Víkurfréttir - 11.05.2022, Blaðsíða 4
Háskólalestin
í Grindavík
LAUGARDAGINN 14. MAÍ KL. 12 TIL 16
· Þrautir og áskoranir
· Leikur með ljós og hljóð
· Vindmyllur og vængir
· Og fjölmargt annað
· Frábærar tilraunir
· Dularfullar efnablöndur
· Óvæntar uppgötvanir
· Undraheimar Japans
Fjör og fræði fyrir alla fjölskylduna!
Verið hjartanlega velkomin
– enginn aðgangseyrir
Vísindaveisla í Kvikunni, auðlinda- og menningarhúsi Grindavíkur.
Nánar á www.haskolalestin.hi.is
Fyrsta skóflustunga var tekin að
nýju 60 rýma hjúkrunarheimili
við Nesvelli í Reykjanesbæ síð-
asta föstudag að viðstöddum full-
trúum allra sveitarfélaga á Suður-
nesjum og heilbrigðisráðherra sem
mundaði skófluna með fulltrúum
yngri og eldri kynslóðarinnar.
Fyrirhuguð bygging verður
3900 m2 að stærð á þremur hæðum
og mun tengjast núverandi hjúkr-
unarheimili um neðanjarðar tengi-
gang og utandyra tengileið á öllum
hæðum á austur hlið. Á hverri hæð
byggingarinnar verða tvær sam-
tengdar tíu íbúa hjúkrunareiningar
sem hafa samliggjandi setustofur
sem val er um að hafa opið eða
lokað á milli. Þetta gefur tækifæri
til mikillar og góðrar samnýtingar.
Skipulag verður eins á öllum hæðum
fyrir utan í „miðkjarnum“ sem er
staðsettur á milli deilda norðan til í
byggingunni. Þar verður skrifstofum
forstöðukonu og deildarstjóra, fjöl-
notarými, vaktherbergi, samtalsher-
bergi og sjúkra- og íðjuþjálfun deilt
upp á milli hæða. Ef allt gengur að
óskum munu framkvæmdir geta
hafist í nóvember á þessu ári.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, sagði í ávarpi
að foorsaga þessa verkefnis væri
orðin nokkuð löng en hófst með
undirritun samkomulags hans og
Svandísar Svavarsdóttur, þá heil-
brigðisráðherra, í lok febrúar 2020.
„Síðan þá hefur undirbúningur
tekið lengri tíma en við ætluðum,
af ýmsum ástæðum sem vera ekki
raktar hér, en nú sjáum við fyrir
endann á þeim töfum og stefnum
að því að hefja framkvæmdir síðar
í sumar. Hjúkrunarheimilið á Nes-
völlum opnaði 14. mars 2014 og
leysti þá af hólmi Garðvang en hið
nýja hjúkrunarheimili verður 60
rými og mun leysa Hlévang af hólmi.
Færast 30 hjúkrunarrými þaðan og
svo fáum við 30 ný. Hlévangur upp-
fyllir ekki lengur nútíma kröfur og
með þessu nýja hjúkrunarheimili
verður þjónusta og aðstaða allra
heimilismanna sambærileg. Nú eru
40 manns á biðlista eftir hjúkrunar-
rými á Suðurnesjum. Kostnaður við
framkvæmdina skiptist þannig að
ríkið greiðir 85% og Reykjanesbær
15%. Góð samvinna hefur verið á
milli Hrafnistu og Reykjanesbæjar
á öllum sviðum.Leitast verður við
að hámarka gæði og þjónustu fyrir
íbúa við hönnun ný heimilis og gera
starfsaðstæður fyrir starfsfólk eins
góðar og hægt er. Þar sem Nesvellir
og Hlévangur eru í dag að samnýta
stoðdeildir eins og sjúkra- og iðju-
þjálfun og ýmsa stjórnunarþætti
þá styttast vegalengdir og boðleiðir
sem auka skilvirkni í starfseminni og
eykur alla yfirsýn og eftirfylgni með
tilheyrandi hagræðingu fyrir alla
aðila. Varðandi kröfur nútímans þá
er vel til þess horft á nýja heimilinu
t.d. varðandi nýja og betri tækni í
búnaði á baðherbergjum og áhersla
á góðan aðbúnað jafnt fyrir íbúa,
starfsmenn og aðstandendur. Horft
er til þess að stytta vegalengdir á
milli deilda svo hægt sé að vinna
vel saman á hverri hæð. Einnig að
sameiginleg rými og borðstofur liggi
saman en það gerir mögulegt að
halda viðburði án þess að þurfa að
fara með borðbúnað og húsgögn á
milli svæða. Málaflokkurinn er bæj-
aryfirvöldum mikilvægur og mikill
vilji til að byggja upp sem besta þjón-
ustu fyrir okkar elstu borgara,“ sagði
Kjartan Már.
Nýtt 60 rýma hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ
Nýtt hjúkrunarheimili leysir af Hlévang, eldra heimili í Keflavík. Staðsetning á Nesvöllum
tryggir góða samnýtingu og hagræðingu. 40 manns eru á biðlista eftir hjúkrunarrými.
Sveitarstjórnarfólk, þingmenn og frambjóðendur fjölmenntu á athöfnina.
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra,
Betsý Ásta Stefánsdóttir, formaður
Ungmennaráðs Reykjanesbæjar og
Guðrún Eyjólfsdóttir, formaður Félags
eldri borgara á Suðurnesjum tóku
fyrstu skóflustunguna. VF-mynd/pket
4 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM