Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1988, Page 62
hlutdeild í ódýrustu vörumerklum hvers lvfs, eða þá að
framlagið miðist við ódýrasta vðrumerkið (sjúklingur getur
fengið dýrasta vörumerkið ef hann vill, en þá verður hanr.
lika sjálfur að greiða allan umframkostnað því samfara).
Þessi leið er þó ekki eins einföld í framkvæmd og hún sýnist
i fyrstu, en reynsla erlendis ætti að koma að notum. Á
tslandi breytist smásöluverð lyfja fjórum sinnum á ári og því
getur komið upp sú staða að fyrstu 3 mánuði ársins verði
vörumerki "x" ódýrast, næstu 3 mánuði verði það "z" o.s.frv.
Slík tilvik eru afar óheppileg og erfitt fyrir lækna að henda
reiður á þess háttar breytingum. Athyglisverð er sú aðferð
sem nú tiðkast viða í Bandarikiunum, b.e. að lvfiafræðinqum i
apótekum verði gert að afqreiða ódvrasta vðrumerki hvers
lvfs, iafnvel bótt dýrara vörumerkis sé qetið á lvfseðlinum.
Birgðahald heildsala og apóteka verður hins vegar erfiðara
þegar breytingar eru örar. Liklegt er að þessi leið verði
farin hérlendis, en i þvi sambandi skal minnt á mikilvægi
þess að þessi regla gildi um öll lyf sem afgreidd eru úr
lyfjabúðum, en ekki eingöngu um lyf sem skráð eru undir
samheitum.
3) I ljósi þess að rikissjóður greiðir lang stærsta hluta
lyfjakostnaðarins og er þar með hinn eiginlegi kaupandi
lyfjanna er ekki úr vegi að minna á að i eigu ríkisins er
fyrirtæki sem hefur aðstöðu til framleiðslu flestra lyfja-
forma. Hér er átt við Lyfjaverslun rikisins (L.R.). Aðstaða
L.R. til töfluframleiðslu er nú langt frá þvi að vera
fullnýtt, vegna þess hve litla markaðshlutdeild hún hefur.
Um tima reyndi hún að bjóða lægra verð en aðrir, en með fáum
undantekningum virtist það ekki hafa aðdráttarafl nema fyrir
sjúkrastofnanir (þetta má sannreyna með þvi að bera saman
lyfjaverðskrár og markaðshlutdeild einstakra framleiðenda
fyrir sama timabil).
Ljóst er að Lyfjaverslun rikisins getur framleitt
verulegan hluta þeirra lyfja sem hér eru seld og ekki eru
einkaleyfisvernduð, og selt á mun lægra verði en gildandi er
i dag (lyf sem nú eru framleidd af öðrum aðilurn). Rikis-
rekstur hefur hins vegar ekki þótt af hinu góða á siðustu
árum og fáir virðast hafa ihugað að i lyfsölu kunni að gilda
60