Víkurfréttir - 11.05.2022, Qupperneq 13
KYNNING:
Samband sveitarfélaga á Suður-
nesjum hefur gefið út fræðslu-
myndbönd fyrir frumkvöðla en
markmiðið er að auka við stuðning
og nýsköpun til sprotafyrirtækja.
Myndböndin eru gefin út í sam-
starfi við landshlutasamtök og með
aðkomu Byggðastofnunar og er þeim
jafnframt ætlað að gera ráðgjafaþjón-
ustu samtakanna aðgengilegri.
Heklan, atvinnuþróunarfélag
Suðurnesja, starfar undir hatti SSS
að atvinnuþróun og veitir ráðgjöf
og stuðning til frumkvöðla á Suður-
nesjum. Geta frumkvöðlar þannig
pantað tíma í ráðgjöf og fengið að-
stoð við styrkumsóknir og gerð við-
skiptaáætlana svo eitthvað sé nefnt.
Að sögn Dagnýjar Maggýjar,
verkefnastjóra, er fræðslumynd-
böndunum ætlað að mæta þörf fyrir
stafræna fræðslu á tímum covid þar
sem færri hafa getað sótt sér ráðgjöf
en ella þótt hún fari jafnframt fram
á netinu.
Myndböndin voru framleidd af
stafrænu auglýsingastofunni Sahara
og hafa þau verið textuð á ensku og
pólsku til þess að ná til sem flestra.
Fræðslumyndbönd fyrir frumkvöðla
Að leggja
verk sín í dóm
Guðbrandur Einarsson,
fráfarandi oddviti Beinnar leiðar og alþingismaður.
Sveitarstjórnarkosningar eru að
mörgu leyti uppskeruhátíð, þar
sem kjósendur fá að segja sína
skoðun á því sem unnið hefur
verið að á kjörtímabilinu og
hverjum þeir treysta til þess að
stjórna sveitarfélaginu á næsta
kjörtímabili.
Þegar Bein leið var stofnuð blés
ekki byrlega fyrir sveitarfélaginu
okkar og lyfta þurfti grettistaki til
þess að koma því á réttan kjöl á
nýjan leik.
Bein leið skoraðist ekki undan
og hefur alveg frá upphafi tekið
þátt í fjárhagslegri endurreisn
sveitarfélagsins í meirihlutasam-
starfi.
Margt hefur áunnist á kjörtímabil-
inu og vil ég nefna nokkur atriði
sem staðfesta góðan árangur:
• Samkomulag við ríkið um bygg-
ingu nýrrar heilsugæslustöðvar
annars vegar og nýs hjúkrunar-
heimilis hins vegar í Reykja-
nesbæ
• Ný menntastefna „Með opnum
hug og gleði í hjarta“ sem hefur
vakið athygli út fyrir landstein-
ana fyrir framsækni og nýja
nálgun.
• Bygging Stapaskóla
• Nýsköpunar- og þróunarsjóður
fræðslusviðs settur á fót sem
veitir árlega styrki til tuttugu
nýsköpunar- og þróunarverk-
efna í leik- og grunnskólum
Reykjanesbæjar
• Systkinaafsláttur á skólamál-
tíðir frá árinu 2020 sem er
þannig útfærður að ekkert
heimili þarf að greiða með fleiri
en tveimur börnum. Með því er
komið til móts við barnmargar
fjölskyldur
• Afsláttur á gjöldum fyrir for-
eldra fjölbura hjá dagforeldrum
• Stigvaxandi hækkun á Hvata-
greiðslum sem auðveldar
börnum að taka þátt í fjöl-
breyttu íþrótta- og tómstunda-
starfi
• Stækkun á Öspinni um helming
til að sinna sértækum námsúr-
ræðum fyrir börn með miklar
stuðningsþarfir
• Stuðningur við starfsfólk í
réttindanámi í leik- og grunn-
skólum
• Fagháskólanám í leikskóla-
kennarafræðum í samstarfi við
menntavísindasvið HÍ, Keili og
sveitarfélögin á Suðurnesjum
• Endurnýjun útisvæðis og ný
glæsileg vatnsrennibraut í
Sundmiðstöðinni
• Nýr og glæsilegur gervigras-
völlur vestan Reykjaneshallar
• Aðstaða fyrir bardagaíþróttir á
Smiðjuvöllum
• Aðstaða fyrir nýtt borðtennis-
félag Reykjanesbæjar í gömlu
slökkvistöðinni sem og inniað-
staða fyrir Golfklúbb Suður-
nesja
• Tímamótasamstarfssamningar
við stóru íþróttafélögin Kefla-
vík og Njarðvík sem gera þeim
enn betur kleift að standa undir
mikilvægu forvarnar- og upp-
eldisstarfi sem og öflugu afreks-
starfi
• Endurskipulagning velferðar-
sviðs til að auka skilvirkni og
bæta þjónustu
• Lagðir margir kílómetrar af
heilsustígum
• Allar fasteignir keyptar af
Fasteign hf. og skólabyggingar
ásamt Hljómahöll komnar í eigu
sveitarfélagsins á nýjan leik
• Umhverfismálin sett á dagskrá
með nýrri umhverfis- og lofts-
lagsstefnu ásamt aðgerðará-
ætlun og innleiðingu Heims-
markmiða Sameinuð þjóðanna
Þetta og margt margt fleira hefur
áunnist á kjörtímatímabilinu þrátt
fyrir að staðið hafi verið frammi
fyrir stórum áskorunum vegna at-
vinnuleysis í kjölfar falls WOW air
og heimsfaraldurs.
Bein leið gefur kost á sér til
áframhaldandi góðra verka með
hópi einstaklinga sem hefur bæði
þekkingu og reynslu til þess að
leiða Reykjanesbæ fram veginn.
Nýtum okkur þá reynslu og setjum
X við Y á kjördag.
Hafnargata 57 / sími 422 8000 / verkis.is
ÞEKKING Í VERKI Í 90 ÁR
Traustir innviðir, byggðir upp í sátt við umhverfi og náttúru,
einfalda okkar daglegu athafnir og gera líf okkar betra.
Að baki uppbyggingunni liggur dýrmæt sérþekking,
stöðugt mat og ómæld vinna færustu sérfræðinga.
Saga okkar er samofin uppbyggingu íslensks samfélags
undanfarin 90 ár.
VIÐ BYGGJUM UPP SAMFÉLÖG
Reykjanesbær verður
ekki fyrstur með tölur
Fyrstu tölur úr sveitarstjórnar-
kosningunum hafa í síðustu skipti
verið frá Reykjanesbæ og tilbúnar á
slaginu klukkan tíu, eða strax eftir
lokun kjörstaða en verða líklega ekki
núna. Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir,
formaður yfirkjörstjórnar, sagði að
líklega yrðu fyrstu tölur um klukkan
hálf ellefu á laugardagskvöld.
Ástæðan er sú að ekki má núna
telja í búnt fyrir hvert framboð sem
hefur verið gert og hefur flýtt fyrir
en nú má aðeins flokka atkvæðin. Á
kjörskrá í Reykjanesbæ eru 14.646.
Í Suðurnesjabæ gera menn sér
vonir um að fyrstu tölur verðir til-
búnar kl. 22.15 að sögn Jennýjar Ka-
millu Harðardóttur. Á kjörskrá í Suð-
urnesjabæ eru 2.729. Í Grindavík má
búast við fyrstu tölum milli kl. 22.30
og 23.00 að sögn Kjartans Fr. Adolfs-
sonar, formanns yfirkjörstjórnar. Þar
eru 2.531 á kjörskrá. Í Sveitarfélaginu
Vogum eru eitt þúsund manns á kjör-
skrá og þar er von á fyrstu og loka-
tölum um kl. 23 að sögn Hilmars E.
Sveinbjörnssonar, formanns kjör-
stjórnar.
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 13