Víkurfréttir - 11.05.2022, Qupperneq 14
„Nú er liðið að lokum kjörtímabils bæjarstjórnar, þeirrar fyrstu í sögu Suðurnesjabæjar eftir sameiningu
Garðs og Sandgerðis. Það voru áhugasamir bæjarfulltrúar sem sátu fyrsta fundinn, fullir tilhlökkunar
fyrir því óskrifaða blaði sem hið nýja sveitafélag var. Framundan var fjöldi verkefna sem bæjarfulltrúar
sáu fram á, verkefni sem voru í senn flókin og spennandi. Enginn átti þó von á því stóra verkefni sem
kom í fang bæjarstjórnar og starfsfólks sveitarfélagsins þegar leið á mitt kjörtímabil, þegar heims-
faraldur Covid-19 skall á,“ segir í bókun Einars Jóns Pálssonar, forseta bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar,
sem lögð var fram á síðasta fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar.
Þá segir í bókuninni: „Samstaða
meðal bæjarfulltrúa hefur á þessu
kjörtímabili verið að mínu mati ein-
staklega góð. Við tókumst sameigin-
lega á við verkefnin, hvort heldur
þau sem við sáum fyrir og einnig
þau óvæntu. Það var og er gott að
finna fyrir þeirri samstöðu sem
hefur einkennt þessa bæjarstjórn
og ég er stoltur af starfi okkar þetta
kjörtímabil, þó eflaust megi alltaf
gera betur.
Ein breyting varð á bæjarstjórn á
miðju kjörtímabilinu þegar Ólafur
Þór Ólafsson sagði skilið við bæjar-
málin í Suðurnesjabæ og tók við
stöðu sveitarstjóra á Tálknafirði.
Nú þegar þessu kjörtímabili lýkur
verður mjög mikil endurnýjun í
bæjarstjórn, fimm bæjarfulltrúar
gefa ekki kost á sér og hverfa úr
bæjarstjórn. Þetta eru bæjarfulltrú-
arnir Hólmfríður Skarphéðinsdóttir,
Pálmi Steinar Guðmundsson, Daði
Bergþórsson, Fríða Stefánsdóttir
og Katrín Pétursdóttir, en þau hafa
mikla reynslu af sveitarstjórnar-
störfum og verður mikill missir af
þessu góða fólki. Ég þakka þessum
bæjarfulltrúum sérstaklega fyrir
mjög gott samstarf og mörgum
þeirra fyrir áralangt samstarf.
Fyrir hönd bæjarstjórnar Suður-
nesjabæjar þakka ég öllu nefndar-
fólki sem og starfsfólki sveitar-
félagsins fyrir störf þeirra og gott
samstarf á kjörtímabilinu. Vil ég þá
sérstaklega þakka bæjarstjóra og
ritara bæjarstjórnar ánægjulegt og
mjög gott samstarf.
Framtíð Suðurnesjabæjar er björt
og framundan eru spennandi tæki-
færi í þróun sveitarfélagsins. Við sem
hér búum vitum að það er hvergi
betra að búa og það er okkar að sjá
til þess að svo megi verða áfram.
Ég óska bæjarfulltrúum, starfsfólki
og íbúum Suðurnesjabæjar gleðilegs
sumars og farsældar,“ segir í bókun
forseta bæjarstjórnar.
Einstaklega góð samstaða
bæjarfulltrúa í Suðurnesjabæ
Íbúar komi að hugmyndum um
framtíð sundlaugarsvæðis
Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grinda-
víkur, sagði frá ástandi sundlaugarinnar og ástæðu bilunar um miðjan apríl
á fundi frístunda- og menningarnefndar í byrjun maí. Bæjarráð Grinda-
víkur hefur samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að hefja forhönnun á
sundlaugarsvæðinu samhliða gerð deiliskipulags.
Gert er ráð fyrir að seinni hluta maí geti íbúar komið hugmyndum sínum
um framtíð sundlaugarsvæðisins á framfæri. Í framhaldinu mun ný frí-
stunda- og menningarnefnd meta hvort taka þurfi upp þarfagreiningu vegna
framtíðaruppbyggingar sundlaugarsvæðisins frá 2019, segir í fundargerð
nefndarinnar.
Reykjanesbær með 12%
stofnframlag til Bjargs og Brynju
Bjarg íbúðafélag hefur lagt fram umsókn um stofnframlag frá Reykjanesbæ.
Málið var tekið fyrir í bæjarráði í síðustu viku. Lagt var fram erindi frá
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun þar sem óskað er eftir staðfestingu frá
Reykjanesbæ vegna umsóknar Bjargs íbúðafélags.
Bæjarráð samþykkir stofnframlag 12% af áætluðum byggingarkostnaði kr.
350.476.541. Brynja, hússjóður Öryrkjabandalagsins hefur einnig sent inn
umsókn um stofnframlag. Bæjarráð samþykkir stofnframlag 12% af áætluðum
byggingarkostnaði kr. 1.023.781.176.
Á síðustu fjórum árum hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn og Frjálst afl lagt
áherslu á að hækka rekstrarsamn-
inga við íþróttafélögin varðandi
rekstur valla en hefur ekki hlotið
hljómgrunn. Sérstakt er að sjá
samninginn hækkaðan núna korter
í kosningar. Sjálfstæðisflokkurinn
og Frjálst afl fagna því að hækkun
rekstrarsamningsins til knattspyrnu-
valla sé loksins kominn í höfn, segir í
bókun frá minnihluta bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar á fundi 3. maí.
Margrét Sanders Sjálfstæðis-
flokkur, Baldur Guðmundsson
Sjálfstæðisflokku, Anna Sigríður
Jóhannesdóttir Sjálfstæðisflokkur,
Gunnar Þórarinsson Frjálst afl.
Ársreikningur Reykjanesbæjar er nú
lagður fram til samþykktar og má með
sanni segja að margt komi á óvart í nið-
urstöðutölunum. Hagnaður af rekstri
bæjarsjóðs telst vera rúmir 2 milljarðar
en þegar tekjufærsla vegna yfirfærslu
eigna Eignarhaldsfélagsins Fasteignar
ehf. að upphæð 3,5 milljarðar er dregin
frá þá er niðurstaðan tap upp á 1.355
milljónir sem er mun betra en áætlað
var því búist var við 3 milljarða króna
tapi. Skatttekjur voru verulega vaná-
ætlaðar sem eru jákvæðar fréttir sem
og að framlög úr jöfnunarsjóði sveitar-
félaga jukust umfram væntingar.
Starfsfólki heldur áfram að fjölga
hlutfallslega umfram fjölgun bæjarbúa.
Stöðugildum fjölgar um 55 milli ára
eða um 5,8% á meðan íbúum fjölgar
um 3,6% og launakostnaður eykst
um rúmlega 12% á milli ára. Annar
rekstrarkostnaður eykst síðan um 14%
á milli ára skv. endurskoðendaskýrslu.
Heildarskuldir og skuldbindingar í
samanteknum ársreikningi námu um
45 milljörðum króna og hafa aukist um
5 milljarða síðustu 8 árin þrátt fyrir að
tekjur hafi aukist um 80,5%.
Í annað skiptið á þessu kjörtíma-
bili eru bókhaldslegar tilfærslur eða
sala á eignum Reykjanesbæjar að
rétta við rekstrarreikninginn. Árið
2019 skiluðu svokölluð Magma bréf
álitlegum hagnaði sem myndaði lang
stærsta hlutann af hagnaði þess árs
og gerði bænum kleift að fjármagna
byggingu Stapaskóla án lána. Nú eru
það eignir sem leyndust í Eignarhalds-
félaginu Fasteign ehf. sem hjálpa til
við uppgjörið. Eignir sem fullyrt er að
hafi verið seldar af fyrri meirihluta.
Í endurskoðunarskýrslu þeirri sem
lögð er fram með ársreikningi kemur
hið rétta fram, því að þar segja endur-
skoðendur: „Sömu eignir voru fyrir
á efnahagsreikningi bæjarsjóðs sem
leigueignir og var bókfært verð þeirra
umtalsvert lægra“. Bókhaldstilfærslur
mynda einnig verulegar tekjur í árs-
reikningi Reykjaneshafnar en þar er
tekjufærð niðurfelld skuld við bæjar-
sjóð að upphæð um 3 milljarðar króna.
Í fjárhagsáætlunargerð síðustu ára
hefur meirihlutinn stært sig af því að
vanáætla tekjur og ofáætla gjöld til að
hafa borð fyrir báru. En fyrr má nú al-
deilis rota en dauðrota þegar tekjur eru
vanáætlaðar um nærri tvo og hálfan
milljarð.
Við fögnum jákvæðri niðurstöðu á
rekstri bæjarsjóðs þó hann sé bundinn
þessum annmörkum sem hér er getið
en höfum áhyggjur af þeirri fjárhagsá-
ætlun sem nú er unnið eftir. Nú virðist
meirihlutinn hafa vanáætlað gjöldin
hressilega því í hverri viku er bæjarráð
að vísa erindum upp á tugi milljóna til
viðauka í fjárhagsáætlun.
Starfsfólki færum við þakkir fyrir
þrotlausa vinnu og gott samstarf við
gerð ársreiknings og fjárhagsáætlunar.
Margrét Sander, Baldur Guð-
mundsson, Anna Sigríður Jóhann-
esdóttir, Sjálfstæðisflokki, Gunnar
Þórarinsson, Frjálst afl , Margrét
Þórarinsdóttir, Miðflokki.
Hækka rekstrarsamninga við íþróttafélögin
Vanáætlaðar tekjur og ofáætluð gjöld
Frá fundi í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar.
Umræður um óánægju vegna aðgangskorta í kjölfar aðgangshliða í íþrótta-
miðstöðvum bæjarins voru á síðasta fundi ungmennaráðs Suðurnesja-
bæjar. „Börn muna illa eftir að hafa kortin með sér og umræður um hvort
það væri hægt að hafa möguleikann á hafa þau rafræn,“ segir í gögnum
fundarins.
Lagt er til að starfsfólk íþróttamiðstöðva sýni sveigjanleika þegar fólk
gleymir kortunum sínum og fulltrúar ráðsins kanni hvort möguleiki á að hafa
rafræna útfærslu á aðgangskortunum, segir í afgreiðslu fundarins.
Börn muna illa eftir aðgangskortum
Öflug
baráttukona
fyrir bæjarbúa
í bæjarstjórn
MARGRÉT ÞÓRARINSDÓTTIR
Tryggjum henni
góða kosningu
14 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM