Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1988, Side 12
endur vilji hagnast sem mest, en ástæðan er ekki síður sú að
ódýrari lyf gætu valdið þvi að eigendur lyfjabúða misstu spón
úr aski sínum næðu þau útbreiðslu (vegna álagningarreglna) .
Þess má geta a.m.k. til skamms tíma voru sum innlendu
lyfjaframleiðslu- fyrirtækin í eigu lyfsala.
Unnt er að spara án þess að skerða nokkra þjónustu:
Fjölda dæma mætti nefna þessu til stuðnings. Fyrir fjölda ára
hóf Lyfjaverslun ríkisins framleiðslu á diazepam töflum, sem er
sama lyf og Valium. Verð diazepam var einungis 1/14 hluti af
verði Valium. Samt var áfram haldið að selja Valium og er
reyndar enn þann dag í dag. Verðmismunurinn er að visu ekki
eins mikill I dag, en Valium er þó enn margfalt dýrara.
Lyfjaverslun ríkisins framleiðir fjölda lyfja, t.d.
Haloperidol, sem er sama lyf og Haldol (frumlyf). í árslok 1986
var smásöluveró þeirra sem hér segir:
0,5 mg, 100 töflur
1 mg, 100 töflur
4 mg, 100 töflur
20 mg, 100 töflur
Haloperidol
119,70 kr
186,06 -
486,78 -
2.004,24 -
Haldol
363,98 kr.
591,13 -
2.131,96 -
7.148,08 -
í 20 mg styrkleika er verðmismunur á 1 pakkningu yfir 5 þúsund
kr. Samt er haldið áfram að selja Haldol hér á landi. Rétt er
að geta þess að Lyfjaverslun ríkisins hefur vel fyrir kostnaði
með þessari verðlagningu og fyrirtækið hefur auk þess skilað
hagnaði I ríkissjóð á undanförnum árum.
Þar til fyrir fáum árum fluttu 2 islensk fyrirtæki inn
fenoxlmetýlpenicillintöflur frá erlenda lyfjaframleiðandanum
Novo. Voru það Lyfjaverslun ríkisins' og Pharmaco hf. sem er
hlutafélag apótekara og fleiri lyfjafræðinga og meðal annars
umboðsaðili fyrir Novo hér á landi. Lyfið var flutt inn sem
samheitalyf og ekki skráð sem sérlyf. Skyndilega fékk
Lyfjaverslun ríkisins þetta lyf ekki lengur afgreitt frá Novo.
Skýringin kom nokkrum mánuðum slðar, en þá hafði
Lyfjaverslunin hafið innflutning og sölu á sams konar töflum
frá öðru erlendu fyrirtæki.
10