Víkurfréttir - 11.05.2022, Side 22
Við boðum jákvæðar
breytingar!
Margrét Sanders,
oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ.
Kæru íbúar,
við búum á svæði þar sem miklir
möguleikar eru til að efla fjölbreytt
atvinnulíf og efla þannig tekjur sam-
félagsins.
Við erum við alþjóðaflugvöll, eigum
frábærar hafnir, nægt landsvæði. Við
eigum frábært ungt fólk sem vill og
getur aukið fjölbreytni í atvinnulífi og
menningu.
Við eigum ekki að sitja með hendur
í skauti og bíða eftir að fyrirtækin
komi, heldur sækja þau og taka vel á
móti þeim um leið og við hlúum vel að
þeim fyrirtækjum sem fyrir eru.
Öflugt atvinnulíf er ávísun á hærri
tekjur og það, ásamt réttri forgangs-
röðun, gefur okkur færi til að boða
breytingar í þágu íbúa. Með jákvæðni
í garð samfélagsins horfum við áhuga-
söm og stolt fram á veg.
Við erum með sterka framtíðar-
sýn til næstu fjögurra ára sem fjöldi
íbúa vann að. Við höfum farið vel yfir
málin og getum staðið við það sem við
setjum fram.
Við munum tryggja að leikskólar
bjóðist fyrir börn 18 mánaða og eldri
og skapa fjölbreyttari úrræði fyrir 12–
18 mánaða börn.
Í víðfeðmum bæ þarf að styrkja
starfsemi félagsmiðstöðva í hverf-
unum, fyrir unga fólkið okkar.
Við munum stórauka fjárframlög
til íþróttamála og hollrar hreyfingar.
Heilbrigðið ungra sem aldinna er for-
gangsmál.
Við munum gera hverfin okkar fal-
legri með gróðri og göngustígum.
Við erum sveitarfélag með frábært
fólk og ef haldið er rétt á spilunum þá
eru okkur allir vegir færir.
Við erum með 22 öfluga einstakl-
inga í framboði fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn sem brenna fyrir sveitarfélagið.
Við munum öll leggja okkur fram við
að byggja aftur upp eitt eftirsóttasta
sveitarfélagið þar sem fólk vill búa og
fjölskyldan er í fyrirrúmi.
Í starfinu höfum við kynnst fólki
úr öllum flokkum og framboðum sem
vill samfélaginu vel og við hlökkum til
samstarfsins.
Komið með okkur í breytingaliðið!
XD
Hvers vegna
Bein leið?
Valgerður Björk Pálsdóttir,
1. sæti Beinnar leiðar í Reykjanesbæ.
Við í Beinni leið brennum fyrir bæ-
inn okkar. Við erum fólk með víðtæka
reynslu og breitt þekkingasvið sem
nýtist við hvers kyns ákvarðanatökur.
Við í Beinni leið erum líka rík af fólki
í kring um okkur sem styður við mál-
efnin okkar og við getum leitað til ef
svo ber undir. Við viljum að bæjar-
búar og bæjarstjórn sameinist um það
sem best er fyrir íbúa, alla íbúa hverju
sinni. Það þýðir að okkur er velferð
íbúa efst í huga. Fyrst og fremst viljum
við styrkja stoðir og hlúa að mannauði
bæjarins, við viljum efla virkni og vel-
líðan allra með notendasamráð að
leiðarljósi, sá sem notar þjónustuna
verður að hafa um hana að segja og
taka þátt í ákvörðunum. Við viljum
efla þjónustu við börn og barnafjöl-
skyldur með því að koma til móts við
ólíkar þarfir. Við erum byrjuð að fjölga
leikskólarýmum og ætlum að halda því
ótrauð áfram, við viljum félagsmið-
stöðvar í hverfin og efla stoðþjónustu
skólanna okkar, við viljum sameinast
um að setja börnin okkar áfram í for-
gang. Við viljum vinna heildstæða frí-
stundastefnu með virkni og vellíðan
allra að leiðarljósi og frístundastyrkur
fyrir eldri borgara er sannarlega það
sem koma skal. Halda þarf áfram upp-
byggingu innviða íþróttafélaganna og
huga að næstu skrefum í góðu sam-
ráði við félögin sjálf. Fjölbreyttari at-
vinnumöguleikar þar sem stutt er við
frumkvöðlastarfsemi og bærinn gerður
að ákjósanlegum stað til að stofna
og reka fyrirtæki er afar mikilvægt.
Tryggja þarf markvissa og öfluga inn-
leiðingu á nýrri umhverfis- og loftlags-
stefnu Reykjanesbæjar og um leið hlúa
að náttúru- og útivistarsvæðum með
aukinni skógrækt og fjölgun leiksvæða.
Við viljum sameinast um heildstæða
stefnu þar sem líf og störf íbúa eru í
fyrirrúmi, þar sem allir geta fundið
eitthvað við hæfi í leik og starfi í skjóli
öruggra menntastofnanna, faglegrar
frístundaþjónustu og blómlegs at-
vinnulífs. Þess vegna biðjum við um
þinn stuðning, þess vegna á að kjósa
Beina leið.
Við erum rétt að byrja
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir skipar 1. sæti og Bjarni Páll Tryggvason
skipar 2. sæti á B-lista Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnar-
kosningar 14. maí næstkomandi.
Við í Framsókn höfum sýnt í verki á
síðasta kjörtímabili að okkur er um-
hugað um heilsu og vellíðan íbúa.
Fyrir síðustu kosningar lögðum við til
að sveitarfélagið myndi gera heiðar-
lega tilraun til að reka heilsugæslu-
hluta Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja með fjármagni frá ríkinu. Við
töldum og teljum enn að þjónusta
sem rekin er af þeim sem nota hana
og þeim sem þekkja nærumhverfið sé
besti valkosturinn. Hugmyndin fékk
ekki hljómgrunn hjá yfirvöldum og við
tók áframhaldandi barátta fyrir nýrri
heilsugæslu og auknum fjármunum til
rekstrar HSS sem að okkar mati hefur
gengið alltof hægt. En nú kveður við
annan tón.
Þegar sá sem hefur valdið hefur vilja
Eftir að Willum Þór Þórsson tók við
embætti heilbrigðisráðherra hefur
margt gerst í málaflokknum á Suður-
nesjum. Fjármagn var tryggt til að
hefja miklar endurbætur á HSS, búið er
að tryggja fjármagn í nýja heilsugæslu
og við finnum að nú er bæði hlustað
á raddir okkar og mikill vilji er til þess
að snúa hér við blaðinu. Það gerir ekki
einn maður heldur þarf allt samfélagið
að leggjast á eitt. Þegar samvinna og
lausnaleit eru í fyrirrúmi fara hjólin að
snúast og þá förum við að sjá jákvæðar
breytingar. Við í Framsókn höfum
bankað reglulega á dyr HSS með ósk
um samvinnu því við teljum að það sé
rétta leiðin til að tryggja bætta grunn-
heilbrigðisþjónustu. Bankið hefur nú
þegar skilað árangri því við höfum full-
vissað stjórnendur stofnunarinnar um
að okkur í Framsókn sé treystandi til
að leiða samstarfið af skynsemi svo
stofnunin geti þjónað okkur öllum.
Svona vinnum við
Við í Framsókn ætlum að stíga af krafti
inn í þennan samstarfstón forstjóra og
stjórnenda HSS og tryggja sátt og þær
umbætur sem eru nauðsynlegar. En til
að það raungerist þá þurfum við íbúa
í okkar öfluga lið og saman munum
við tryggja að málaflokkurinn komist
í lag í eitt skipti fyrir öll. Það mun taka
tíma en við verðum að hefjast handa
strax. Við höfum nú þegar fundað með
stjórn HSS og lagt fram okkar áherslur
og skýran samstarfsvilja. Það er mikil-
vægt að efla ímynd stofnunarinnar,
vinna áfram að bættu starfsumhverfi
núverandi starfsmanna og gera HSS
að enn ákjósanlegri valkosti svo fjölga
megi heilbrigðisstarfsfólki. Skemmst er
frá því að segja að stjórnendur stofn-
unarinnar hafa tekið boðinu fagnandi
og við finnum virkilegan vilja til að
hefja hér stórsókn í heilbrigðismálum.
Samvinnan er hafin og svona vinnum
við í Framsókn. Við erum tilbúin að
leiða þessa vinnu, leita lausna og láta
verkin tala.
Ekkert um okkur án okkar
Við í Framsókn höfum lagt til við for-
stjóra HSS að skipað verði notendaráð
stofnunarinnar en það er í samræmi
við lagafrumvarp sem heilbrigðisráð-
herra mælti fyrir í mars sl. Það frum-
varp varðar breytingar á lögum um
heilbrigðisþjónustu þar sem lagt er til
að sett verði á fót sjö manna notenda-
ráð í heilbrigðisþjónustu sem heilbrigð-
isráðherra skipar. Notendaráði er ætlað
að veita forstjórum heilbrigðisstofnana
ráðgjöf og aðhald með virku samráði til
að tryggja að sjónarmið notenda komi
til skoðunar við ákvarðanatöku um
skipulag og rekstur heilbrigðisstofn-
ana. Forstjórum og stjórn heilbrigðis-
stofnana, þar sem við á, skulu hafa
samráð við notendaráð til að tryggja
að sjónarmið notenda séu höfð til hlið-
sjónar við ákvarðanatöku um atriði er
varða hagsmuni sjúklinga innan heil-
brigðisstofnana.
Kjósum þá sem gæta hagsmuna okkar
Þegar þú stígur inn í kjörklefann velur
þú þann hóp sem þú treystir best til að
gæta þinna hagsmuna og allra bæjar-
búa. Það ætlum við að gera í þessum
málaflokki sem og öðrum og tryggja
að þjónustan taki mið af þörfum not-
enda, hvort sem hún er á höndum
einkaaðila, ríkis eða sveitarfélags.
Við í Framsókn erum stolt af því sem
við höfum lagt af mörkum til þessa,
framundan eru ótal tækifæri í sam-
félaginu okkar sem þarf að grípa og
vinna vel úr. Sú vegferð krefst festu,
kjarks og þors til að taka skynsamar
ákvarðanir og framkvæma. Við þurfum
þinn stuðning til að geta haldið þeirri
vinnu áfram því við erum rétt að byrja.
Setjum X við B 14. maí og eflum sam-
félagið okkar – saman!
Flokkur með
framtíðarsýn
Bjarni Gunnólfsson,
oddviti Miðflokksins í Reykjanesbæ.
Helstu baráttumál Miðflokksins eru
sanngirnismál, eins og staðan er núna
er erfitt fyrir útjaðar hverfin að komast
bæði til og frá vegna samgönguleysis,
einnig er mjög erfitt að fá starfsfólk
til að manna leikskóla þar sem 1600–
1800 leikskólakennara vantar á land-
inu öllu. Við erum með lausnir sem
ýta undir að varanlegri lausn verði
fundin á því. Við viljum að ungbarna-
styrkir verði veittir fyrir foreldra frá
12 mánaða aldri þar til börnin fá inn á
leikskóla. Þannig gefst foreldrum tæki-
færi til að vera með börnunum lengur
eða finna dagforeldra til að vera með
börnin, þessi aðgerð tryggir samfellu
í ummönnun barnanna og fyrirsjáan-
leikinn verður betri fyrir foreldrana.
Hvatagreiðslur viljum við fjórfalda,
markmiðið með því er að tryggja öllum
börnum, óháð efnahag foreldra og for-
ráðamanna, aðgang að viðurkenndu
íþrótta-,tómstunda- og listgreinastarfi.
Við viljum búa til hvata fyrir íþrótta,-
tómstunda og listgreinastarf til að gera
starf sitt hagkvæmara og meira aðlað-
andi fyrir ungt fólk. Með þessu útspili
teljum við að heildarframlög aukist á
kjörtímabilinu.
Íbúalýðræði, það þarf að gera um-
gjörð sem er ekki of heftandi fyrir
íbúa, Miðflokkurinn mun fara eftir vilja
kjósenda ef við fáum til þess brautar-
gengi og þó að það sé ekki löglegt að
vera með bindandi kosningu getum
við skipt um skoðun ef íbúar fara fram
á það og teljum við að hagur íbúa sé
mikilvægari en stök málefni.
Mér hefur fundist á kjósendum að
atvinnumálin séu mjög stór og er það
ekki skrítið eftir allt sem þetta svæði
hefur gengið í gegnum á seinustu ára-
tugum. Við þurfum að horfa til fram-
tíðar og koma með varanlegar lausnir.
Við í Miðflokknum viljum gera Reykja-
nesbæ að miðstöð verslunar og þjón-
ustu á Suðurnesjum og gera Tax-Free
þjónustu fyrir ferðamenn auðveldari
svo þeir komi til með að auka sölu hjá
fyrirtækjum í Reykjanesbæ.
Þarfagreining er orð þessara kosn-
inga, til að fólk geri sér grein fyrir hvað
það þýðir þá þýðir það kostnaður fyrir
bæjarfélagið eykst við að búa til fleiri
nefndir til að finna út hluti sem eru
oft mjög óljósir. Framkvæmda er þörf
og Miðflokkurinn gerir það sem hann
segist ætla gera með eða án þarfagrein-
ingar. Það þýðir ekki að við vöðum í
hlutina og gerum þá hugsunarlaust við
rannsökum á eigin vegum og finnum
út bestu lausnirnar með þarfir íbúa
Reykjanesbæjar í huga.
Munið að kjósa flokk með framtíðar-
sýn.
X-M
Taktu þitt pláss, ÞÚ skiptir máli
Ragnhildur L. Guðmundsdóttir 1. sæti
Margrét Sigrún Þórólfsdóttir 2. sæti
Svanur Gísli Þorkelsson 3. sæti
Vania Cristína Leite Lopes 4. sæti
Daníel Freyr Rögnvaldsson 5. sæti.
Hvort sem hlutirnir eru í lagi eða boð-
aðar eru breytingar fyrir fólkið í bænum,
þar sem framtíðin á miðjunni segir vertu
memm og áfram við, þá er það eina sem skiptir máli ert þú!
Þú kjósandi góður ert aðalnúmerið, á kjördag tekur þú
ákvörðun um það hverjum þú ætlar að treysta til þess að
halda með þér og þínum skoðunum næstu fjögur árin.
Vilt þú hafa eitthvað að segja varðandi ákvarðanir í um-
deildum málum sbr. mengandi stóriðju eða öryggisvistun í
Reykjanesbæ nú eða að allt rusl af suðvesturhorninu verði
brennt í Helguvík? Þá eigum við samleið þar sem við viljum
gefa íbúum rödd með bindandi kosningum um málefnin
sem eru umdeild.
Vilt þú kjósandi góður styðja við foreldra og börn með
því að gefa þeim rödd og málsvara í samskiptum við stjórn-
sýslustigið sem getur verið flókið fyrir t.d. fólk af erlendum
uppruna sem veit ekki hvert ætti að leita eða hvaða rétt
það hefur. Þá eigum við samleið því Píratar og óháðir vilja
koma á fót stöðu umboðsmanns foreldra barna í leik – og
grunnskólum.
Þekkir þú einhvern eða er einhver þér nákominn sem
þarf á virkni að halda, er jafnvel illa staddur félagslega en
hefur ekkert úrræði að leita til? Þá eigum við samleið því við
teljum brýnt að það séu margar mismunandi og ólíkar leiðir
til að þjónusta þennan hóp sem er eins fjölbreyttur og ein-
staklingarnir sem í honum eru, þurfum að sníða þjónustuna
að þörfum þessa hóps en ekki að þörfum sérfræðinganna.
Þurfum að koma á alvöru NPA úrræði sem miðast við þjón-
ustuþegana en ekki sérfræðingana.
Viltu anda að þér mengun frá umhverfinu sem skaðar
heilsu fólks? Viltu efla stóriðju á kostnað nýsköpunar og
sprotafyrirtækja t.d. á sviði matvæla- og lyfjaframleiðslu? Ef
þú vilt ekki mengandi stóriðju þá áttu svo sannarlega sam-
leið með okkur Pírötum og óháðum því við munum ALDREI
samþykkja mengandi iðnað í Helguvík og ef slíkt kæmi inn
á borð eru það íbúarnir sem eiga að kjósa um slíkt málefni
í bindandi kosningu.
Eigum við að markaðssetja bæinn okkar betur sem þann
flotta menningarbæ sem hann er? Píratar og óháðir vilja
stofna menningarsetur þar sem nýtt bókasafn og byggða-
safn yrði undir einu þaki, þar yrði líka til rými fyrir list-
sköpun hinna ýmsu hópa, þar gætu t.d. kórar/sönghópar
fengið aðstöðu til æfinga, rými til að geyma hluti sem slíku
starfi fylgir, þar gætu „bílskúrsbönd“ fengið að æfa og íbúar
bæði innlendir og þeir sem eru af erlendum uppruna gætu
komið saman og unnið að listsköpun sameiginlega og þannig
kynnst hverjir öðrum.
Vilt þú kjósandi góður eiga möguleika á öruggu húsnæði?
Húsnæði sem verður ekki selt ofan af þér eða leigan hækkuð
eftir arðsemiskröfu eigenda? Þá eru Píratar og óháðir þér
sammála því við viljum styðja við óhagnaðardrifin leigu-
félög að norrænni fyrirmynd líkt og Íbúðarfélag Suðurnesja
hsf. hefur barist fyrir að koma á laggirnar. Einnig teljum við
mikilvægt að Reykjanesbær fjölgi félagslegu húsnæði þar
sem ríflega 200 manns eru á biðlista eftir slíku húsnæði
og sveitarfélögum ber skylda til samkvæmt lögum að bjóða
fólki félagslegt húsnæði sem getur ekki sjálft eignast þak yfir
höfuðið eða leigt dýrt og óöruggt húsnæði.
Píratar og óháðir vilja að elsta stig leikskóla verði gjald-
frjálst enda viðurkennt sem fyrsta skólastigið. Leikskólar
ættu að taka við börnum á aldrinum 12 til 18 mánaða og
heimilin ættu aðeins að greiða eitt gjald óháð fjölda barna á
leikskóla, það er kjarabót fyrir fjölskyldur bæjarins.
Það þarf að styrkja vel og styðja íþrótta – og tóm-
stundastarf barna, þá eigum við einnig við tónlistarnám
barna sem er dýrt og ekki á færi allra heimila að fjármagna
en það er mismunun gagnvart börnum sem eiga að geta
stundað svona tómstundir óháð efnahag foreldra. Nýju far-
sældarlögin sem tóku gildi um síðustu áramót setja skyldur
á sveitarfélög að verða barnvæn og samkvæmt því þá ættu
sveitarfélögin einmitt að styðja heimilin varðandi íþróttir og
tómstundastarf barna. Að styrkja sérstaklega íþróttafélögin
hefur bærinn gert bæði hvað varðar árleg framlög svo og
varðandi covid viðspyrnu sem er vel en sveitarfélagið á að
styðja og styrkja öll íþróttafélög þ.m.t NES íþróttafélag en
þeir hafa ekki einu sinni haft fjármagn til þess að ráða fót-
boltaþjálfara og einmitt fyrir þann hóp sem svo sannarlega
þarf á slíku starfi að halda. Það er svo mikilvægt er að halda
sem flestum börnum virkum í íþrótta- og frístundastarfi og
tryggja jafnt aðgengi barna og unglinga að slíku starfi, óháð
kyni, uppruna eða fötlunar.
Ef þú ert sammála þessum áherslum, þá eigum við Píratar
og óháðir svo sannarlega samleið með þér. En umfram allt
kjósandi góður, taktu þátt í kosningum, stattu með sjálfum
þér og mundu að ÞÚ skiptir máli.
Píratar og óháðir.
22 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM