Víkurfréttir - 11.05.2022, Síða 23
Hvatagreiðslur
fyrir eldri borgara
og öryrkja
Guðný Birna Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
bæjarfulltrúi, 2. sæti S-lista Samfylkingarinnar og óháðra í Reykjanesbæ.
Við í Samfylkingunni höfum verið ein-
huga í að efla heilsu og heilbrigði íbúa
bæjarins okkar. Barist gegn heilsu-
spillandi stóriðju, komið á lýðheilsu-
ráði, ráðið til okkar lýðheilsufulltrúa
og stóraukið hvatagreiðslur til barna
úr 7.000 í 45.000 kr. Börnin geta nýtt
hvatagreiðslur í tómstundir, listgreinar
og til íþrótta að þeirra eigin vali.
Við höfum verið þátttakendur í lýð-
heilsuverkefninu Janus heilsuefling frá
byrjun eða síðan árið 2017. Við erum
mjög ánægð með verkefnið og sam-
starfið við Janus og HSS. Áttundi hóp-
urinn er í fullum gangi núna þar sem
heildarfjöldinn er 156 einstaklingar.
Samkvæmt lýðheilsuvísum fyrir
Suðurnes fyrir árið 2021 voru fleiri
fullorðnir sem mátu líkamlega og and-
lega heilsu slæma miðað við önnur
landssvæði. Í ljósi þessa viljum við
ná til fleiri einstaklinga – en í Reykja-
nesbæ eru einstaklingar 60 ára og eldri
alls 3.463 og öryrkjar um 3.110. Ljóst er
að sökum fjöldans mun það taka okkur
mörg ár að koma öllum sem vilja til Ja-
nusar.
Jöfn tækifæri til heilsueflingar
Markmið Samfylkingar er að gefa
öllum jöfn tækifæri á styrkjum til
heilsueflingar og tómstunda og val
um það í hvað umræddur styrkur fer.
Eldri borgarar og öryrkjar geta því
notað hvatagreiðslur sínar í Janusar-
verkefnið sem við hvetjum til en einnig
má nota styrkinn í að kaupa sundkort,
kaupa kort í ræktina, fara í golf, velja
sér tómstundir við hæfi o.s.frv. Ein-
staklingarnir ráða því sjálfir og við
hleypum fleirum að.
Lýðheilsa er okkur mjög mikilvæg
og við viljum m.a. koma á samstarfi við
íþróttahreyfinguna um stofnum öld-
ungadeilda til að efla virkni eldri borg-
ara. Þá munum tryggja áframhaldandi
uppbyggingu á Nesvöllum en skóflu-
stunga var tekin nýverið að nýju 60
rýma hjúkrunarheimili sem rís þar á
næstu árum.
Ef við náum að virkja þennan stóra
hóp í samfélaginu okkar og efla lífsgæði
þeirra og vellíðan þá stuðlum við að
betra samfélagi fyrir alla.
Höfum hlutina í lagi!
Heilbrigðisþjónustan
– við höfum fengið nóg!
Margrét Þórarinsdóttir, 1. sæti.
Gunnar Felix Rúnarsson, 2. sæti.
Rannveig Erla Guðlaugsdóttir, 3. sæti.
Umbót er frjálst og óháð stjórnmálaafl
í Reykjanesbæ sem byggir á reynslu.
Við höfum undanfarna daga tekið á
móti fjölmörgum kjósendum á kosn-
ingaskrifstofu okkar að Hafnargötu 60
í Reykjanesbæ. Eitt af hitamálunum
fyrir þessar kosningar er Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja (HSS). Á stofnun-
inni starfar vinnusamt og gott fólk sem
leggur mikið á sig og vinnur undir álagi.
Traustið til HSS þarf að bæta
Við höfum heyrt reynslusögur frá
íbúum Reykjanesbæjar þegar kemur
að HSS. Hrakfallasögur sem hafa
margar hverjar endað með því að leita
hafi þurft til Reykjavíkur eftir heil-
brigðisþjónustu, stundum með lífið í
lúkunum. Bergmálið var skýrt, traustið
til þessarar stofnunar er ekki til staðar.
Það er mikið áhyggjuefni. Nýverið var
það tilkynnt að nú væri búið að full-
fjármagna og samþykkja nýja heilsu-
gæslu í Innri-Njarðvík. Þessu fögnum
við að sjálfsögðu. Vandinn er hins
vegar sá að ef einungis þyrfti nýtt hús-
næði eða nýja málningu á gamla veggi
í húsnæði HSS, til að bæta þjónustu
við bæjarbúa Reykjanesbæjar, þá væri
málið leyst. Það er hins vegar ekki til-
fellið.
Framkvæmdastjórn ómálefnaleg
Þúsundir íbúa Reykjanesbæjar sækja
heilbrigðisþjónustu til höfuðborgar-
innar. Framkvæmdastjórn HSS svar-
aði gagnrýni sjúklinga og aðstandenda
þannig að þau telji alla umfjöllun ómál-
efnalega og að hún stefni starfsemi
HSS í hættu. Er það ekki málefnalegt
að gagnrýna það að yfirlæknir HSS
nýtti sér læknaleigu sem hann rak
sjálfur?
Samkvæmt svari framkvæmda-
stjórnar HSS er vandinn umfjöllunin.
Fólkið sem tjáir sig um lélega þjónustu
og rangar greiningar lækna. Þetta er nú
ekki sérlega málefnalegt að okkar mati.
Framkvæmdastjórn segist ekki ná að
manna stöður vegna þessarar umfjöll-
unar og því muni staðan seint lagast.
Á starfsfólk HSS ekki betra skilið en
framkvæmdastjórn sem kennir um-
fjöllun íbúanna um? Umfjöllun sem
byggir á reynslusögum? Þær eru ekki
“bara” hluti af rótgrónum vanda stofn-
unarinnar heldur eru þetta reynslu-
sögur af tilfellum sem hafa átt sér stað.
Til að breyting geti átt sér stað hjá HSS
þá þarf að bjóða betri þjónustu og
þannig fækka tilfellum. Sé betur hlúð
að starfsmönnum HSS þá hlýtur það
að skila sér til þeirra sem sækja þjón-
ustu þangað. Það þarf að fjölga starfs-
fólki og bæta aðstöðu, það stendur upp
á ríkisvaldið og það stendur upp á bæj-
arfulltrúa að fylgja því eftir.
Heilsuöryggi ekki nægilegt
Málið snýst um heilsuöryggi. Við erum
í auknum mæli farin að leyta til einka-
rekinna stofnana. Hvar hafa stjórnun-
arhættir brugðist? Framkvæmdastjórn
HSS býr ekki á svæðinu, þau búa á höf-
uðborgarsvæðinu. Það er óheppilegt
því það er mikilvægt að vera í góðum
tengslum við íbúana á svæðinu. Við
búum einfaldlega ekki við nægilegt
heilsuöryggi og því þarf að breyta! Því
viljum við í Umbót breyta strax. Við
þurfum að byggja stofnunina upp.
Við þurfum að byrja á því að ráða
fólk héðan af Suðurnesjunum í stjórn-
endastöður. Ríkið þarf annað hvort að
taka slaginn alla leið með gæðaeftirliti
og fjármagni og færa HSS undir Land-
spítalann og tryggja þannig jafnan
aðgang að sérfræðingum eða sleppa
takinu og leyfa sveitarfélögunum að
manna stöðurnar, taka ákvarðanir og
hleypa einkarekstri að svæðinu.
Kæri kjósandi. Tökum málin í
okkar hendur og stöppum niður
fæti . V ið höfum fengið nóg !
Umbætur í rekstri HSS eru forgangs-
mál Umbótar í Reykjanesbæ.
Taktu slaginn með okkur. X-U
Laugardaginn 14. maí
Sveitarstjórnar
kosningar 2022
Kjörskrá í Reykjanesbæ, vegna sveitarstjórnarkosninganna sem
fram fara þann 14. maí 2022, liggur frammi á bæjarskrifstofum
Reykjanesbæjar. Ef þú ert ekki viss um hvort þú ert á kjörskrá
þá má einnig fletta upp í kjörskrárstofni á vefnum kosning.is
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á
kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar.
Kosið er í fjölbrautaskóla Suðurnesja. Athygli er vakin á því að
kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von
á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00
Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja í stofu 221. Síminn hjá yfirkjörstjórn er 420 4515.
Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar
á timarit.is
ÖLL BLÖÐIN FRÁ 1980 OG TIL DAGSINS Í DAG
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 23