Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Blaðsíða 37
35
„Og hvemig lízt þér svo á?“ spurði Vilmundur
rogginn, þegar þeir höfðu gengið um húsið.
„Jú“, sagði Steingrímur. „Húsið er gott, og svo eru
anzi mikil þægindi fyxir þig að hafa garðinn svona
nálægt“.
81.
J£ONUR í kvennadeild Slysavamafélagsins á Isafirði
era áhugasamar um fjársöfnun til slysavarna og
verður oft vel ágengt í þeim efnum.
Þó er það svo, að sumar konur era ekki ánægðar
með árangurinn og telja, að betur mætti nýta starfs-
krafta félagskvenna.
Eitt sinn á félagsfundi stóð upp ein konan og hélt
langa hvatningarræðu. Endaði hún mál sitt þannig:
,,0g ég skal segja ykkur, kæra félagskonur, að það
er áreiðanlega hægt að brúka okkur miklu meira en
gert er“.
82.
JJRYKKHNEIGÐUR maður hafði um nokkurt skeið
verið í bindindi.
Hann mætti félaga sínum á götu og sagði:
„Síðan ég hætti að drekka, er ég farinn að fá kvef
og hálsbólgu og alls konar kvilla“.
„Já“, minnstu ekki á það“, svaraði hinn. „Ef ég er
ófullur í þrjá daga, verð ég farlama maður“.
83-
gUMT FÓLK hefur viljað sýna látnum vimnn ræktar-
semi með því að skreyta leiði þeirra jólaljósum.