Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1988, Side 60
rannsóknir og dýrar tilraunir. Þeaar fyrirtæki heppnast að
koma með nýtt lyf á markað liggja oftast að baki ærið margar
tilraunir sem ekki hafa leitt til árangurs. Verð nýja
lyfsins þarf þvi að vera langt fyrir ofan þá upphæð sem
framleiðslu- og sölukostnaði nemur, þ.e.a.s. lyfið verður að
bera kostnað við allar tilraunirnar, einnig þær sem misheppn-
uðust. Að sjálfsögðu ver fyrirtækið hagsmuni sína með því
að fá einkaleyfi, annað hvort á framleiðsluaðferðinni eða á
lyfinu sjálfu, en einkaleyfið gildir aðeins í ákveðinn
árafjölda og rennur þá út fyrir fullt og allt. Að þeim tima
loknum geta önnur fyrirtæki hafið framleiðslu á þessu lyfi,
enda liggja þá yfirleitt á lausu nauðsynlegar upplýsingar og
hráefni. Þess vegna miðast verð upphaflega lyfsins við að
framleiðandi þess fái "þróunarkostnaðinn" endurgreiddan og
riflegan hagnað að auki áður en einkaleyfisverndin rennur út
og önnur fyrirtæki geta hafið framleiðslu þess og sölu,
oftast á mun lægra verði. Þegar einkaleyfisverndinni lýkur
er samt sjaldgæft að upphaflegi framleiðandinn lækki verð
lyfs svo nokkru nemi, þótt samkeppni komi frá öðrum framleið-
endum, sem oft geta boðið lyfið á helmingi lægra verði.
Stafar það m.a. af þvi að læknar eru orðnir vanir að skrifa
gamla nafnið á lyfseðlana og þarf ríka ástæðu til þess að
þeir noti annað nafn yfir sömu vöruna. I raun nýtur upphaf-
legi framleiðandinn því áfram töluverðrar verndar gegn
samkeppni, nema stjórnvöld grípi í taumana.
Kynning lyfia - auglvsingar.
Lyfjaheildsalar beina kynningu lyfja einkum að læknum.
Auglýsingar eru ritskoðaðar af Lyfjaeftirliti ríkisins svo
sem eðlilegt hlýtur að teljast, en athugun hefur leitt í ljós
að það eru einkum dýr lyf sem auglýst eru x fagtímaritum
lækna. Mikill hluti lyfjakynningar fer fram á þann veg að
sölumenn heimsækja lækna, bjóða til "fræðslufunda" og jafnvel
"námsferða" til annarra landa. Er nú svo komið að mörgum
læknum þykir full langt gengið, sbr. nýlega samþykkt heimil-
islækna, enda er þeim ljóst hver ber kostnaðinn. Mun algengt
að jafnvel tugir prósenta af heildsöluverði lyfs séu ætlaðir
til söluhvetjandi aðgerða.
58