Víkurfréttir - 11.05.2022, Síða 12
Gunnar Egill Sigurðsson, nýskipaður
forstjóri Samkaupa, kynnti nýlega
breytingar á framkvæmdastjórn
fyrirtækisins. Inn kemur nýr fram-
kvæmdastjóri auk þess sem breyt-
ingar eru á verkaskiptingu innan
framkvæmdastjórnarinnar. Sam-
kaup er ört stækkandi verslunarfyr-
irtæki með 66 verslanir um land allt,
þar af 30 á stórhöfuðborgarsvæðinu
og er tilgangurinn að skerpa á helstu
áherslum félagsins fyrir komandi ár.
Hallur Geir Heiðarsson mun taka
við sem framkvæmdastjóri innkaupa-
og vörustýringasviðs og kemur nýr
inn í framkvæmdastjórn Samkaupa.
Undir sviðið heyra vöruhús og inn-
kaupasamningar. Hallur hefur unnið
hjá Samkaupum í 25 ár og sinnt þar
margvíslegum störfum en frá árinu
2013 hefur hann gegnt starfi rekstr-
arstjóra Nettó. Hallur er í viðskipta-
fræðinámi við Háskólann á Bifröst.
Gunnur Líf Gunnarsdóttir tekur
við sem framkvæmdastjóri mann-
auðs- og samskiptasviðs auk þess
sem hún verður staðgengill forstjóra.
Undir sviðið heyra mannauðsmál, ytri
og innri samskipti og samfélagsleg
ábyrgð. Gunnur er með B.ed. gráðu í
grunnskólakennarafræðum og MBA
gráðu frá Háskóla Íslands. Gunnur
hefur starfað sem framkvæmdastjóri
mannauðssviðs Samkaupa frá árinu
2018.
Heiður Björk Friðbjörnsdóttir
verður framkvæmdastjóri fjármála-
og rekstrarsviðs. Undir sviðið heyra
öll fjármál og eftirlit með rekstri fé-
lagsins ásamt upplýsingatæknimálum.
Heiður er með B.A. gráðu í viðskipta-
fræði og MBA gráðu frá Háskóla Ís-
lands. Heiður hefur starfað sem fjár-
málastjóri Samkaupa frá árinu 2020.
Stefán Ragnar Guðjónsson tekur
við sem framkvæmdastjóri verslunar-
sviðs. Undið sviðið heyrir kjarnastarf-
semi félagsins sem eru verslanir Sam-
kaupa undir vörumerkjunum Nettó,
Krambúðin, Kjörbúðin og Iceland.
Stefán Ragnar hefur unnið hjá Sam-
kaupum í 25 ár. Hann hóf stjórn-
endaferil sinn sem verslunarstjóri hjá
félaginu árið 1997 en starfaði síðast
sem framkvæmdastjóri innkaupa-
sviðs. Hann er með B.A. gráðu í við-
skiptafræði og MBA gráðu í Retail
Management frá Stirling háskólanum
í Skotlandi.
Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri
Samkaupa: „Ég tel mikilvægt að nota
tækifærið við þessar breytingar
og skerpa á skipulagi félagsins. Ný
framkvæmdastjórn Samkaupa er
skipuð afar öflugu teymi stjórnenda
sem búa yfir víðtækri reynslu hvert
á sínu sviði. Framundan eru spenn-
andi tímar á matvörumarkaðnum. Við
höfum verið að fjölga þeim stöðum
þar sem við mætum viðskiptavinum
okkar. Netverslun Nettó sem fór í
loftið árið 2017 hefur vaxið hratt, tug-
þúsundir njóta nú sérkjara þegar þau
versla í gegnum Samkaupa-appið og
þá er sjálfvirknivæðingin í búðunum
okkar komin á góðan skrið. Við
fengum vissulega heimsfaraldur með
tilheyrandi samkomutakmörkunum
en við teljum að neytendahegðunin
hafi breyst til langframa. Nýsköpun er
eina leiðin til að lifa af og ég get lofað
því að neytendur eiga von á mörgum
nýjungum frá Samkaupum á næstu
árum.“
Breytingar á framkvæmdastjórn Samkaupa
Umferð um Keflavíkur-
flugvöll nálgast það sama
og fyrir heimsfaraldur
Umferð um Keflavíkurflugvöll fer
nú hratt vaxandi eftir mikinn sam-
drátt sem hófst vegna Covid-19
fyrri hluta árs 2020. Þess má
vænta að á komandi mánuðum
verði farþegafjöldinn farinn að
nálgast farþegafjöldann 2019.
„Tveggja ára samdráttarskeið er
vonandi á enda,“ segir Guðmundur
Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri
viðskipta og þróunar hjá Isavia í til-
kynningu frá Isavia.
Umsvif á Keflavíkurflugvelli hafa
farið vaxandi dag frá degi síðustu
vikur. Samkvæmt bráðabirgða-
tölum fyrir nýliðinn aprílmánuð var
farþegafjöldinn sem fór um Kefla-
víkurflugvöll 82% af því sem hann
var í sama mánuði 2019.
Íslensku flugfélögin Icelandair og
Play fjölga ferðum sínum og erlend
flugfélög sem buðu upp á flug til og
frá Íslandi fyrir heimsfaraldurinn eru
aftur mætt til leiks. Í sumar hafa 24
flugfélög boðað Íslandsflug frá 75
áfangastöðum í sumar.
„Endurheimtin er hraðari en
maður þorði að vonast eftir og út-
litið er gott, ef ekkert óvænt kemur
upp á. Auðvitað er það frábært ef
farþegafjöldinn verður 80-90% af
því sem við höfðum fyrir heimsfar-
aldur. Þetta eru góð tíðindi fyrir flug-
vallarsamfélagið allt, íslenska ferða-
þjónustu og efnahagslíf landsins,”
segir Guðmundur Daði Rúnarsson.
Hann segir ánægjulegt að öll flug-
félögin sem flugu til Íslands fyrir
heimsfaraldur sjá möguleikana sem
felast í því að taka þráðinn upp að
nýju. Ísland sé og verði eftirsóttur
áfangastaður. „Það mætti segja að
víðáttan, hreinleikinn og fleiri kostir
sem prýða Ísland sem áfangastað
hafi fengið aukna athygli nú þegar
heimsfaraldrinum er að ljúka. Því má
gera ráð fyrir að Ísland haldi sínum
hlut og gott betur þegar ferðaheim-
urinn hefur að fullu tekið við sér
aftur.“
Farþegar sem fara um Kefla-
víkurflugvöll í sumar verða varir
við að framkvæmdir standa yfir
við stækkun flugstöðvarinnar. Árið
2022 verður eitt stærsta fram-
kvæmdaár í sögu Keflavíkurflug-
vallar. Með þeim framkvæmdaverk-
efnum sem nú eru komin í gang og
þeim sem ráðist verður í á næstunni
erum við að halda áfram í sókn því
tækifærin eru mörg þegar kemur að
því að fjölga flugtengingum milli Ís-
lands og heimsins. Farþegaupplifun
mun batna verulega með 20.000
m2 viðbyggingu til austurs sem er
að rísa. Flugstöðin stækkar um 37%,
afköst farangurskerfis aukast mjög,
fleiri landgangar verða til og rými
fyrir verslun og veitingaþjónustu
verður meira.
Hallur Geir, Gunnur Líf, Heiður Björk og Stefán Ragnar.
ÍBÚARNIR Í FYRSTA SÆTI
VERTU Í LIÐI MEÐ OKKUR X-U
Velkomin í kosningakaffi
á kjördag að Hafnargötu 60
12 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM