Víkurfréttir - 11.05.2022, Síða 10
Vinsamlega sendið umsókn með starfsferils-
skrá og upplýsingum um meðmælendur til
elisabet@epal.is fyrir 15. maí nk.
Er þetta starf ekki
hannað fyrir þig?
Epal Design og Herrafataverzlun Kormáks
og Skjaldar óska eftir að ráða starfsmenn í
sameiginlega pop-up verslun á Keflavíkurvelli.
Um vaktavinnu er að ræða.
Við leitum að fagurkerum sem hafa reynslu af
afgreiðslustörfum, ríka þjónustulund, hæfni
í mannlegum samskiptum, eru skipulagðir,
sjálfstæðir og metnaðarfullir í vinnubrögðum.
Pop-up verslunin verður starfrækt í minnsta
kosti 4. mánuði.
POP-UP búð
á Keflavíkurflugvelli
Slökkvistöð Brunavarna Suður-
nesja hefur verið formlega vígð.
Íbúum Suðurnesja var boðið að
skoða slökkvistöðina um nýliðna
helgi og nýttu fjölmargir tækifærið
að skoða húsakost og tækjabúnað
slökkviliðsins. Brunavarnir Suður-
nesja fluttu inn í nýju húsakynnin
fyrir nokkrum misserum en vegna
heimsfaraldurs og strangra sótt-
varna á slökkvistöðinni hefur ekki
verið hægt að fagna flutningum í
nýja húsið fyrr en nú.
Séra Erla Guðmundsdóttir, sókn-
arprestur í Keflavíkursókn, blessaði
húsið og starfsemina. Hún afhenti
slökkviliðsstjóranum, Jóni Guðlaugs-
syni, bæn slökkviliðsmannsins við
sama tækifæri. Jón verður sjötugur
á þessu ári en við vígslu hússins lýsti
Friðjón Einarsson, stjórnarformaður
Brunavarna Suðurnesja, því að ráðn-
ingarsamningur við Jón hefur verið
framlengdur til ársins 2024. Það ár
mun Jón fagna því að hafa starfað
sem slökkviliðsmaður í hálfa öld.
Meðfylgjandi myndir voru teknar
við vígslu stöðvarinnar og í opnu
húsi fyrir Suðurnesjamenn.
Ný slökkvistöð BS vígð
Bílakostur Brunavarna Suðurnesja framan við nýja slökkvistöð í Reykjanesbæ.
Séra Erla Guðmundsdóttir, sóknarprestur í Keflavíkursókn, blessaði
húsið og starfsemina. Hún afhenti slökkviliðsstjóranum, Jóni
Guðlaugssyni, bæn slökkviliðsmannsins við sama tækifæri.
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, var viðstaddur vígsluathöfnina.
Friðjón Einarsson, stjórnarformaður
Brunavarna Suðurnesja og Jón
Guðlaugsson slökkviliðsstjóri. Hann er
70 ára á þessu ári en mun starfa sem
slökkviliðsstjóri í tvö ár til viðbótar og
láta af störfum 2024 þegar hann hefur
starfað sem slökkviliðsmaður í 50 ár.
Örn Bergsteinsson og Ellert
Eiríksson, báðir eldri slökkviliðs-
gaurar, mættu í fögnuðinn.
10 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM