Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Page 33

Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Page 33
31 „Ég hef að vísu séð lík rísa upp til hálfs í líkhúsinu11. „Já“, segir þá Jón með ákefð. „Það er í áttina“. 71- gTlNA LITLA hafði verið heldur kuldaleg í viðmóti við frænku sína, sem kom í heimsókn. Móðir hennar ætlaði að láta hana hæta úr með því að kveðja frænkuna virðulega, þegar hún fór, og sagði: „Hvað segir þú svo við hana frænku þína, Stína mín, þegar hún er að fara?“ „Guði sé lof“, svaraði Stína. 7 2. gKAGFIRÐINGUR einn flokkaði uppáhaldsmenn sína í þrjá flokka. Það voru hestamenn, hestamenn og kvennamenn, og í þriðja flokknum voru þeir fullkomn- ustu: Hestamenn, kvennamenn og ofstopamenn við vin. 73- ]£ONAN hljóp burt frá Sigurði hónda, og smalatíkin fylgdi henni. Heimkoma konunnar dróst, og sendi því Sigurður vinnumann sinn til að reyna að fá hana heim aftur. Þegar vinnumaðurinn var kominn út í túnfótinn, kallaði Sigurður á eftir honum svo hátt, að heyrðist á næstu bæi: „En umfram allt komdu heim með tíkina“.

x

Íslenzk fyndni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.