Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Page 22

Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Page 22
20 Símon fer loks út, sér hvers kyns er, rífur fyrir- hleðsluna úr gluggatóftinni og kallar til konu sinnar: „Fagurt sólarlag, Þórdís mín, ef þú vilt sjá það“. Þórdís hrást hin versta við og sagði: „Að þú skulir ekki stefna þeim, Símon“. Þá segir Simon: „Hverjum á að stefna og fyrir hvað? Fyrir það, að við fengum að sofa út?“ 44- SlMON var einu sinni staddm- á gamlárskvöld hjá Katli bónda í Kotvogi. Þar voru einnig tveir flökkukarlar, Pétur, sem kall- aður var tæfa, og Guðlaugur snikkari, sem hafði við- urnefnið brauðlangur. Hann var stór maður og sterkur. Símon fer nú að erta Pétur, þangað til hann reiðist, ræðst á Símon og hefur hann undir. Guðlaugur ætlar þá að hjálpa Símoni, en hann bregzt illa við og skorar á Pétur að ráðast með sér á Guðlaug. En svo fóru leikar, að Guðlaugur lék þá báða hart, einkum Símon, og flýði hann loks inn til hús- freyju illa til reika. Þegar Vilborg húsfreyja sér Símon, segir hún: „Mikil hörmung er að sjá þig, Símon minn! Þú ert allur rifinn og blóðugur“. „Þetta er þó snikkaraverk, Vilborg mín“, svarar Símon þá. 45- J KOTVOGI var um skeið vinnumaður, sem Kristján hét. Hann var Skagfirðingur.

x

Íslenzk fyndni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.