Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Side 43
41
„Það er ómögulegt að kjósa hann Andrés. Hann er
svo drykkfelldur“.
96.
CjTEFÁN STEFÁNSSON túlkur, sem annars miklaðist
litt af kostum og hæfileikum Islendinga, sagði, að
eitt væri þó, sem sýndi, að dálitlar töggur væru í þeim.
Það væri það, að allir Gyðingar, sem flutzt hefðu
til landsins, hefðu orðið gjaldþrota.
97-
jgTEFÁN TtJLKUR taldi, að ævi mannsins skiptist
í þrjá kafla.
Fyrsta kaflann væru menn að upphugsa allt það
illt, sem þeir ætluðu að gera um ævina. Það kölluðu
menn æsku.
Annan kaflann væru merm að framkvæma þetta.
Það væru kölluð manndómsár.
Þriðja kaflann væru menn svo að iðrast eftir allt
saman, og væri það kölluð elli.
98.
^JTGEFANDI þessa rits sat nýlega við kaffidrykkju
með Páli Isólfssyni og spurði:
„Búið þið allir í sátt og friði nú, útvarpsmennimir?“
„I guðs friði“, svaraði Páll.
99-
^JIGFÍJS „VERT“ á Akureyri hafði ýmis einkennileg
orðatiltæki og vitnaði oft í ljóð og orðskviði.