Fréttablaðið - 05.10.2022, Page 48
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Á þessum degi, 5. október árið
1938, ógiltu þýsk yfirvöld öll vega-
bréf þýskra gyðinga. Á þessum
tímapunkti hafði „lokalausninni“
ekki verið hrint í framkvæmd,
enda rúm þrjú ár í Wannsee-fund-
inn, þar sem morðingjaófétin
lögðu á þau hrikalegu ráð. Gyðing-
ar urðu að skila inn vegabréfum
sínum og fengu í þeirra stað papp-
íra rækilega stimplaða með stóru
rauðu „J“ (Jude), auk þess sem allar
konur fengu millinafnið Sarah
og karlar Israel. Þetta einangraði
gyðinga enn frekar og auðveldaði
ofsóknir nasista á hendur þeim og
var þá þegar langt til jafnað.
Hrikalegar aðfarir nasista
höfðu þegar rekið fjölda fólks
á f lótta og fjölmargir sóttu um
hæli í nágrannalöndum Þýska-
lands. Mörgum var vel tekið, sér
í lagi í fyrstu, en smám saman
byrjaði gestrisnin að súrna. Þarna,
löngu fyrir hina eiginlegu helför,
gáfust nágrannarnir í Sviss upp
og það var að þeirra frumkvæði,
ekki nasistanna, að vegabréfin
voru afturkölluð. Tæpast hefur
nokkrum í svissnesku ríkisstjórn-
inni dottið í hug hvað fram undan
var, en, „the rest is history“.
Þessi fortíð rifjast upp fyrir
mér þegar ég gleðst yfir öflugu
viðbragði okkar vegna f lótta-
manna frá Úkraínu. Um þau ríkir
samstaða og ákveðni. Ennþá.
En við höfum lengi tekið við (of
fáum) f lóttamönnum lengra að og
heldur er umræðan orðið súrari
og fátæklegri um móttöku fólks
frá til dæmis Afganistan. Á þetta
benti meðal annars íslenskur
aðstoðarrektor í Kabúl, sem bar
saman fjölda og hraða móttöku
þeirra sem við bjóðum til okkar
frá Afganistan og þeirra sem koma
nú frá Úkraínu.
Útlit vegabréfsins skiptir ennþá
máli. n
Vegabréf
Önnu Sigrúnar
Baldursdóttur
n Bakþankar
GRÆNA RÖÐIN 06.10 Kl. 20:00
MIÐASALA Í HÖRPU OG Á SINFONIA.IS
Stolin stef
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN
Fín í Kringluna.
Fullkomin á Everest.
66north.is
Ný útgáfa af Tind fer í sölu fimmtudaginn 6. október
og kemur nú í GORE-TEX® Infinium efni sem er
vindhelt, vatnsfráhrindandi og andar. Tindur er
flóknasta og hlýjasta flík sem 66°Norður framleiðir
og tekur tvo daga í framleiðslu.