Víkurfréttir - 11.05.2022, Blaðsíða 19
Hvað merkir orðið skóli? Er það
hús – eða er það stofnun? Ragnar
H. Ragnar og Sigríður, kona hans,
ráku Tónlistarskóla Ísafjarðar af
skörungsskap í áratugi. Allan þann
tíma átti skólinn ekki hús heldur
fór kennslan fram víða um bæinn,
m.a. heima í stofu hjá þeim hjónum.
Orðtæki Ragnars var: „Skóli er ekki
hús!“.
Margir telja skóla vera hús. Hér í
sveit hafa verið byggð mörg hús fyrir
barnaskóla og grunnskóla og öll bera
þau nafnið skóli. Fyrstan má nefna
Thorkilliibarnaskólann í Vatns-
leysustrandarhreppi, sem fékk fljótt
nafnið Suðurkotsskóli. Það hús var
stækkað úr 54 m2 í 82 m2 árið 1886
og endurbyggt á sama grunni 1907,
án þess að nafnið breyttist. Í bréfi
Ögmundar Sigurðssonar prófdómara
frá 1909 er Suðurkotsskóli nefndur
Brunnastaðaskóli, enda er Suðurkot
í Brunnastaðahverfi. Einhvern tíma
nálægt 1930 tekur Brunnastaða-
skólanafnið alveg yfir. Árið 1944
var byggt nýtt og stærra skólahús,
um 50 m frá því eldra, og áfram talað
um Brunnastaðaskóla. Það er nú
íbúðarhúsið Skólatún. Árið 1979 var
var skólinn fluttur úr Brunnastaða-
hverfi í Voga, byggt þar nýtt 700 m2
skólahús sem síðan var tvöfaldað að
stærð 1998 og aftur 2005. Það hús
er byggt í túni höfuðbólsins Stóru-
Voga og heitir því Stóru-Vogaskóli.
En þar með er ekki öll nafna- og
húsasagan sögð, því tvívegis var
byggt annað minna skólahús í barn-
mörgu hverfi, fyrst Norðurkotsskóli
í Kálfatjarnarhverfi 1903 og síðan
Vatnsleysuskóli í samnefndu hverfi
1912. Það má lengi deila um hvort
þetta sé allt sami skólinn eða hvort
þetta séu 3, 4, eða 5 skólar!
Þó að í Vatnsleysustrandarhreppi
væru fjölmenn hverfi var hrepp-
urinn í heild það strjálbýll að erfitt
var að stefna öllum börnum á einn
stað áður en skólaakstur kom til.
Mörg börn þurftu að ganga í hálf-
tíma, jafnvel klukkutíma í skólann,
í vetrarveðrum! Börn úr fjarlægustu
hverfunum þurftu annað hvort að
búa í skólarisinu eða fá inni á ná-
lægum bæjum. Njarðvíkingar gáfust
fyrstir upp á því og stofnuðu eigin
skóla, fyrst 1875.
Síðar var tekin upp eins konar
farkennsla í Kálfatjarnarhverfi,
þaðan sem var um 40 mín. gangur
í Brunnastaðahverfið. Kennt var í
stofunni á Þórustöðum 1893 – 1900,
síðan í Landakoti 1900 – 1903. Var
til þess ráðinn annar kennari, Jón
Gestur Breiðfjörð og síðan Magnús
Jónsson, eftir að Jón Gestur tók við
Suðurkotsskóla. Reyndar virðast oft
hafa starfað tveir kennarar samtímis
frá 1884 og ekki ljóst hvort báðir
kenndu í skólahúsinu eða hvort
annar gat hafa verið farkennari á
einhverjum bæjum.
En þetta þótti ekki fullnægjandi
og árið 1903 var slegið lán hjá Thor-
killiisjóði (öðru sinni) og ráðist í að
byggja annað skólahús, í Norðurkoti í
Kálfatjarnarhverfi, 25 m2, 9 x 7 álna
bárujárnsklætt timburhús. Skólinn
átti neðri hæðina, en í risinu var
íbúð. Þar hófst kennsla um haustið
í Norðurkotsskóla auk móður-
skólans í Suðurkoti í Brunnastaða-
hverfi. Þann vetur kenndi Þórður
Erlendsson 28 börnum 7-14 ára í
Suðurkoti og Sigurgeir Sigurðsson
19 börnum 8-14 ára í Norðurkoti.
Var kennt í þessu nýja húsi í 7 ár, til
vors 1910, og nemendafjöldinn allt
upp í 20 – í 15 m2 skólastofu! Vet-
urinn 1908-9 voru þar 12 stúlkur og
7 drengir, öll á eldra stigi, og Árni
prestur kennari, kenndi m.a. söng
og leikfimi.
Börnin í Kálfatjarnarhverfi uxu
úr grasi og þetta vor var kennslu
þar hætt, Norðurkotshúsið selt sem
íbúðarhús. Samkv. kaupsamningi
dags. 27.1.1911 selur skólanefndin
„Guðmundi Guðmundssyni hrepp-
stjóra á Landakoti þann hluta (neðri
hlutann) úr íbúðarhúsinu í Norður-
koti við Þórustaði, sem er eign
barnaskólans hér í hreppi og, sem
notað hefur verið til barnakennslu
nokkur undanfarin ár...“ Efri hæðin
mun hafa verið íbúð - hugsanlega
fyrir kennara – og liklega í einka-
eigu, en 26. 10. 1910 er Haraldur
Sigurðsson kennari krafinn bréflega
um að fjarlægja þaðan hey!
Þá um haustið 1910 var hafin
kennsla á Vatnsleysu, en þá voru
þar barnmörg, fátæk heimili. Var
steinsteypt þar lítið skólahús 1911
og kennt þar til 1914. Þar kenndi
Kristmann Runólfsson frá Hlöð-
versnesi; og síðan Ingvar Gunn-
arsson frá Skjaldarkoti, en hann varð
síðar kennari í Hafnarfirði. Eftir ára-
tugs hlé var kennt þar samfellt árin
1925–1943, en þá hófst skólaakstur
og eftir það var öllum börnum kennt
á einum stað, í Brunnastaðahverfi.
Segir nánar frá Vatnsleysuskóla
síðar.
Á árunum 1934-38 var kennt á
þremur stöðum. Auk Vatnsleysu-
skóla og Brunnastaðaskóla var
yngstu börnunum kennt í nýbyggðu
félagsheimili, Kirkjuhvoli, og einnig
kennd þar leikfimi – og kennt ungl-
ingum - vegna plássleysis í Brunn-
astaðaskóla, en aðeins er 10 mínútna
gangur þar á milli. Kenndi Stefán
Hallson þau ár til skiptis á Vatns-
leysu og í Kirkjuhvoli, um 3 mánuði á
hvorum stað. 1938 var kennaraíbúð
í skólahúsinu breytt í kennslurými
fyrir yngstu börnin.
Minjafélag Vatnsleysustrandar
bjargaði húsi Norðurkotsskóla 2008,
flutti á nýjan grunn að Kálfatjörn,
gerði vandlega upp og rekur þar lítið
skólasafn (sjá mynd til vinstri) og
tekur á móti hópum.
Skólaárið í Suðurkots/Brunn-
aststaðaskóla var flest árin fullir 6
mánuðir en sum árin styttra í hverf-
isskólunum, enda var farkennsla til
sveita oft ekki nema 2 mánuðir á
ári á hverjum stað - langt fram á 20.
öld! Veturinn 1909 -‘10 var Haraldur
Sigurðsson, stúdent, frá Sjónarhóli,
eini kennarinn, kenndi 3 daga vik-
unnar í Suðurkoti (16 börnum) og 3 í
Norðurkoti (19 börnum). Þetta hefur
ekki verið auðvelt, Haraldur sagður
heilsulítill, var með stúdentspróf
og aðeins ráðinn þetta eina skólaár.
Næstu 4 skólaár voru 2 kennarar,
einn á hvorum stað, og kennt 6
mánuði 6 daga vikunnar. Haustið
1918 var engin kennsla 14. nóv. - 11.
des. meðan spænska veikin greisaði
grimm. Það kom oftar fyrir að loka
þurfti skólanum í nokkra daga vegna
inflúensu.
Heimildir: Mest greiarnar í Faxa
1990 og skrif St. Thorarensen í
Þjóðólf, einnig handskrifuð skjöl.
MARGIR SKÓLAR – MÖRG SKÓLAHÚS Í SÖMU SVEIT
Afmælisþættir skólans í Vogum, birtast
vikulega í Víkurfréttum og vf.is á afmælisárinu.
Þorvaldur Örn Árnason, áður kennari við skólann,
tekur saman með góðra manna hjálp.
19. ÞÁTTUR
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 19