Morgunblaðið - 04.08.2022, Page 27
FRÉTTIR 27Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
Reykjavíkurborg leitar eftir samstarfsaðila um
þróun og uppbyggingu Toppstöðvarinnar í
Elliðaárdal
Stefnt er að því að starfsemin skapi nýjan og áhugaverðan
áfangastað í Elliðaárdal. Sérstök áhersla er lögð á samfélagsleg
verkefni sem eru opin almenningi. Dæmi um slíkt er frum-
kvöðlasetur, heilsueflandi starfsemi og sýninga-, menningar-
og fræðslustarfsemi.
Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að setja 200 milljón krónur í
viðhald og endurbætur á Rafstöðvarvegi 4 á næstu árum. Af
hálfu borgarinnar verður forgangur settur í aðgerðir sem lúta að
grunnviðhaldi og öryggismálum í húsinu.
Þróun og uppbygging Toppstöðvarinnar
Reykjavíkurborg auglýsir eftir áhugasömum samstarfsaðila
Gert er ráð fyrir að væntanlegur samstarfsaðili komi til viðbótar
að fjármögnun á endurbótum, umfram framkvæmdir borgarinnar,
sem eru nauðsynlegar til að búa það undir nýja starfsemi.
Ekki er gert ráð fyrir að byggt verði við húsið.
Óskir um vettvangsferð sendist á netfangið esr@reykjavik.is
Umsókn skal skilað eigi síðar en 8. september 2022.
Nánari upplýsingar um eignina má finna á reykjavik.is/fasteignir
Hugmyndaríkt samstarf og
jaðaríþróttir
VANTAR NÝJA MYND
Í haust er fyrirhugað að bjóða öll-
um 60 ára og eldri örvunar-
skammt af Covid-19-bóluefni.
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir
segir að ef ný bóluefni sem sniðin
eru að ómíkrónafbrigði veirunnar
koma í tæka tíð gæti bólusetning
gegn Covid-19 með þeim orðið
samhliða inflúensubólusetningu.
Bólusetningar verða áfram á
heilsugæslustöðvum landsins og
segir Óskar Reykdalsson, forstjóri
Heilsugæslu höfuðborgarsvæð-
isins, að bráðum verði birt áætlun
um framkvæmd þeirra í haust.
Sóttvarnalæknir hvetur fólk til
að þiggja fjórða skammtinn, sér-
staklega það sem er 80 ára og
eldra, heimilisfólk á hjúkrunar-
heimilum og eintaklinga með und-
irliggjandi ónæmisvandamál. Aðr-
ir sem óska þess geta einnig
fengið fjórða skammtinn, en þá
þurfa að lágmarki fjórir mánuðir
að hafa liðið frá þriðja skammti
bóluefnis.
Áætla bólu-
setningar
í haust
- Örvunarskammtur
fyrir 60 ára og eldri
Morgunblaðið/Eggert
Bólusetning. Fólk yfir áttrætt er
hvatt til að þiggja fjórða skammt.
Félagsstofnun stúdenta (FS) hefur
lokið haustúthlutun húsnæðis á
Stúdentagörðum. Í þetta sinn var
512 leigueiningum úthlutað til
rúmlega 550 stúdenta sem sækja
nám við Háskóla Íslands, sem er
það mesta frá upphafi. Umsækj-
endur um húsnæði í ár voru 1.854
talsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Félagsstofnun stúdenta. Á síð-
ustu tveimur árum hefur stofnunin
fjölgað leigueiningum sem nemur
312 með opnun Mýrargarðs,
stærsta íbúðarhúss á sama hús-
númeri á Íslandi og nýbyggingu
Gamla Garðs við Hringbraut. Hef-
ur stofnunin nú um 1.500 leiguein-
ingar til ráðstöfunar í dag, en þar
búa um 2.000 einstaklingar, þ.e.
stúdentar og fjölskyldur þeirra.
Um 650 manns eru nú á biðlista
eftir húsnæði, borið saman við 790
árið 2021. Framkvæmdir standa nú
yfir á Hótel Sögu þar sem 112 íbúð-
ir munu bjóðast stúdentum á næsta
ári. Framkvæmd við Lindargötu 44
er einnig hafin, en þar mun rísa
nýtt hús með 10 íbúðum og sam-
komusal. Félagsstofnun segir, að
næsta stóra byggingarverkefni
tengist uppbyggingu nýs hverfis í
Skerjafirði. Þar sé stefnt að því að
hefja byggingu á 107 þriggja her-
bergja íbúðum, en eftirspurn eftir
þeirri tegund íbúða hafi aukist um-
talsvert undanfarin ár.
Félagsstofnun stúdenta rekur
Stúdentagarða, Stúdentakjall-
arann, Bóksölu stúdenta, Hámu
veitingasölu og Leikskóla stúdenta
(Sólgarð, Mánagarð og Leikgarð).
550 stúdentar fá leiguíbúðir
Morgunblaðið/Kristinn
Stúdentaíbúð Leiguíbúð Mýrargarði við Sæmundargötu í Reykjavík.
- Stærsta haustúthlutun í sögu Stúdentagarðanna
Íslenska liðið í opnum flokki á ól-
ympíuskákmótinu, sem nú stendur
yfir í Chennai á Indlandi vann lið
Sambíu, 3,5:0,5, í 6. umferð mótsins
í gær.
Liðið er nú í 49. sæti af 186 liðum
í opnum flokki.
Íslenska kvennaliðið tapaði hins
vegar fyrir Indónesíu, 4:0, í gær.
Liðið er 80. sæti af 159 sem taka
þátt í kvennaflokki.
Í opnum flokki mætir Ísland liði
Ekvador í 7. umferð í dag. Kvenna-
liðið teflir við Tadsjikistan.
Eru í 49. sæti eftir
sigur á Sambíu
AFP
Að tafli Skáksalurinn í Chennai á Indlandi.