Víkurfréttir - 11.05.2022, Síða 8
Nú líður að vertíðarlokum og nú
strax hafa nokkrir bátar yfirgefið
Suðurnesin, t.d eru Sandfell SU,
Hafrafell SU og Kristján GK allir
komnir austur á firði til veiða.
Svo til allir línubátarnir voru
á veiðum utan við Grindavík og
var veiðin hjá þeim góð, t.d var
Auður Vésteins SU með 66 tonn í
7 róðrum, Margrét GK 47 tonn í 7,
Óli á Stað GK 47 tonn í 7, Indriði
Kristins BA 46 tonn í 4, Daðey GK
45 tonn í 6, Vésteinn GK 35 tonn í
4róðrum, Geirfugl GK 26 tonn í 5,
Katrín GK 14 tonn í 3, Hópsnes GK
7,1 tonn í einum og Dúddi Gísla GK
35 tonn í 4 róðrum.
Reyndar þá fóru tveir bátanna
frá Grindavík til Sandgerðis og var
Gísli Súrsson GK með 9,5 tonn í
einni löndun og Sævík GK 7 tonn í
einni löndun,
Undanfarin ár hafa engir línu-
bátar af minni gerðinni verið gerðir
út frá Suðurnesjum og væri áhuga-
vert að sjá þó ekki væri nema einn
bátur sem myndi róa á línu frá Suð-
urnesjunum. Í það minnsta er fiskur
í sjónum og besta dæmið um það er
að stóru línubátarnir frá Snæfells-
nesi hafa allan apríl og núna í maí
verið á veiðum utan við Sandgerði
og gengið vel.
Annars er strandveiðitímabilið
hafið og þá fara ansi margir hand-
færabátar af stað og þeir eru nokkuð
margir núna. Langflestir eru í Sand-
gerði og lítum aðeins á nokkra. Gola
GK 1,7 tonn í 4, Tjúlla GK 1,6 tonn
í 3, Faxi GK 2,8 tonn í 3, Gréta GK
2,6 tonn í 4, Fagravík GK 2,1 tonn í
2, Stakasteinn GK 1,7 tonn í 3, Dóri
í Vörum GK 1,7 tonn í 2, Von ÓF 1,6
tonn í 2, Sörvi KE 1,2 tonn í 2 og
Kristín GK 1,1 tonn í 2 túrum. Allir
þessir handfærabátar hafa landað í
Sandgerði og til viðbótar þeim hafa
15 aðrir færabátar landað.
Enginn færabátur er í Keflavík en
í Grindavík eru 7 færabátar núna í
maí. Þar er Þórdís GK með 2,4 tonn
í 1, reyndar ekki á strandveiðum,
Grindjáni GK 1,6 tonn í 2, Hrappur
GK 1,6 tonn í 2 og Sæfari GK 1,1 tonn
í 2 róðrum.
Netabáturinn Erling KE er búinn
að vera að róa á netum núna í
maí frá Sandgerði og gengið bara
nokkuð vel. Er kominn með 116
tonn í 7 róðrum og mest 28,5 tonn.
Grímsnes GK er hættur netaveiðum
því hann er að fara á rækju eins og
greint var frá í síðasta pistli.
Lítið hefur sést til dragnóta-
bátanna og þá sérstaklega þeir sem
Nesfiskur á. Óvenjulega fáir róðrar
voru hjá bátunum í apríl, því allir
þrír bátarnir fóru aðeins í 4 róðra
hver bátur. Og núna í maí hafa þeir
ekkert farið á sjóinn, þangað til
núna þegar þessi pistill er skrifaður
í upphafi vikunnar, því þá eru Siggi
Bjarna GK og Benni Sæm GK á
sjónum.
Annars er pistlahöfundur staddur
núna í Stykkishólmi og það er hægt
að finna mjög margar tengingar við
Suðurnesin og Stykkishólm. Mun
hérna tæpa á nokkru. t.d að frá
Stykkishólmi var frá sirka 1970 og
fram til 1975 gerður út bátur sem
hét Arney SH. Þetta nafn Arney
er komið frá lítilli eyju sem er út
frá Stykkishólmi og eiginlega nær
Klofningi á Fellsströnd.
Í Sandgerði var í vel yfir 20 ár
gerður út mikill aflabátur sem hét
Arney KE og þar var Óskar skip-
stjóri í mörg ár. Voru tveir bátar sem
voru gerðir út undir þessu nafni
Arney KE og sá fyrri sem var með
sknr. 1014 var oft aflahæsti neta-
báturinn á landinu þegar kom að
hrygningarstoppinu í apríl en þá var
líka kvótinn svo til búinn á bátnum.
Það má geta þess að myndin sem
fylgir með er síðasta myndin sem
tekinn var af Arney KE, en hún
var tekinn 2017 á Hornafirði en
þá hét báturinn Ársæll ÁR, og var
þá að fara í brotajárn. Mikill afla-
bátur sem Suðurnesjamenn þekktu
mjög vel. Seinni Arney KE var lengi
Skarðsvík SH og sá bátur er ennþá
til í dag og heitir Sighvatur GK, en
búið er að breyta bátnum mikið frá
því að báturinn hét Arney KE.
Önnur tenging er að eitt elsta
sjávarútvegsfyrirtækið í Stykkis-
hólmi heitir Þórsnes ehf. og gerir
það út bát sem heitir Þórsnes SH.
Frá árinu 2012 til 2018 þá gerði fyri-
tækið út netabát sem hét Þórsnes
SH og sá bátur átti sér mjög langa
sögu á Suðurnesjunum því að hann
hét mjög lengi Keflvíkingur KE,
síðan Bergur Vigfús GK og Marta
Ágústdóttir GK. Og meira er hægt
að tengja við Þórsnes ehf. því í ansi
mörg ár hefur legið við bryggju í
Njarðvík bátur sem heitir Fjóla KE.
Hann var reyndar tekinn í slipp í
Njarðvík núna fyrir stuttu og allur
málaður og gerður fínn. Þessi bátur
var í hátt í 20 ár gerður út frá Stykk-
ishólmi og hvað hét hann þar, jú
Þórsnes SH. Þannig að já ansi margt
hægt að finna til um þessa tvo staði,
Suðurnesin og Stykkishólm.
aFlaFrÉttir á SuðurNESJuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.isá timarit.is
Um þrjátíu Suðurnesjabátar munu stunda strandveiðar í sumar en venju
samkvæmt hófst veiðin 2. maí en ekki er leyfilegt að róa á rauðum dögum.
Af þessum þrjátíu bátum eru átta í Grindavík og u.þ.b. tuttugu í Sandgerði
og Garði. Þó landa fleiri en 20 í Sandgerðishöfn en nokkrir sjóarar koma frá
höfuðborgarsvæðinu. Enginn strandveiðibátur gerir út frá Reykjanesbæ.
Víkurfréttir slógu á þráðinn til Einars Dagbjartssonar, flugstjóra og strand-
veiðimanns úr Grindavík en hann var í miðjum mokstri nálægt Eldey og mátti
lítið vera að því að tala við blaðamann. Hann sagði að veiðin hefði farið vel
af stað á þessu strandveiðitímabili og gott hljóð væri í strandveiðimönnum.
„Það er ástæða til bjartsýni með framhaldið,“ sagði Einar sem sendi okkur
mynd af miðunum en hann er til vinstri á myndinni.
Þetta er síðasta myndin sem tekinn var af Arney KE, en hún var tekinn 2017
á Hornafirði en þá hét báturinn Ársæll ÁR, og var þá að fara í brotajárn
Góð veiði hjá línubátunum
Þrjátíu á strandveiðum
Þrif í fiskvinnslu Samherja fiskeldi í Sandgerði
Samherji fiskeldi leitar að duglegum og jákvæðum einstaklingum til að
sinna þrifum eftir vinnslu í fiskiðjuveri Samherja fiskeldis í Sandgerði.
Um er að ræða 50–60% starf milli 17–21 á kvöldin og lengur ef þarf.
Helstu verkefni eru:
Þrif í vinnslu á vélum, færiböndum,
áhöldum ofl. sem tengist vinnslunni.
Þrifasvæði eru skipulögð hverju sinni
en lagt er áhersla á samvinnu og
róteringu starfsmanna milli svæða.
Starfsmenn munu heyra undir gæða-
stjóra.
Hæfniskröfur
• 18 ára lágmarksaldur
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Stundvísi
• Íslensku- eða enskukunnátta skilyrði
• Jákvætt ef viðkomandi hefur haft
reynslu af þrifum
Sótt er um á www.samherji.is/is/fyrirtaekid/starfsmenn/starfsumsoknir
Frekari upplýsingar veita;
Bergþóra Gísladóttir, bg@samherji.is, s. 696 – 8781.
Halldór Pétur Ásbjörnsson, hpa@samherji.is, s. 842 – 9476.
8 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM