Víkurfréttir - 11.05.2022, Qupperneq 18
Sóley Halldórsdóttir er sextán
ára og kemur frá Keflavík. Hún
æfir körfubolta og var í dansi
í átta ár. Sóley hefur gaman af
leiklist og dansi og vinnur á Joe
and The Juice. Hún stefnir að
því að stunda nám við Kvenna-
skólann eftir grunnskóla. Sóley
er ungmenni vikunnar.
Í hvaða bekk ertu? 10. bekk.
Í hvaða skóla ertu? Heiðarskóla.
Hvað gerir þú utan skóla? Ég æfi
körfubolta með Keflavík og vinn á
Joe and The Juice á flugvellinum.
Hvert er skemmtilegasta fagið?
Mér finnst skemmtilegasta fagið
vera enska vegna þess að Esther
kennari er meistari.
Hver í skólanum þínum er lík-
legur til að verða frægur og hvers
vegna?
Ábyggilega Kiddi af því hann er
nú þegar svaka TikTok gæi.
Skemmtilegasta saga úr skól-
anum: Skemmtilegasta sagan er
örugglega þegar ég, Melkorka
og Hildir, bekkjarsystkyni mín,
földum okkur inni hjá Írisi stærð-
fræðikennara og vorum að grenja
úr hlátri á bak við gluggatjöldin.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Ég myndi segja að Hildir bekkjar-
bróðir minn væri fyndnastur í
skólanum. Hann kemur alltaf með
eitthvað fáránlegt. Svo gaman að
honum.
Hver eru áhugamálin þín?
Áhugamálin mín eru mörg en
topp þrjú er klárlega leiklist,
dans og körfubolti.
Hvað hræðistu mest?
Ég er skíthrædd við tímann að
líða, þú veist, ég verð aldrei
aftur í 10. bekk ... Ég fer aldrei
aftur a nákvæmleg þennan
stað i útlöndum og ég mun
aldrei labba fram hjá þessu
fólki aftur.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Ég get varla svarað því, það
eru alltof mörg en ef ég verð
að velja eitt þá væri það
Wanna Know Remix - Dave og
Drake.
Hver er þinn helsti kostur?
Það er ekkert vandamál fyrir
mig að kynnast fólki og mér
finnst geggjað að eignast nýja
vini.
Hver er þinn helsti galli?
Ég nota stundum leiðinlegan
tón við fólk án þess að ég meini
það eitthvað illa.
Hvaða forrit eru mest notuð
í símanum þínum? TikTok og
Snapchat.
Hvaða eiginleiki finnst þér
bestur í fari fólks? Húmor.
Hvað langar þig að gera eftir
grunnskóla? Mig langar að fara
í skóla í bænum, ég er að hugsa
um Kvennó og ætla þá á félags-
vísindabraut.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í
einu orði hvaða orð væri það?
Ég myndi segja að ég væri, á
góðri íslensku, „outgoing“.
Deiliskipulag
í Reykjanesbæ
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi
5. apríl og 3. maí 2022 að auglýsa eftirfarandi
deiliskipulagstillögur í samræmi við 41. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Njarðvíkurhöfn - deiliskipulag
Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf. og Reykjaneshöfn leggja
fram deiliskipulagstillögu samkvæmt uppdráttum
Kanon arkitekta og VSÓ ráðgjöf dags. 23. mars 2022.
Greinargerð og umhverfismat koma fram á uppdrætti
ásamt skuggavarpi og rýmismyndum. Tillagan felst
í nýjum viðlegukanti, nýrri skipakví og landfyllingu
auk nýrrar umferðaraðkomu frá Fitjabraut. Tillagan er
auglýst samhliða endurskoðun Aðalskipulags.
Hafnargata 81, 83
og Víkurbraut 19
OS fasteignir ehf. leggja fram tillögu að breytingu á
deiliskipulagi samkvæmt upprætti JeES arkitekta ehf.
dags. 16. júní 2021. Helstu breytingar eru: Niðurrif
saltgeymslunnar fellur niður, heimilaðar er þrjár
hæðir fyrir þjónustu- og verslunarhúsnæði ofan á
saltgeymsluna, nýbygging tveggja 7. hæða fjölbýlishúsa,
í stað þriggja 5. hæða, breytingu á götuheiti lóðar
úr Hafnargötu 81, 83 og 85 í Hafnargata 81, 83 og
Víkurbraut 19. Tillagan er auglýst samhliða endurskoðun
Aðalskipulags.
Fitjar – nýtt deiliskipulag
Reykjanesbær leggur fram nýtt deiliskipulag fyrir Fitjar
samkvæmt uppdrætti Glámu - Kím dags. 31. ágúst
2021. Deiliskipulagssvæðið er u.þ.b. 29 ha að stærð
og afmarkast af lóðum við Fitjabakka og Fitjabraut til
norðurs, strandlínu til austurs, Njarðarbraut til vesturs
og suðurs og Víkingaheimum til suð-austurs. Markmið
skipulagsins er efla lýðheilsu í nánd við náttúru,
tryggja náttúruvernd og stuðla að náttúruskoðun.
Svæðið er eftirsótt útivistarsvæði og ríkt af fuglalífi.
Deiliskipulagstillagan sameinar uppbyggingu svæðis
fyrir atvinnulíf og heilsueflingu bæjarbúa í samræmi við
kröfur um náttúruvernd. Tillagan er auglýst samhliða
endurskoðun Aðalskipulags
Tillaga að deiliskipulag
orkuvinnslu og iðnaðar á
Reykjanesi
Hs Orka hf. leggur fram nýtt deiliskipulag á Reykjanesi,
unnin af VSÓ ráðgjöf ehf. Deiliskipulagið byggir á
gildandi deiliskipulagi og gerir ráð fyrir sömu borteigum,
vegum og mannvirkjagerð og eldra deiliskipulag. Í þágu
atvinnuuppbyggingar og þróunar Auðlindagarðsins eru
afmarkaðar nýjar lóðir við Lónsbraut til uppbyggingar
atvinnustarfsemi sem getur nýtt afgangsstrauma frá
Reykjanesvirkjun til fjölbreyttrar framleiðslu. Tillagan er
auglýst samhliða endurskoðun Aðalskipulags
Tillögur verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar
að Tjarnargötu 12 frá og með 12. maí til 30. júní
2022. Tillögur eru einnig aðgengilegar á heimasíðu
Reykjanesbæjar . Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að
gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir
við tillögurnar.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 30. júní
2022. Skila skal inn skriflegum athugasemdum
á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12
Reykjanesbæ. Eða á netfang skipulagsfulltrúa
skipulag@reykjanesbaer.is
12. maí 2022
Skipulagsfulltrúi Reykjanesbæjar
Lárus Logi er nítján ára Keflvík-
ingur, hann fæddist í Bandaríkj-
unum og átti heima í Kanada í
þrjú ár. Lárus hefur gert garðinn
frægan á samfélagsmiðlinum
TikTok en hann er með um það
bil ellefu þúsund íslenska fylgj-
endur á forritinu. Hann hefur
gaman af því að búa til hin ýmsu
myndbönd fyrir TikTok og segir
sjálfur að „egóið fljúgi í gegnum
þakið“ þegar fylgjendur hans
skilja eftir skemmtileg ummæli.
Lárus Logi er FS-ingur vikunnar.
Á hvaða braut ertu? Ég er á húsa-
smíðabraut á þriðja ári.
Hver er helsti kosturinn við FS?
Helsti kosturinn við FS er sá að
það tekur mig þrjár mínútur að
labba í skólann.
Hvaða FS-ingur er líklegur til að
verða frægur og hvers vegna?
Betsý Ásta mun verða fræg því
hún verður forseti bráðlega.
Skemmtilegasta sagan úr FS:
Fyndnasta sagan úr FS er þegar
ég sá átta aðila hjálpast við það
að svindla á stærðfræðiprófi.
Það sem var gaman við að sjá
það var hversu skipulögð þau
voru, það voru tveir að skiptast
á við að trufla kennarann, ein að
gera prófið og restin að dreifa
svörunum.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Ég tel fyndnasta mann skólans
vera Gabríel Má.
Hver eru áhugamálin þín?
Ég er með ekki með nein
áhugamál einmitt núna.
Hvað hræðistu mest? Það sem ég
hræðist mest eru mávar.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Uppáhaldslagið mitt er „Ef þeir
vilja beef“ eftir Daniil.
Hver er þinn helsti kostur?
Minn helsti kostur eru fylgjend-
urnir mínir á TikTok.
Hver er þinn helsti galli? Minn
helsti galli er að vera þunglyndur.
Hvaða forrit eru mest notuð í
símanum þínum? Mest notuðu
forritin hjá mér eru TikTok og
Brawl Stars.
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur
í fari fólks? Sá eiginleiki sem ég
tel vera bestur í fari fólks er hrein-
skilni.
Hver er stefnan fyrir framtíðina?
Stefnan mín fyrir framtíðina er að
kaupa fleiri skópör.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í
einu orði hvaða orð væri það?
Orðið sem ég tel lýsa mér best er
skræfa.
FS-ingur vikunnar: Lárus Logi Elentínusson
Ung(m
enni) vikunnar: Sóley Halldórsdóttir
Ellefu þúsund
íslenskir fylgjendur
Á sér mörg áhugamál
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma.h.hermannsdottir@gmail.com
18 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM