Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Síða 42
40
93-
JTEÐGAR tveir úr Hafnarfirði voru aldavinir Cog-
hills og jafnan með honum í markaðsferðum.
Þeir voru samnefndir og hétu báðir Böðvar.
Coghill kallaði þá aldrei annað en Stóra-Bölvað og
Litla-Bölvað.
94-
Q.UÐMUNDUR DÚLLARI og Hjálmar Lárusson tré-
skurðarmaðm- voru mestu mátar, og gisti Guðmund-
ur oft hjá Hjálmari.
Einu sinni komst Hjálmar að því, að Guðmundur
var lúsugur, og heimtar að mega gera ráðstafanir til
þess, að hann losni við lúsina, en Guðmundur er nú
ekki alveg á því.
Hann spyr Hjálmar, hvort hann haldi, að guð hafi
skapað lúsina tilgangslaust, og hvar hún eigi að lifa
annars staðar en á manninum.
„Ekki veit ég til, að maðurinn sé fæddur lúsugur",
segir þá Hjálmar.
Þá varð Guðmundi að orði:
„Þetta er öldungis rétt hjá þér, Hjálmar, því að
manneskjan er fædd ófullkomin“.
95-
^NDRÉS I SIÐUMULA og Davíð á Arnbjargarlæk
eru aldavinir og drykkjubræður, því að báðum þyk-
ir gott í staupinu.
Þegar Andrés bauð sig fyrst fram til þings, lét Davið
svo um mælt: