Fréttablaðið - 05.10.2022, Page 32
Í fyrri könnunum
hefur komið fram
að bílar með AEB-neyð-
arhemlun lenda í 50%
færri aftanákeyrslum.
Einnig virðist neyðar-
hemlun virka vel gagn-
vart fótgangandi en bílar
með neyðarhemlun
lenda í 27% færri óhöpp-
um þar sem um er að
ræða gangandi vegfar-
endur.
Hyundai Ioniq N
verður fyrsti raf-
drifni bíllinn frá N-deild
fyrirtækisins.
njall@frettabladid.is
BMW hefur frumsýnt nýja XM-
ofurjeppann ásamt því að tilkynna
um sérstaka Red Label-útgáfu hans
sem kemur á markað haustið 2023.
Grunnútgáfa XM mun koma með
vél sem skilar 644 hestöflum og
800 Nm togi en Red Label-útgáfan
verður með öflugri tengiltvinn-
útfærslu sem gefur honum 740
hestöfl og 1.000 Nm tog. Grunn-
útgáfan verður 4,3 sekúndur í
hundraðið en engar tölur hafa
verið gefnar upp fyrir Red Label-
útgáfuna.
XM-bíllinn var frumsýndur
sem tilraunabíll í fyrra og er mikið
til óbreyttur síðan að hann kom
fram. Hið svokallaða nýrnagrill að
framan heldur áfram að stækka og
er óhætt að segja að það sé mjög
stórt á XM-jeppanum. Framljósin
eru örþunn eins og á 7-línunni og
virðast þessi ljós komin til að vera
hjá BMW. Afturendinn er ekki eins
hvass og á tilraunabílnum en aftur
eru þunn og ílöng ljós áberandi.
Fjórir stútar eru á pústkerfinu,
tveir sitt hvorum megin og er þeim
raðað hverjum ofan á annan. Hægt
er að breyta hljóðinu úr pústkerf-
inu með flöpsum í sportstillingu
bílsins. n
BMW frumsýnir XM-ofurjeppann
njall@frettabladid.is
Hyundai er á leiðinni með öfluga
útgáfu af Ioniq rafbílnum sem fær
viðskeytið N eins og allir krafta-
bílar merkisins. Mun bíllinn notast
við tækni úr N Vision 74 og RN22e
hugmyndabílunum.
Ioniq N verður fyrsti rafdrifni
bíllinn frá N-deild fyrirtækisins.
Hyundai hefur staðfest að bíllinn
komi á markað á næsta ári en
engar tækniupplýsingar eru til-
tækar um bílinn ennþá. Búast má
við stærri loftinntökum að framan
til að kæla betur undirvagninn
þar sem rafhlaðan þarf að hafa
meira fyrir hlutunum. Markið
sem N-bíllinn hefur að miða við
er GT-útfærsla Kia EV6 sem er á
sama undirvagni. Þar hefur hann
577 hestöfl og 740 Nm tog, sem
skilar bílnum í hundraðið á 3,5
sekúndum. n
Hyundai Ioniq 5 N á næsta ári
Meðal þess öryggisbúnaðar
sem orðinn er algengur í
nýjum bílum er AEB-neyðar-
hemlun sem getur komið í
veg fyrir aftanákeyrslur.
njall@frettabladid.is
Samkvæmt nýrri könnun IIHS
í Bandaríkjunum hefur neyðar-
hemlun bíla sín takmörk, þótt
hún virki vel í f lestum tilvikum.
Í fyrri könnunum hefur komið
fram að bíla með neyðar-
hemlun (AEB) lenda í 50% færri
aftanákeyrslum. Einnig virðist
neyðarhemlun virka vel gagn-
vart fótgangandi en bílar með
neyðarhemlun lenda í 27% færri
óhöppum þar sem um er að ræða
gangandi vegfarendur.
Samkvæmt nýrri könnun AAA
í Bandaríkjunum virðist þó sem
slæm birtuskilyrði og meiri hraði
hafi áhrif á getu slíkra kerfa. AAA
framkvæmdi árekstrarpróf á
meiri hraða en IIHS gerir í sínum
prófunum, vegna þess að f lestar
aftanákeyrslur verða á stöðum
með 50-70 km hámarkshraða.
IIHS prófar neyðarhemlun við
aftanákeyrslu á 40 km hraða en
AAA jók hraðann upp í 50–70 km.
Notast var við algenga bíla eins
og Toyota RAV4, Ford Explorer og
Honda CR-V. Við prófun á 50 km
hraða gátu allir bílarnir stöðvað
eða hægt verulega á sér, þó að
Honda-jepplingurinn hefði
reyndar tvisvar ekið á prófunar-
bílinn á 30 km hraða.
Við prófun á 70 km hraða lentu
allir bílarnir í árekstri en með
mismunandi niðurstöðum. Ford
Explorer lenti aftan á í öllum
fimm prófununum en náði að
minnka hraðann niður í 20 km á
klst. Honda CR-V stóð sig betur á
meiri hraða og slapp tvisvar við
árekstur en hægði einnig vel á sér
í hinum tilfellunum. Toyota RAV4
náði að stoppa í fjögur skipti án
þess að til árekstrar kæmi en lenti
samt einu sinni í aftanákeyrslu
og það á 60 km hraða. Bílafyrir-
tækin eru f lest að þróa tækni sem
mun bæta þessar niðurstöður en
neyðarhemlun er samt ennþá að
slíta barnsskónum ef marka má
þessar niðurstöður. n
Neyðarhemlun hefur sín takmörk
RAV4 náði í fjögur skipti að sleppa við aftanákeyrslu á 70 km hraða en lenti á bílnum í fimmtu tilraun. MYND/AAA
BMW XM ofurjeppinn er með enn stærra nýrnagrilli en áður og sömu ör-
þunnum aðalljósum sem sáust fyrst í 7-línunni. MYND/BMW
Red Label-útgáfan verður 100 hestöflum öflugri og er rauður litur kringum
grill og glugga.
Um bíl svipaðan Kia EV6 GT verður að ræða enda deila þeir sama undirvagni.
MYND/AVARVARII
www.detailsetrid.is
Allt í bílaþrifin
á einum stað
Allar helstu vörur frá vörumerkinu GYEON
Upplýsingar og ráðgjöf veitir
Andri í síma 787-7888
eða andri@detailsetrid.is
10 BÍ L A BL A ÐI Ð 5. október 2022 MIÐVIKUDAGUR