Víkurfréttir - 11.05.2022, Side 6
Áfram-
haldandi
uppbygg-
ing leik-
skólanna
Valgerður Björk Pálsdóttir,
oddviti Beinnar leiðar
Hver eru helstu málefni ykkar
framboðs fyrir þessar kosningar?
Áframhaldandi ábyrg fjármála-
stjórn og fjölbreytt atvinnustarf-
semi. Efla markaðssetningu bæj-
arins fyrir fyrirtæki sem vilja vera í
nálægð við alþjóðaflugvöll, höfn og
höfuðborgarsvæði. Auka áherslu á
menningartengda ferðaþjónustu og
undirbúa byggingu menningarhúss
sem myndi hýsa m.a. bókasafn.
Áframhaldandi uppbygging leik-
skólanna. Munum tryggja að leik-
skólarnir tveir sem eiga að rísa á
næsta ári geri það. Einnig viljum
við halda áfram að bæta starfsað-
stæður í skólunum okkar og styðja
vel við þá sem vilja mennta sig
í leikskólakennarafræðum og
kennslufræðum.
Virkni og vellíðan allra í okkar
fjölbreytta samfélagi. Við viljum
gera frístundastefnu fyrir alla
aldurshópa, bjóða upp á hvata-
greiðslur til heilsueflingar fyrir eldri
borgara, skima fyrir þunglyndi og
kvíða í grunnskólunum og styrkja
innviði íþróttahreyfingarinnar.
Hvaða eitt, tvö málefni finnst
þér vera efst á baugi hjá íbúum
Reykjanesbæjar?
Leikskólamálin, skipulagsmál og
nærumhverfið og heilsuefling allra
aldurshópa.
Tryggja
viðun-
andi heil-
brigðis-
þjónustu
Halldóra Fríða Þorvalds-
dóttir, oddviti Framsóknar-
flokks
Hver eru helstu málefni ykkar
framboðs fyrir þessar kosningar?
Stuðla að virkni og vellíðan
í samfélaginu okkar m.a. með
hvatagreiðslum fyrir börn 4 ára
og eldri strax, tryggja dagvistun
fyrir börn frá 12 mánaða aldri í
náinni samvinnu við dagforeldra,
félagsmiðstöðvar í hverfin og móta
tómstundastefnu eldra fólks í sam-
vinnu við þann öfluga hóp.
Tryggja að hér sé viðunandi
grunnheilbrigðisþjónustu með fjöl-
þættum leiðum m.a. með því að fá
íbúa, stjórnendur og starfsfólk HSS
með okkur í lið til að bæta ímynd
stofnunarinnar og laða til hennar
enn fleira hæft starfsfólk. Reykja-
nesbær á að leiða samtölin þarna
og víðar í samfélaginu, við verðum
að gera þetta saman.
Byggja upp miðbæjarkjarna
með fjölbreyttri verslun, þjónustu
og afþreyingu í samstarfi sveitar-
félagsins og einkaaðila.
Hvaða eitt, tvö málefni finnst
þér vera efst á baugi hjá íbúum
Reykjanesbæjar?
Að setja fram skýra framtíðarsýn
í öllum málaflokkum sveitar-
félagsins, þor til að framkvæma í
takt við hana og að hér sé ábyrg
stjórnun bæjarstjórnar sem er
vinnusöm og heiðarleg.
Íbúar eru
hræddir
við breyt-
ingar
Friðjón Einarsson, oddviti
Samfylkingarinnar
Hver eru helstu málefni ykkar
framboðs fyrir þessar kosningar?
Tryggja agaðan rekstur í því
skyni að geta haldið áfram að bæta
innviði og tryggja framgang Reykja-
nesbæjar. Góður rekstur gerir
okkur kleift að byggja upp innviði
án skuldsetningar.
Nýtt aðalskipulag tryggir nýja og
raunhæfa stefnu í atvinnumálum
sem byggir á markaðssetningu
svæðisins og samstarfi við KA-
DECO. Horft verði frá stóriðju-
stefnu fyrri tíma.
Fjölskyldumál skulu ætíð vera í
forgangi. Hvatagreiðslur hafa marg-
faldast og svo mun vera áfram til að
tryggja aðgengi barna að íþrótta- og
tómstundastarfi og um leið verða
teknar upp hvatagreiðslur fyrir
aldraða og öryrkja.
Hvaða eitt, tvö málefni finnst
þér vera efst á baugi hjá íbúum
Reykjanesbæjar?
Hver verður bæjarstjóri? Það er
sú spurning sem ég fæ oftast. Við
erum með skýr svör, við viljum
halda núverandi bæjarstjóra,
Kjartani M. Kjartanssyni. Hann
hefur staðið sig frábærlega og hann
er okkar maður sem fyrr.
Íbúar eru hræddir við breytingar.
Erfiðleikar eftir fall WOW, og
COVID hafa tekið kraft úr íbúum.
Ég held að íbúar þrái stöðugleika og
jafnvægi eftir erfiða tíma.
Íbúalýð-
ræði og
óhagn-
aðardrifin
leigufélög
Ragnhildur L. Guðmunds-
dóttir er oddviti Pírata og
óháðra
Hver eru helstu málefni ykkar
framboðs fyrir þessar kosningar?
Íbúalýðræði – að íbúar fái tæki-
færi til þess að kjósa með raf-
rænum hætti í bindandi kosningu
um málefni sem eru umdeild og
jafnvel þverpólitísk. Var t.a.m. gert í
Árborg varðandi nýja miðbæinn.
Húsnæðismál. Við eigum að laða
að óhagnaðardrifin leigufélög að
norrænni fyrirmynd svo fólk hafi í
alvöru val á því hvaða húsnæði það
vill og hjá hverjum það vill leigja
húsnæði, öruggara húsnæði sem
verður ekki selt undan fjölskyldum.
Fjölga félagslegu húsnæði enda
ríflega 200 manns á biðlista eftir
slíku húsnæði.
Barnvænt samfélag og öflugur
stuðningur við fjölskyldur. Gjald-
frjáls leikskóli 5 ára – vilji til að
foreldrar greiði aðeins eitt gjald í
leikskóla yngri barna óháð fjölda
barna. Mjög mikilvægt að öll börn
fái tækifæri til frístunda óháð
efnahag foreldra.
Hvaða eitt, tvö málefni finnst
þér vera efst á baugi hjá íbúum
Reykjanesbæjar?
Helstu málefni sem íbúar eru
með í huga eru húsnæðismál, leik-
skólamál og heilbrigðismál.
Hlúa að
fyrirtækj-
unum
Margrét Sanders er oddviti
Sjálfstæðisflokksins
Hver eru helstu málefni ykkar
framboðs fyrir þessar kosningar?
Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf,
hlúa að þeim fyrirtækjum sem fyrir
eru. Stórauka fjárframlög til íþrótta-
mála
Leikskólamálin – Reykjanesbær
er með lengsta biðtíma á landinu
eftir leikskólaplássi skv. skýrslu
BSRB.
Hvaða eitt, tvö málefni finnst
þér vera efst á baugi hjá íbúum
Reykjanesbæjar?
Leikskólamál. Vantar meiri
jákvæðni hjá forsvarsmönnum
sveitarfélagsins. Tala þarf upp
sveitarfélagið og gera það að eftir-
sóttasta sveitarfélagi landsins.
Heilsu-
öryggi er
mál mál-
anna
Margrét Þórarinsdóttir er
oddviti Umbótar
Hver eru helstu málefni ykkar
framboðs fyrir þessar kosningar?
Heilsuöryggi er mál málanna eða
heilbrigðisþjónustan. Við erum öll
sammála um það. Við viljum skoða
alla möguleika í þeim efnum eins og
einkarekna heilsugæslu. Umfram allt
þarf að pressa á ríkisvaldið að fjár-
veitingar fylgi íbúaþróun og álagi.
Velferðarmál eru mál er varða
fjölskyldur, börn, eldri borgara og
eru baráttumálin okkar. Við viljum
sjá gjaldfrjálsar skólamáltíðir, jöfn
tækifæri til náms, frístunda- og
íþróttaiðkana. Úrræði til að auð-
velda innflytjendum að aðlagast
samfélaginu okkar. Finna leiðir til að
styrkja og styðja við dagforeldra því
á sama tíma eflum við atvinnulíf og
styðjum fjölskyldur. Forvarnir eru
okkur hugleiknar og viljum við fjöl-
breyttan stuðning við fjölskyldur,
eldri borgara og fatlaða.
Íbúalýðræði og aðhald í stjórn-
sýslu. Íbúarnir eiga að hafa rödd
um sitt nærumhverfi. Aðhald þarf í
stjórnsýsluna, sem hefur blásið út á
kjörtímabilinu.
Hvaða eitt, tvö málefni finnst
þér vera efst á baugi hjá íbúum
Reykjanesbæjar?
Heilbrigðisþjónustan. Hér hefur
verið óviðunandi ástand og það
hefur verið svoleiðis til fjölda ára.
Uppbygging innviða – íbúar hafa
verið að koma og bent á ástand
gatna, að það vanti daggæslu fyrir
börnin, fatlaðir hafa komið og óskað
eftir aukinni þjónustu, dagmæður
hafa tjáð áhyggjur sínar og svo hafa
bæjarbúar bent á hversu niður-
níddur bærinn er orðinn.
Hvað segja oddvitarnir í Reykjanesbæ?
Víkurfréttir sendu tvær spurningar á oddvita flokkana í Reykjanesbæ og bárust svör frá öllum nema oddvita Miðflokksins.
6 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM