Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1992, Qupperneq 26
Hjólreiða-, bifhjóla- og fjórhjólaslys
Hjólreiðaslys á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Tryggvi Þorsteinsson, yfirlœknir, 1990.
Gerð verður grein fyrir áverkamynstri í sambandi við hjólreiðaslys á árinu 1989,
en þá leituðu 397 einstaklingar til Slysadeildar Borgarspítalans vegna þessara
meiðsla.
Tíu þurfti að vista á sjúkrahúsi og þar af einn vegna lífshættulegs ástands
(epidural heilablæðing). Meiðsli á höfði voru algeng, heilahristing fengu 33 og
voru fimm lagðir inn á sjúkrahús vegna þess. Fleiður og sár á andliti og hvirfli
voru 133. 39 hlutu brot á handlim, þar af 25 á framhandlegg. 11 fengu brot á
fótlim, þar af þrír um sköflung og þrjú liðhlaup eru skráð, átta fengu
viðbeinsbrot.
Flest voru slysin á aldurshópnum 0-14 ára eða 84%. Á umferðargötum eru skráð
90 slys og á þeim vettvangi meiddust sjö börn á aldrinum 0-4 ára og 30 börn á
aldrinum 5-9 ára. Flest urðu slysin á gangstíg eða annars staðar úti eða í 299
tilvikum, sem er rúmlega 77% tilvikanna.
Alvarlegustu slysin urðu í sambandi við árekstur við bfl á umferðargötu. Þannig
höfðu fjórir hinna innlögðu orðið fyrir bifreið.
Lagt er til að hvetja hjólreiðafólk til að nota hjálm og ennfremur að leggja aukna
áherslu á fræðslu varðandi hjólreiðar í skólum.
í Ástralíu hefur notkun hjálma við hjólreiðar barna verið lögleidd (Breska
læknablaðið, 1991). í Svíþjóð hefur þetta mál verið til mikillar umræðu en ekki
talið rétt að lögleiða hjálmanotkun fyrr en náð hefur verið 20-25% notkun. Lagt er
til að Umferðarráð stórauki fræðslu um notkun hjálma við hjólreiðar og að
foreldrar verði gerðir ábyrgir fyrir að bömin noti þá með lagabreytingu.
Bifhjólaslys unglinga
Brynjólfur Mogensen og Björn Zoéga, Slysadeild Borgarspítalans.
Bifhjólaslys eru rúmlega 7% allra umferðarslysa á höfuðborgarsvæðinu, en þau
hafa sérstöðu að því leyti, að oftast er um ungt fólk að ræða. Það þótti því ástæða
til að kanna nánar eðli bifhjólaslysa.
22