Morgunblaðið - 08.11.2022, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.11.2022, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. NÓVEMBER 2022 Sími 587 1717 www.sulatravel.is Stangarhyl 1 , 110 Reykjavík MIÐJARÐARHAF 12.-26. maí 2023 ALLT INNIFALIÐ Í ÖLLUM SIGLINGUM EKKI BORGA MEIRA EN ÞÚ ÞARFT Free at Sea YFIR ATLANDSHAF FRÁ NEW YORK 19. apríl til 9. maí 2023 MIÐJARÐARHAFIÐ 17.-29. nóvember 2022 RÓM OG GRÍSKA EYJAHAFIÐ 11.-23. ágúst 2023 JÓLASIGLING Í KARÍBAHAF 14.-26. desember 2023 MIÐJARÐARHAF 14.-26. maí 2023 GRÍSKA EYJAHAFIÐ FRÁ FENEYJUM 1.-14. ágúst 2023 LONDON REYKJAVÍK 3.-15. júní 2023 Gerum tilboð fyrir hópa og einstaklinga Nánar á www.sulatravel.is það hafi auðvitað verið áherslumun- ur milli flokka.“ Helstu áhugamál Helgu eru fjöl- skyldur barnanna hennar, vinirnir, ferðalög og félagsmál. Fjölskylda Eiginmaður Helgu er Örlygur Richter, f. 7.9. 1944, fv. skólastjóri. Þau eru búsett í Mosfellsbæ. „Við fluttum hérna upp eftir 1978 og það held ég að hafi verið gæfuspor og það hefur verið yndislegt að búa hérna. Við bjuggum í nærri 40 ár á sama stað og fluttum okkur svo núna í minni íbúð svo að við viljum ekki fara úr bæjarfélaginu. Þetta er okkar bær.“ Foreldrar Örlygs voru hjónin Ulrich Richter afgreiðslu- stjóri, f. 22.12. 1911, d. 26.11. 1993, og Margrét Richter húsmóðir, f. 22.10. 1909, d. 21.10. 2006. Þau voru búsett í Reykjavík. Börn Helgu og Örlygs eru 1) Aðal- steinn Richter, f. 17.5. 1974, rafvirki og sölumaður, búsettur í Mosfells- bæ. Maki: Suphaphorn Raknarong deildarstjóri. Barnabörn: Benedikt Magni Sigurðsson, f. 1996, Elísabet Sara Sigurðardóttir, f. 1999, og Örlygur Richter, f. 2009; 2) Rann- veig Richter, f. 8.8. 1978, kennari, búsett í Mosfellsbæ. Maki: Birgir D. Sveinsson sölufulltrúi. Barnabörn: Sunneva Björk Birgisdóttir, f. 2000, og Kolbrún Helga Birgisdóttir, 2009. Bræður Helgu eru Gunnar Aðal- steinsson, f. 13.11. 1949, fv. héraðs- dómari, búsettur í Hafnarfirði, og Stefán Aðalsteinsson, f. 3.9. 1962, rekstrarhagfræðingur, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Helgu voru hjónin Aðal- steinn Jónsson rafeindavirkjameist- ari, f. 23.9. 1922, d. 27.6. 1983, og Valgerður Stefánsdóttir skrifstofu- maður, f. 8.9. 1923, d. 3.12. 2012. Þau voru búsett í Reykjavík. Helga Aðalsteinsdóttir Richter Sigurrós Sveinsdóttir húsfreyja á Ísafirði Helgi Jóhannes Sigurgeirsson gullsmiður og leturgrafari á Ísafirði Guðrún Helgadóttir húsfreyja á Ísafirði Stefán Bjarnason skipstjóri á Ísafirði Valgerður Stefánsdóttir skrifstofumaður í Reykjavík Valgerður Stefánsdóttir húsfreyja í Dalbæ Bjarni Jónsson bóndi í Dalbæ í Hrunamannahreppi, Árnessýslu Ólafía Samúelsdóttir húsfreyja á Eskifirði og Reyðarfirði Konráð Kemp Lúðvíksson sjómaður á Eskifirði og Reyðarfirði Guðrún Kemp Konráðsdóttir húsfreyja í Reykjavík Jón Friðriksson smiður í Reykjavík Stefanía Kristbjörg Jónsdóttir vinnukona í Reyðarfirði og víðar Friðrik Eiríksson bóndi í Bakkagerði í Reyðarfirði Ætt Helgu A. Richter Aðalsteinn Jónsson rafeindavirkjameistari í Reykjavík Vísnahorn Sköpunarsagan ogmargt gott Ingólfur Ómar laumaði að mér þessari vísu og þarfnast hún ekki skýringar. Vínið blekkir margamenn mein sem þekkist víða. Sínum drekkja sorgum enn sálarhnekki bíða. Og líka þessari: Sónarbeði ljóma ljær linar streð og pínu. Óðs við gleði hugur hlær hlýnar geðimínu. Helgi R. Einarsson þakkaði mér fyrir grein blaðinu mínu á föstudag. „Í heita pottinum höfðu menn ýmsar skoðanir og því varð þessi til“: Lúxusvandamál Í Valhöll úr vöndu’er að ráða menn vilja hafa þá báða. Hvaða flokkar í flórunni okkar hafa frambærilegri snáða. Strákapör hafa áður skapað vanda: Móðurást Buxur tók og bol-af-onum, skítinn tókst að skol-af-onum. Sögu stutta segi’af Gutta, margt hún þurfti’ að þol-af-onum. Mógils Katan sendi mér vísu „Af krataþingi – nýtt nafn, ESB“: Ný föt vilja bræðurnir Möller og Mörður þámærður er Evrópusambandsins vörður. Nú vill hún Sambandið frysta eða svæfa Samjafnaðarfylkingin nýja og kræfa. „Sköpunarsagan í hnotskurn“ úr Sjöundu Davíðsbók Davíðs Hjálmars Haraldssonar: Er Guð bjó til einfaldan apann tók ómælistíma að skap’ann og þróa í mann enmaðurinn fann að bragði upp byssu og drap’ann. „Limra umKarl“ eftir Davíð Hjálmar: Hjá ilmandi ungmeyju lá Karl er óspurð hún byrjaði. „Já, Karl, ef langar þig að strax leyfi ég það“ og óðara heimtaði’ann hákarl. „Garðyrkjumannslimra“ eftir sama: Ég runngróður rækta og þekki, á rósummig spreyti sem hekki og frægt ermitt yrki af fjölstofna birki úr furu og gegnheilu tekki. „ÞEIR BUÐU MÉR STARFIÐ – MEÐ FYRIRVARA UM AÐ ÉG STÆÐIST BAKGRUNNSSKOÐUN.“ „GÓÐU FRÉTTIRNAR ERU ÞÆR AÐ ÞAÐ Á EKKI AÐ SEGJA ÞÉR UPP, EN ÞÆR SLÆMU ERU ÞÆR AÐ… ÞÚ ERT REKINN!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að óska þess að eiga einhvern til að knúsa. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞAÐ KEMUR ALDREI NEITT KRASSANDI FYRIR MIG BÍDDU HÉR Á MEÐAN ÉG FER OG NÆ Í KRUKKU AF ELDMAURUM OG ÉG VIL HALDA ÞVÍ ÞANNIG! ÞETTA ER EKKI EKTA PÓLÝNESÍSKUR MATUR! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.