Fréttablaðið - 05.10.2022, Qupperneq 35
Eftir að ég fór að
taka þetta inn hef
ég sjaldan prjónað jafn-
mikið.
Pálína Sigurlaug
Samkvæmt nýrri rann-
sókn sem birt er í tímaritinu
Aging-US geta einmana-
leiki og óhamingja verið
jafn hættuleg heilsunni og
reykingar. Viðkvæm geð-
heilsa hefur mikil áhrif á
öldrun fólks. Að vera niður-
dreginn og einmana getur
þannig flýtt fyrir öldrun.
elin@frettabladid.is
Bandarískir og kínverskir vísinda-
menn hafa fundið út að fólk getur
flýtt verulega fyrir öldrun sinni sé
það óhamingusamt, sofi illa eða
sé einmana. Niðurstöðurnar sýna
að öll meðferð til að bæta and-
lega líðan hefur góð áhrif til betri
heilsu. Niðurstöðurnar sýna einnig
að reykingafólk eldist mun hraðar
en þeir sem ekki reykja.
Helstu þættir sem flýta fyrir
öldrun eru:
n Kvíði og ótti
n Vonleysi
n Þunglyndi
n Skortur á einbeitingu
n Óhamingja
n Einmanaleiki
n Leiði
n Órólegur svefn
Að vera einhleypur og búa á
afskekktum stað er einnig áhættu-
þáttur er varðar hraðari öldrun.
Að búa langt frá heilsugæslu eða
annarri heilbrigðisþjónustu getur
sömuleiðis haft áhrif á öldrun.
Einhleypur maður sem reykir, er
óhamingjusamur og býr afskekkt
er líffræðilega fjórum árum eldri
en sá sem er hamingjusamur og
reykir ekki.
Geðræn heilsa er vanrækt í
heilbrigðiskerfinu en samkvæmt
niðurstöðu þessarar rannsóknar
skiptir hún eldra fólk mjög miklu
máli og hefur áhrif á lífsgæðin.
Andlegi þátturinn í líðan eldra
fólks ætti að fá mun meiri athygli
hjá heilbrigðisyfirvöldum til að
fyrirbyggja annars konar veikindi
og vanlíðan. „Andlegt og sálfélags-
legt ástand skiptir öllu máli þegar
kemur að framtíðarheilbrigði og
lífsgæðum fólks,“ segir Manuel
Faria, vísindamaður við Stanford-
háskóla í Bandaríkjunum, en vef-
miðillinn forskning.no greinir frá.
„Við eldumst mishratt og það
getur tengst genum en lífsstíll
vegur þó þyngst og það umhverfi
sem við búum í. Fólki, sem er dug-
legt að hreyfa sig, líður betur bæði
andlega og líkamlega. Allir vita að
reykingar stuðla að hrukkum og
lungnasjúkdómum en mataræði
og mengun eru einnig nei-
kvæðir þættir. Hægt er að hægja á
öldruninni með bættum lífsstíl,“
segir hann.
Fyrr á þessu ári setti Deep
Longevity á markað reiknivél
sem getur mælt sálfræðilegan
aldur fólks. Hægt er að greina
ástand líkamans og finna út hvort
líkamlega sé fólk eldra en aldur
þess segir til um. Markmiðið er
að greina aldurstengda sjúkdóma
snemma.
Eldra fólk getur bætt lífsgæði
sín til muna með hreyfingu. Því
miður er margt eldra fólk óvirkt
en aukin hvatning og vitund um
bætt heilsufar með hreyfingu ætti
að vera sérstakt forvarnarverkefni
heilbrigðisyfirvalda. Kyrrseta
er algeng og afleiðingar hennar
koma fram þegar fólk eldist ef það
hreyfir sig ekkert. Hvatning til
hreyfingar getur aukið til muna
virkni og sjálfsbjargarviðleitni
eldra fólks.
Ýmsar æfingar fyrir eldra fólk
geta bætt jafnvægi en mörg slys
verða einmitt þegar fólk dettur
jafnt heima sem utanhúss. Hreyf-
ing getur þannig stytt þann tíma
sem fólk þarfnast aðstoðar seint á
ævinni. Hreyfing getur sömuleiðis
komið í veg fyrir mikla notkun
verkja-, svefn-, þunglyndis- og
róandi lyfja. Með því að takmarka
kyrrsetu, til dæmis við tölvu eða
sjónvarp, er hægt að auka vellíðan
eldra fólks og möguleikann á því
að vera sjálfbjarga. Það þarf ekki
að stunda stífa líkamsrækt, göngu-
ferð í hálftíma á dag eða sundferð
getur bætt andlega og líkamlega
líðan. n
Andleg heilsa hefur áhrif á öldrun
Einmanaleiki fer
mjög illa með
eldra fólk og
getur flýtt fyrir
öldrun.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Pálína Sigurlaug Jónsdóttir
hóf að taka inn túrmerik-
og fjallagrasablönduna frá
ICEHERBS á síðasta ári.
Hún segir áhrifin hafa verið
gífurlega jákvæð og hyggst
taka hana inn um ókomna
framtíð.
Pálína er 73 ára ellilífeyrisþegi og
starfaði sem sjúkraliði. „Ég hætti
að vinna fyrir tíu árum vegna
slit- og vefjagigtar. Ég hef verið að
prufa ýmis efni sem hafa dugað
misvel en ég er með virkilegt
ofnæmi fyrir rækjuskel svo ég get
ekki tekið inn hvað sem er. Það
var svo systir mín sem benti mér
á vöruna í október síðastliðnum,“
segir Pálína.
Ákvað að slá til
Pálína segir þetta hafa verið sín
fyrstu kynni af túrmerik. „Eftir
að systir mín benti mér á þetta
fór ég að lesa mér til um túrmerik
og sá að það var bólgueyðandi. Ég
ákvað því að slá til.“
ICEHERBS býður upp á tvær
gerðir túrmerikblandna. Önnur
er sterkari og inniheldur svartan
pipar sem eykur upptöku túrm-
eriks margfalt. Hin er mildari og
inniheldur túrmerik ásamt fjalla-
grösum og er það blandan sem
Pálína tekur inn. „Ég tek blönduna
sem er með fjallagrösum þar sem
ég er með ofnæmi fyrir svörtum
pipar. Þetta eru tvö hylki sem ég
tek inn á morgnana.“
Pálína segir ávinninginn af
blöndunni hafa verið gríðarlegan
og fjölskylda hennar nýtur ekki
síður góðs af. „Ég er með slit- og
vefjagigt í höndum og fingrum og
þetta virkar andskoti vel á mig.
Ég prjóna mikið eða reyni það og
eftir að ég fór að taka þetta inn þá
hef ég sjaldan prjónað jafn mikið.
Ég er búin að vera að prjóna á full-
orðin barnabörn og maka þeirra
og það eru allir ákaflega ánægðir
með það sem þeir hafa fengið.“
Tengdadóttirin himinlifandi
Pálína lofar vöruna og greinir frá
því að blandan hafi enn fremur
haft jákvæð áhrif á fjölskyldumeð-
limi sína. „Ég mæli alveg hiklaust
með þessari vöru. Tengdadóttir
mín og sonur eru líka farin að
taka þetta inn en hún er líka
vefjagigtarsjúklingur sem labbar
mjög mikið eða um 10-15 kíló-
metra á dag. Hún tekur inn
sterkari blönduna sem er
með svörtum pipar, ásamt
með rauðrófuhylkjunum
og magnesíum frá ICE-
HERBS og þetta heldur henni
gjörsamlega gangandi.“
Árangursríkar blöndur
Túrmerik hefur verið notað í
Hef sjaldan prjónað jafnmikið
Pálína segir túrmerikblönduna hafa haft jákvæð áhrif á slit- og vefjagigt-
ina sem hún er með í höndum og fingrum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
þúsundir ára til þess að vinna gegn
ýmsum bólgum og sjúkdómum en
virka efnið, kúrkúmín, hefur sterk
bólgueyðandi og andoxandi áhrif.
Meðal kvilla sem túrmerik hefur
reynst vel gegn má nefna gulu,
uppþembu og vindgang ásamt því
það það getur lækkað blóðfitu og
blóðsykur.
Þá hafa bólgueyðandi eigin-
leikar túrmeriks gefið sérstaklega
góða raun gegn gigtarsjúkdómum
og liðverkjum auk þess sem það
örvar blóðflæði og hefur góð áhrif
á húðvandamál og sár.
Í sterku blöndunni er svartur
pipar sem margfaldar upptöku
túrmeriks en einnig er í boði
mildari blanda fyrir þá sem ekki
þola pipar. Báðar blöndurnar
innihalda fjallagrös en virkni
þeirrar lækningarjurtar hefur
gefið henni viðurnefnið ginseng
Íslands. Í fjallagrösum er að finna
svokallaðar betaglúkantrefjar sem
eru taldar aðstoða við þyngdartap,
draga úr bjúg, bæta meltingu og
styrkja þarmana, sér í lagi ristilinn.
Þau hafa meðal annars reynst
árangursrík gegn slímmyndun og
óæskilegum bakteríum.
Fjallagrösin gera ICEHERBS-
blönduna að ofurblöndu en þau
hafa öldum saman verið notuð
sem náttúruleg og viðurkennd
lækningajurt á Íslandi. Þau eru rík
að steinefnum og eru talin auka
skilvirkni í upptöku næringarefna
sem gera bæði innihaldsefnin
sterkari saman.
Íslensk og kröftug bætiefni
ICEHERBS er íslenskt fyrirtæki
sem leggur mikla áherslu á að
framleiða hrein og náttúruleg
bætiefni. Lögð er gríðarleg áhersla
á að vörur ICEHERBS nýtist
viðskiptavinum vel, að virknin
skili sér í réttum blöndum og að
eiginleikar efnanna viðhaldi sér að
fullu. Gríðarleg áhersla er lögð á að
vörurnar innihaldi engin óþarfa
fylliefni og eru vörurnar fram-
leiddar hér á landi. n
ICEHERBS fæst í öllum betri mat-
vöruverslunum, apótekum og
heilsuvöruverslunum og glæsi-
legri vefverslun iceherbs.is.
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 5. október 2022