Víkurfréttir - 11.05.2022, Qupperneq 24
Hvað með félagsstarf
yngri borgara?
Siggeir F. Ævarsson,
oddviti Samfylkingarinnar og óháðra í Grindavík.
Á kjörtímabilinu sem er að líða hefur
félagsstarf eldri borgara fengið tölu-
verða athygli hér í Grindavík, og fagna
ég því. Með hækkandi lífaldri þjóðar-
innar stækkar þessi þjóðfélagshópur
hratt og Grindavíkurbær sem sveitar-
félag þarf að sinna honum af ábyrgð
og röggsemi. Öldrunarþjónusta er lög-
boðin þjónusta sveitarfélaga og þar
hefur núverandi meirihluti hreinlega
dregið lappirnar síðustu ár.
En nú sér loks til lands í því stóra
verkefni sem er félagsaðstaða eldri
borgara. Samfylkingin og óháðir munu
leggja áherslu á að koma því verkefni á
skrið enda verða þá slegnar tvær flugur
í einu höggi með því að byggja um leið
fullkomið og nútímalegt húsnæði fyrir
heilsugæslu í sama húsi. Heilbrigðis-
þjónusta er eitt af þeim verkefnum
sem er ekki á ábyrgð sveitarfélagsins,
en mælist þó alltaf afar neðarlega í
ánægjukönnun íbúa. Með því að skaffa
HSS fullkomna aðstöðu fyrir heilsu-
gæslu getur Grindavíkurbær lagt sitt
lóð á vogarskálarnar í að efla þessa
þjónustu í heimabyggð.
Ef heilsugæslan flytur af Víkur-
braut 62 losnar þar umtalsvert pláss,
og vill svo til að það eru fleiri en eldri
borgarar í Grindavík sem þyrstir í
meira pláss og húsnæði. Má segja að
með þessum flutningum fari ákveð-
inn húsnæðiskapall af stað sem væri
áhugavert að sjá hvernig gengur upp.
Félags- og skólaþjónustan okkar er t.d.
á algjörum hrakhólum. Þá hefur einnig
verið kallað eftir meira rými fyrir
Þrumuna og að komið verði upp ung-
mennahúsi fyrir félagsstarf 16-25 ára.
Félagsstarf 16-25 ára ungmenna
verður gjarnan afgangsstærð í umræð-
unni, þá sérstaklega yngsta aldursbilið,
sem lendir einhvern veginn á milli. Per-
sónulega langar mig að vinna í þessum
málum í góðu samtali við þennan hóp
og eiga samtal Ungmennaráð og Þrum-
una. Mig langar líka að efla Þrumuna.
Þar er unnið ómetanlegt forvarnarstarf
af öflugum hópi og við þurfum að fjölga
stöðugildum þar. Ég held að flestir geri
sér ekki grein fyrir því hversu öflugt
starfsfólk Þrumunnar er, og hversu
mikið starf þau vinna miðað við hversu
fá stöðugildin þar eru.
Mín framtíðarsýn er sú að í Grinda-
vík rísi öflugt ungmennahús. Hvar
nákvæmlega væri gott að ákveða í
samráði við þá sem nota það. Hug-
myndir sem nefndar hafa verið eru
t.d. á reitnum þar sem gömlu smíða- og
myndmenntastofurnar eru núna eða
nálægt íþróttahúsinu. Þriðja hæðin á
Víkurbraut 62 gæti líka komið til
greina. Í ungmennahúsi gætum við
líka komið upp öflugri aðstöðu fyrir
rafíþróttadeild UMFG.
Möguleikarnir eru margir og tæki-
færin eru klárlega til staðar. Það er
okkar sem skipum næstu bæjarstjórn
að nýta þessi tækifæri. Vonandi fáum
við í Samfylkingunni og óháðum ykkar
stuðning til að láta þessar hugmyndir
verða að veruleika.
Gerum betur fyrir
ungmenni í Grinda-
víkurbæ
Jón Fannar hefur setið í ungmennaráði Grindavíkur-
bæjar og skipar í dag 12. sæti á lista Raddar unga fólksins.
Nú er ég að klára annað árið mitt í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Bæði árin
hafa mikið einkennst af Covid-19 en
heimsfaraldurinn hafði mikil áhrif m.a.
á framhaldsskólanema.
Þessi tími var ekki sá skemmtileg-
asti en mér finnst ég sjálfur hafa verið
heppinn með margt. Ég er með gott
bakland og var mikið með fjölskyld-
unni að spila og var samveran meiri en
vanalega. Félagslífið var lítið sem ekk-
ert en ég gat alltaf spilað körfubolta. Ég
hef æft körfubolta í tólf ár og ég fann
hvað hann var stór partur af mér og gaf
mér mikið þegar reyndi á. Ég náði líka
að sinna náminu mínu vel í gegnum
fjarnám og átti oft auðveldara með að
einbeita mér þegar ég var einn heldur
en inni í kennslustundum.
Ég var heppinn og ég geri mér grein
fyrir því. Á tímum Covid-19 hefur van-
líðan ungmenna og brottfall úr skóla
aukist. Það er ekki hægt að líta fram-
hjá þessum vandamálum. Grindavíkur-
bær þarf að gera betur fyrir ungmenni
á aldrinum sextán til tuttugu ára. Frí-
stundastarf ungmenna er ekki lög-
bundin og því þurfum við að standa
vörð um það. Í dag er Þruman með vel
menntað og metnaðarfullt starfsfólk.
Við þurfum að nýta tækifærið á meðan
það gefst! Við í Rödd unga fólksins
viljum sjá aukið fjármagn til Þrum-
unnar. Það þarf að mynda framtíðar-
stefnu í frístundastarfi fyrir alla ald-
urshópa og halda áfram uppbyggingu
á ungmennahúsi hjá Grindavíkurbæ.
Getum þetta saman
– Grindavík
Hjálmar Hallgrímsson, Birgitta H. Ramsay Káradóttir,
Irmý Rós Þorsteinsdóttir, Eva Lind Matthíasdóttir
og Sæmundur Halldórsson,
frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Grindavík.
Þann 14. maí næstkomandi munu kjós-
endur velja sér fulltrúa í bæjarstjórn
Grindavíkurbæjar til næstu fjögurra
ára. Ljóst er að fimm framboð verða
í sveitarfélaginu og er ánægjulegt að
sjá hversu margir hafa áhuga á mál-
efnum bæjarfélagsins. Fjölbreytnin er
töluverð og gefur það íbúum Grinda-
víkurbæjar all nokkra valmöguleika
til að velja þá einstaklinga sem þeir
treysta best að stýra sveitarfélaginu
næstu fjögur árin. Sjálfstæðisflokk-
urinn í Grindavík býður fram lista
með öflugum einstaklingum sem hafa
meðal annars reynslu af sveitarstjórn-
armálum og stjórnun sveitarfélagins.
Listinn er mjög fjölbreyttur og teljum
við hafa tekist vel til vals á frambjóð-
endum sem koma mismunandi sjónar-
miðum að málefnum, hvort sem litið
er til aldurs, kynja, starfa eða reynslu.
Frambjóðendur sjálfstæðisflokksins
vinna sem ein heild og hafa sett stefnu
í að byggja upp sterka innviði, auka
þjónustu við íbúa, skapa ákjósanlegt
rekstrarumhverfi til fyrirtækjareksturs,
horfa til frambúðar í stefnumótun og
síðast en ekki síst að rekstur að sveit-
arfélagsins standi undir þjónustunni
sem því ber að veita.
Eftirfylgni og stöðugleiki
Fyrir seinasta kjörtímabil setti sjálf-
stæðisflokkurinn í Grindavík fram
metnaðarfulla stefnu og er fagnaðar-
efni að segja frá því að mjög vel hefur
tekist til að fylgja henni eftir. Mikill
vandi var hjá barnafjölskyldum hvað
varðar aðgang að daggæslu eða leik-
skólaplássum. Á stefnuskránni okkar
var meðal annars að opna daggæslu á
Gerðavöllum og hefja vinnu við nýjan
leikskóla. Daggæslan á Gerðavöllum
varð að veruleika snemma kjörtíma-
bilsins, ásamt því að bætt var deild hjá
leikskólanum Króki sem leysti brýnan
vanda hjá mörgum barnafjölskyldum.
Birgitta H. Ramsay Káradóttir, bæj-
arfulltrúi sat í byggingarnefnd fyrir
leikskóla og hefur nýr leikskóli verið
hannaður og er tilbúinn í útboð sem er
áætlað á árinu. Markmiðið sjálfstæð-
isflokksins í Grindavík er að veita ör-
yggi og þjónustu strax að loknu fæð-
ingarorlofi á ábyrgan hátt. Teljum við
það ákjósanlegast í höndum fagaðila í
leikskólum bæjarins, þar sem grunnur
að menntun barna er lagður á fyrsta
skólastiginu. Því er ánægjulegt að leik-
skóli í Hlíðarhverfi sé að verða að veru-
leika.
Atvinnu og ferðamál urðu fyrir
barðinu á miklum hæðum og lægðum
á kjörtímabilinu. Á stefnuskrá okkar
í sjálfstæðisflokknum settum við það
markmið að ráða ferðamálafulltrúa og
að skapa kjöraðstæður fyrir fyrirtæki
í bæjarfélaginu. Upplýsinga- og ferða-
málafulltrúi var ráðinn til starfa og
varð fljótt mikilvæg stoð í miðlun upp-
lýsinga í kringum stórvæginleg málefni
sem upp komu, jarðhræringar sem end-
uðu á eldgosi og heimsfaraldur. Auð-
vitað höfðu þessi fyrirbæri líka víðtæk
áhrif á aðra starfsemi hér í Grindavík
en teljum við að fyrirtæki og stofnanir
hafa staðið sig með eindæmum vel í að
vera lausnamiðuð og vinna sem best
úr aðstæðum.
Hvað varðar málefni eldri borg-
ara viljum við lýsa yfir stolti af þeirri
hugmynd sem sjálfstæðisflokkurinn í
Grindavík kom með varðandi Félags-
heimili eldri borgara. Oddviti sjálf-
stæðismanna, Hjálmar Hallgrímsson
leiddi vinnuhóp um bygginguna sem
mun vonandi efla félagsstarf eldri
borgaranna okkar. Eftir vel ígrundaða
hönnunarvinnu í samráði við eldri
borgara, ásamt skipulagningu á svæð-
inu kringum Víðihlíð er niðurstaðan
skemmtilegt hverfi og glæsileg bygg-
ing sem hýsa mun félagsheimilið. Það
verður vissulega fagnaðarerindi þegar
félagsheimilið verður tekið í notkun.
Enn fremur settum við okkur stefnu
í að efla og styðja sérstaklega við eldri
borgara, en starfsmenn Miðgarðs stóðu
vaktina með mikilli prýði og sveigjan-
leika í því mikla óvissuástandi sem
ríkti á kjörtímabilinu sem leið.
Ánægjan býr í Grindavík
Nýleg skoðanakönnun leiddi í ljós að
íbúar Grindavíkur eru almennt mjög
ánægðir með þjónustu og stjórnsýslu
í bæjarfélaginu og það er ánægjuefni
að sjálfstæðisflokkurinn hafi setið í
meirihluta bæjarstjórnar á tímamótum
sem þessum. Á stefnuskrá sjálfstæðis-
flokksins lögðum við áherslu á að halda
áfram jákvæðum rekstri bæjarsjóðs og
lágmarka álögur á bæjarbúa. Það hefur
tekist vel, og er niðurstaða ársreiknings
bæjarfélagsins í takt við stefnu okkar.
Endurskipulagning á sundlaugar-
svæðinu og frágangur á íþróttasvæð-
inu var einnig nefnt á stefnuskrá okkar
og er sú skipulagsvinna hafin nú þegar.
Við bindum miklar vonir við komandi
kjörtímabil að fá tækifæri til að hanna
sundlaugarsvæðið og íþróttasvæðið í
heild með þarfir stækkandi bæjarfélags
í huga. Við viljum hugsa stórt og gera
stefnu til lengri tíma, setja nýja sund-
laug í forgang og skoða kosti og mögu-
leika á fjölnota íþróttahúsi með knatt-
spyrnuvellli í fullri stærð.
Stefnan er að geta boðið framúrskar-
andi aðstæður og fjölbreytt framboð
þegar kemur að heilsueflingu ásamt
hreyfingu, sem lið í bættri lýðheilsu
allra bæjarbúa.
Stækkandi bæjarfélag
Framtíðin er björt í Grindavík og er
fyrirsjáanlegt að bæjarfélagið muni
stækka nokkuð á komandi kjörtíma-
bili. Því er mjög mikilvægt að halda
vel utan um innviði samfélags okkar
Grindavíkinga og styðja við starfsemi
og þjónustu í takt við fjölgun íbúa.
Meðal annars þarf að horfa sérstak-
lega til stöðugleika í rekstri, mennta-
stofnana, leikskóla jafnt sem grunn-
skóla, félagsþjónustu, íþrótta og æsku-
lýðsstarfs og afþreyingu til ungra sem
aldna. Þannig náum við árangri og
áframhaldandi ánægju íbúa.
Sjálfstæðisflokkurinn í Grindavík
óskar eftir stuðningi Grindvíkinga
þann 14. maí til áframhaldandi stöðug-
leika og góðra verka.
Setjum X við D
Málefni barna í
forgrunni því þau
eru framtíðin
Ásrún Helga Kristinsdóttir, oddviti B-lista Framsóknar í Grindavík.
Eitt af því mikilvægasta í lífinu eru
börnin okkar. Það er hlutverk okkar
fullorðna fólksins að tryggja þeim fram-
tíðartækifæri, vellíðan og hamingju.
Öll börn eiga að njóta jafnra tækifæra,
upplifa sig velkomin til þátttöku í tóm-
stundastarfi og skóla óháð félagslegum
aðstæðum og bakgrunni. Til að skapa
barnvænt samfélag er nauðsynlegt að
setja börn og fjölskyldur þeirra í for-
grunn þjónustulausna og að stuðlað sé
að auknu samstarfi meðal stofnanna
og kerfa.
Ég hef hrifist af vinnu Ásmundar
Einars Daðasonar, mennta- og barna-
málaráðherra. Hann hefur lagt mikla
áherslu á málefni barna í sínum
störfum og leitt sennilega mestu breyt-
ingu sem gerð hefur verið á umhverfi
barna á Íslandi í áratugi. Breytingin
felur í sér samþættingu um heildstæða
þjónustu við börn og hugsuð sem
snemmbær stuðningur. Við í Fram-
sókn ætlum að styðja við þá þjónustu
í þágu farsældar barna samkvæmt nýju
farsældarlögunum.
Þegar við ræðum um arðsemi fjár-
festinga í samfélaginu okkar er áhuga-
vert að við horfum yfirleitt á eitthvað
efnislegt. Við þurfum að horfa á arð-
semi þess að fjárfesta í fólki til lengri
tíma. Grindavík er öflugt samfélag þar
sem börn geta leitað í margar íþrótta-
greinar og tómstundir hafi þau áhuga
á því. Það er til fyrirmyndar hversu lág
æfingagjöld eru fyrir börn í Grindavík.
Á þessu þurfum við að byggja áfram
til að mynda með bættri aðstöðu til
íþróttaiðkunar, æskulýðs- og félags-
starfs.
Willum Þór heilbrigðisráðherra
nefndi við okkur á dögunum að fram-
undan er stórt átaksverkefni í þing-
inu sem lýtur að lýðheilsu og geðheil-
brigði. Horft verður til samstarfs við
sveitar- og ungmennafélög. Áskoranir
sem unglingarnir okkar standa frammi
fyrir eru aðrar en fyrri kynslóðir stóðu
frammi fyrir. Dæmi um slíkar áskoranir
eru lítill svefn, hættur netsins, skjáfíkn,
orkudrykkir og nikótínpúðar og því er
mikilvægt að vinna markvisst í for-
vörnum og fræðslu.
Ég hlakka til að sjá vinnu með fram-
haldið sem verður örugglega til mikilla
hagsbóta fyrir börn og ungmenni.
Við viljum að Grindavík verði í farar-
broddi þegar kemur að velferð barna
og ungmenna. Taktu þátt í því með
okkur.
Kæri íbúi Grindavíkur við óskum
eftir þínum stuðningi þann 14. maí og
biðjum þig að setja X við B.
Nýjustu fréttirnar
frá Suðurnesjum
Sveitarstjórnarkosningar
laugardaginn 14. maí 2022
Kjörstaður í Grindavík.
Kjörfundur fyrir kjósendur í Grindavík er í Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2.
Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis
persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjördagur sveitarstjórnarkosninga er 14. maí 2022.
Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00.
Á kjördag mun kjörstjórn hafa aðsetur í Grunnskólanum.
Talning atkvæða fer fram á sama stað, að loknum kjörfundi.
Kjörstjórn Grindavíkurbæjar.
24 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM