Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1992, Blaðsíða 28
Tíðni bifhjólaslysa (92 slys/1000 bifhjól) er margföld miðað við bifreiðaslys (19
slys/1000 bifreiðar), en áhættuminnst er að ganga (1 slys/1000 gangandi) (mynd
15).
Áhætta
15 ára unglingar hafa rétt til að læra á létt bifhjól (skellinöðrur). Þeir fá þá 10
stunda fræðilega kennslu og 6 stunda verklega kennslu hjá ökukennara. Náminu
lýkur með prófi. Oftast er aðeins verklegt nám fyrir vélhjólanema (þung bifhjól).
Æfmgabraut er ekki til á höfuðborgarsvæðinu.
Iðgjald af léttu bifhjóli er tæpar kr. 13.000 á ári, rúmlega 30.000 af þungu bifhjóli
og um 58.000 af venjulegri bifreið. Slysatryggingaupphæðin í iðgjaldinu er sú
sama hvort heldur um er að ræða bifreið, létt eða þungt bifhjól.
Umrœða: Mikil umfjöllun hefur verið um umferðarslys á síðustu árum og ekki að
ástæðulausu. Slysatíðnin er mikil og árlega valda umferðarslysin miklum fjölda
fólks andlegum og líkamlegum þjáningum. A hveiju ári látast í umferðinni á þriðja
tug einstaklinga og ennþá fleiri hljóta varanleg mein. Kostnaður þjóðfélagsins
vegna umferðarslysa mælist í milljörðum króna.
Tillitsleysi og/eða aðgæsluleysi í umferðinni virðist bitna verulega á ökumönnum
bifhjóla, sem em oftar en ekki í rétti.
Tíðni bifhjólaslysa er langt umfram þá sem lenda í bifreiðaslysum. Yfirleitt er um
yngri einstaklinga að ræða, þar sem flestir hafa að auki fengið mun minni
fræðilega- og verklega kennslu, áður en þeir fengu tilskilin ökuréttindi. Ekki hefur
enn tekist að búa til æfingasvæði á höfuðborgarsvæðinu, þrátt fyrir brýna
24