem ekki er mikið af úr
e-tron GT bílnum. Það er nánast
sama hvert er litið í þeim efnum.
A-bitar eru stórir og fyrirferðar-
miklir og B-bitar við hlið öku-
manns svo að halla þarf sér fram
til að sjá aftur með bílnum. Maður
situr líka lágt í bílnum svo að erfitt
er að sjá fram á húddið og gera sér
grein fyrir því hvar það endar. Loks
er afturgluggi meira í ætt við skot-
rauf í vélbyssuhreiðri og ef ekki
væri fyrir góða bakkmyndavél og
fjarlægðarskynjara væri mjög erfitt
að bakka bílnum.
Eins og þessi upptalning sé ekki
nóg er einnig hægt að kvarta yfir
útsýni úr aftursætum en þar hefur
afturhallandi þaklína þau áhrif að
þegar meðalmaður situr í aftursæti
er þaklínan fyrir neðan augnlínu.
Ef ekki væri fyrir glerþak sem býr
til höfuðpláss er hætt við að vart
yrði við innilokunarkennd í aftur-
sætum. Að setjast inn í Audi e-tron
GT er ekki létt verk og helst á færi
kattliðugra einstaklinga. Áður-
nefndur B-biti er framarlega miðað
við stöðu framsæta og þess vegna
þarf að skáskjóta sér fram fyrir
hann með bakið um leið og sest
er niður í lágan bílinn. Það sama á
við í aftursætum þar sem hjólaskál
í yfirstærð hefur sömu áhrif. Það
er talsvert pláss í farangursrými
sem er nokkuð djúpt og rúmar vel
stórar töskur. Sá galli er þó á gjöf
Njarðar að rafdrifin vindskeið
tekur sitt pláss í skottlokinu svo
að ekki er hægt að setja setja hluti
í aftasta hluta rýmisins. Ef koma
þarf fyrir lengri hlutum er hægt að
leggja niður aftursæti 40/20/40.
Helsti keppinautur Audi e-tron
GT er án efa systurbíllinn Porsche
Taycan en einnig bílar eins og
Mercedes-Benz AMG 43 og jafnvel
Tesla Model S. Grunnverð Audi
e-tron GT er 13.990.000 kr. og er
þar um fjórhjóladrifsútgáfu ein-
göngu að ræða. Porsche Taycan
byrjar í 11.990.000 kr. hjá Bílabúð
Benna en grunnbíllinn er aðeins
með afturdrifi. Ekki er gefið upp
verð á fjórhjóladrifsbílnum. Til að
fá sambærilegan EQE þarf að fara
í 43 4MATIC sem er 4,2 sekúndur
í hundraðið. Sá bíll kostar þó
17.990.000 kr. en hægt er að lesa
um hann annars staðar í blaðinu.
Hjá Tesla er Model S aðeins boðinn
í Plaid útfærslu eins og er og kostar
þannig 16.264.000 kr. Ljóst er því
að talsvert fæst fyrir peninginn í
e-tron GT þegar horft er til sam-
keppninnar. n
Ertu að tengja?
Hleðsla rafbíla
Fáið löggiltan rafverktaka til að yfirfara og
aðlaga raflögnina áður en rafbíll er hlaðinn
í fyrsta sinn.
Hver tengipunktur má einungis hlaða einn rafbíl í einu
Hver tengipunktur skal varinn með yfirstraumvarnar-
búnaði sem einungis ver þennan tiltekna tengipunkt
Hver tengipunktur skal varinn með bilunarstraumsrofa
(lekastraumsrofa) sem einungis ver þennan tiltekna
tengipunkt
Bilunarstraumsrofinn ætti að vera af gerð B – þó má
nota gerð A sé jafnframt notuð viðbótarvörn
HMS mælir með að ekki séu notaðir hefðbundnir
heimilistenglar til hleðslu rafbíla
HMS mælir með að til heimahleðslu rafbíla séu notaðar
þar til gerðar hleðslustöðvar eða iðnaðartenglar
Stranglega er bannað að nota framlengingarsnúru,
fjöltengi eða önnur „millistykki“ við hleðslu rafbíla
Hleðslustrengir mega ekki liggja þar sem þeir geta
orðið fyrir hnjaski, t.d. yfir vegi, gangstéttar eða stíga
Ekki nota hleðslusnúru eða annan búnað sem hefur
skemmst
•
•
•
•
•
•
•
•
•
BÍLABLAÐIÐ 7MIÐVIKUDAGUR 5. október 2022