Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.05.2022, Page 20

Víkurfréttir - 11.05.2022, Page 20
Mulan Dansskólinn Danskompaní bauð upp á veislu fyrir augað þegar vorsýning Danskompaní 2022 var haldin í Andrews Theater um helgina. Þema sýningarinnar var Disney-ævintýrið um Mulan og stóðu dansararnir sig með eindæmum vel en alls tóku um 350 dansarar þátt í sýningunni – sannkölluð stórsýning. Þótt margir dansararnir hafi verið að taka sín fyrstu dansspor á stóra sviðinu stóðu þeir allir sig frábærlega og munu án efa eiga eftir að gleðja dansáhugafólk um ókomna tíð. Jóhann Páll Kristbjörnsson, ljósmyndari Víkurfrétta, sá sýninguna og má sjá lítið brot af herlegheitunum hér á síðunni. Fleiri myndir eru aðgengilegar á vef Víkur frétta, vf.is. Salur Andrews Theater var þétt setinn enda seldist upp á sýninguna. 20 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.