Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1988, Blaðsíða 52
09.10.1987
NEFNDARSKIPUN HEILBRIGÐISRAÐHERRA.
Aó tillögu landlæknis skipaði heilbrigóisráóherra nefnd í
upphafi árs 1987 til þess aó gera úttekt á verómyndun og sölu
lyfja þó sérstaklega m.t.t. smásölu.
Formaóur nefndarinnar var prófessor Brynjólfur Sigurósson.
I september 1987 skipaói Guómundur Bjarnason, heilbrigðis-
ráóherra, nýja nefnd meó viótækara verkefni eins og hér segir.
"Verkefni nefndarinnar eru nú þessi:
1. Aó draga upp heildarmynd af streymi fjármuna vegna lyfja
i þjóófélaginu.
2. Aó gera grein fyrir notkun lyfja hérlendis og bera hana
saman vió notkun lyfja i nágrannalöndunum.
3. Að bera saman innkaupsveró (eóa framleióandaverð) til
lyfjaheildsala á íslandi vió innkaupsveró (eða
framleióandaverð) til lyfjaheildsala í nágrannalöndunum.
4. Aó gera grein fyrir verómyndun lyfja á íslandi og bera
hana saman vió verómyndun i nágrannalöndunum.
5. Að gera grein fyrir þætti Tryggingarstofnunar rikisins
annars vegar og sjúkrasamlaga hins vegar i lyfjakostnaði.
6. Aó kanna áhrif ávisanavenja lækna á lyfjakostnaó.
7. Að setja fram hugmyndir um aógeróir, sem gætu leitt til
lækkunar á lyfjakostnaói, þar með talið hvaóa lyf væri
hugsanlegt aó framleiða hérlendis meó lægri tilkostnaói
en nemur verói lyfjaheildsala.
8. Aó athuga afkomu lyfjaverslana á smásölustigi eftir stærö
þeirra.
9. Aö bera saman mismunandi álagningakerfi og meta áhrif
þeirra á tekjumyndun i lyfjadreifingunni.
Ef nefndinni þykir úttektin gefa tilefni til, er óskaö
tillagna um nýtt fyrirkomulag álagningar er geti leitt til
lægra lyfjaverós. Alits nefndarinnar óskast einnig á þvi hvort
kostir samkeppni geti notið sin i lyfjadreifingunni til
hagsbóta neytendum og þá með hvaöa hætti."
I nefndinni eiga sæti prófessor Brynjólfur Sigurðsson,
formaöur, Guðjón Magnússon, aöstoóarlandlæknir, Guðmundur
Sigurösson, heilsugæslulæknir, Halla Eiriksdóttir ,
hjúkrunarfræöingur, Helga Vilhjálmsdóttir, lyfsali, Ingolf
Petersen, yfirlyfjafræöingur og Jón Bjarni Þorsteinsson,
heilsugæslulæknir.
50