Víkurfréttir - 11.05.2022, Qupperneq 25
Heiti hlaðvarpsins, Góðan daginn Grind-
víkingur, eru sótt í kvæði eftir Örn Arn-
arson en í fyrsta þætti hlaðvarpsins segir
Aðalgeir Jóhannsson (Alli á Eyri) m.a. frá
sögu kvæðisins.
Góðan daginn Grindvíkingur
– Nýtt hlaðvarp Grindavíkurbæjar
Fyrstu þættirnir af Góðan daginn
Grindvíkingur, nýju hlaðvarpi
Grindavíkurbæjar, eru komnir í
loftið. Hlaðvörp, fyrir þá sem ekki
þekkja til, eru spennandi leið til þess
að miðla upplýsingum um þjónustu
sveitarfélagsins og þau verkefni sem
unnið er að. Þá gefst tækifæri með
hlaðvarpinu til að kynnast áhuga-
verðu fólki og heyra sögur þeirra sem
auðga samfélagið okkar.
Hlaðvarpið er tekið upp í
Studio°240, sem staðsett er í félags-
miðstöðinni Þrumunni og sett var
upp að frumkvæði ungmennaráðs
Grindavíkurbæjar. Ungmennaráð
hefur einmitt umsjón með fimm
af sex fyrstu þáttum hlaðvarpsins
þar sem rætt er við oddvita þeirra
framboða sem bjóða fram í sveita-
stjórnarkosningum í Grindavík þann
14. maí næstkomandi.
Úr hljóðveri Studio°240.
Ungmennaráð fundaði
með bæjarstjórn
Ungmennaráð fundaði með bæjar-
stjórn Grindavíkurbæjar í síðustu
viku. Á fundinum fóru fulltrúar
ungmennaráðs, þau Friðrik Þór
Sigurðsson, formaður, Una Rós Unn-
arsdóttir og Vignir Berg Pálsson yfir
starf ráðsins í vetur. Í kjölfarið fóru
fram umræður um stöðu ungs fólks í
Grindavík, m.a. um stöðu ungmenn-
aráðs, félagsmiðstöðina Þrumuna,
ungmennahús, ungmennagarðinn og
íþróttasvæðið. Frá þessu er greint á
vef Grindavíkurbæjar.
Auk bæjarfulltrúa og fulltrúa í
ungmennaráði sátu fundinn þau
Elínborg Ingvarsdóttir, forstöðu-
maður Þrumunnar, Melkorka Ýr
Magnúsdóttir, umsjónarmaður ung-
mennaráðs í vetur, og Eggert Sólberg
Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og
menningarsviðs.
Hlutverk ungmennaráðs er að
vera bæjarstjórn ráðgefandi um mál-
efni er tengjast ungu fólki á aldrinum
þrettán til átján ára í sveitarfélaginu.
Ungmennaráð 2021–2022 er þannig skipað:
Tómas Breki Bjarnason
Emilía Ósk Jóhannesdóttir
Jón Breki Einarsson
Rakel Vilhjálmsdóttir
Una Rós Unnarsdóttir
Ólafur Reynir Ómarsson
Friðrik Sigurðsson
Varamenn:
Steinunn Marta Pálsdóttir
Patrekur Atlason
Vignir Berg Pálsson
Ungmennaráð ásamt bæjarstjórn.
Mikilvægt að vakta áfram
virkni á Reykjanesskaganum
Frá því að gosinu við Fagradalsfjall
lauk hefur skjálftavirkni á Reykja-
nesskaganum verið talsverð og það
sem af er þessu ári hafa um 6000
skjálftar mælst. Skjálftavirknin hefur
verið bundin við nokkur svæði þar á
meðal Reykjanestá, svæði norður af
Grindavík, Fagradalsfjall og Kleifar-
vatn. Frá þessu er greint á vef Veður-
stofu Íslands.
Skjálftavirknin á Reykjanes-
skaganum síðustu fjóra mánuði er
talsvert minni en mældist í upphafi
óróatímabils sem hófst á Reykja-
nesskaganum um miðjan desember
2019. Á fyrstu fjórum mánuðum
þess tímabils mældust um 9600
skjálftar og voru 37 þeirra af stærð
3 og þrír yfir 4 að stærð.
Vísbendingar um kvikusöfnun
á talsverðu dýpi
GPS-mælanetið á Reykjanesskag-
anum sem nemur færslur á yfirborði
jarðar sýnir víðáttumikið þennslu-
merki sem bendir til kvikusöfnunnar
á > 16 km dýpi austan við Fagra-
dalsfjall. Engar landbreytingar eru
merkjanlegar sem gætu bent til þess
að kvika sé að nálgast yfirborðið eins
og greint var frá í tengslum við jarð-
skjálftahrinu við Fagradalsfjall í lok
síðasta árs. Nýlegar InSAR gervi-
tunglamyndir eru í samræmi við það
sem sést á GPS mælum.
„Það er talsverð áskorun að greina
virknina á Reykjanesskaganum,“
segir Benedikt G. Ólafsson, sérfræð-
ingur á sviði jarðskorpuhreyfinga á
Veðurstofu Íslands á vef stofnunar-
innar. „Á Reykjanesskaganum á sér
stað flókin víxlverkun á milli virkni
vegna kviku og virkni vegna fleka-
móta sem getur gert erfitt um vik að
greina á milli hvað er hvað. Skjálfta-
hrinur á skaganum hafa oft einkenni
hrina sem verða vegna kvikuhreyf-
inga þó þær séu það ekki og það gæti
átt við í tilfelli hrinunnar á Reykja-
nestá þó svo að ekki sé hægt að full-
yrða um slíkt. Það eru allavega engar
sjáanlegar landbreytingar sem benda
til kvikuhreyfinga vestast á nesinu,“
segir Benedikt.
Hættumat eykur getuna til að
bregðast rétt við atburðum
„Það er ljóst að ennþá er tals-
verð virkni á öllum Reykjanes-
skaganum og í raun ekki hægt að
útiloka að virknin geti aukist, en
hvar og hvenær er erfitt að segja til
um nákvæmlega,“ segir Sara Bar-
sotti, fagstjóri eldfjallavár á Veður-
stofunni. „Það er þensla í gangi
sem bendir til kvikusöfnunar og á
meðan að hún er í gangi þurfum við
að vera á tánum og vera tilbúin fyrir
ákveðnar sviðsmyndir ef til eldgoss
kemur. Þar getur verið um að ræða
eldgos svipuðu því sem við sáum við
Fagradalsfjall þar sem talsverð gas-
mengun fylgdi gosinu. Eins þurfum
við að búa okkur undir eldgos nálægt
ströndinni, jafnvel neðansjávar, en
slíku eldgosi gæti fylgt öskufall,“ segir
Sara.
„Verið er að vinna hættumat og
áhættumat fyrir Reykjanesskagann
í „Gosvár“ verkefninu þar sem t.d.
hefur verið lagt mat á hver áhrif
frá öskufalli hafi í byggð og þá til að
geta brugðist við slíkum atburði. Í
millitíðinni er svæðið vaktað og vís-
indamenn fylgjast náið með öllum
breytingum sem verða á virkninni,“
segir Sara að lokum.
Mælingar hafa sýnt
kvikusöfnun á miklu dýpi
en engar vísbendingar eru
um að kvika sé að nálgast
yfirborð. VF-mynd: Hilmar Bragi
Vísindaveisla í Grindavík
– fjör og fræði fyrir alla fjölskylduna
Vorið er komið og það þýðir Háskó-
lest Háskóla Íslands rúllar af stað um
landið og verður stödd í Grindavík
dagana 12.–14. maí með fjölbreytta
dagskrá í boði. Haldnar verða kenn-
arasmiðjur og námskeið fyrir grunn-
skólanemendur en dagskránni lýkur
svo með sannkallaðri vísindaveislu
fyrir allt samfélagið í Kviku, auð-
linda- og menningarhúsi Grinda-
víkur, laugardaginn 14. maí frá kl.12
til 16. Þar býðst fjölskyldumeðlimum
á öllum aldri að kynnast undrum vís-
indanna með gangvirkum og lifandi
hætti í gegnum fjölbreytt tæki, tól og
smiðjur. Verið hjartanlega velkomin
– enginn aðgangseyrir!
Megináherslan í starfi Háskóla-
lestarinnar er á að kynna vísindi á
lifandi og fjölbreyttan hátt fyrir ungu
fólki, styðja við starf grunnskólanna
og efla tengsl við landsmenn á öllum
aldri. Í áhöfn lestarinnar eru kenn-
arar og nemendur við Háskóla Ís-
lands, sem flestir hverjir eru líka
leiðbeinendur í Vísindasmiðju HÍ
og Háskóla unga fólksins.
Föstudaginn 13. maí mun nem-
endum í 9. og 10. bekk í Grunnskóla
Grindavíkur bjóðast námskeið um
flestallt milli himins og jarðar, þar
sem fjallað verður um eldfjöll, töfra
ljóss og lita, orkuskipti, vindmyllur,
efnafræði, forritun með skynjurum
og föndri, sjúkraþjálfun, dulkóðun
og japanskir menningarheimar skoð-
aðir.
Auk námskeiðanna fyrir unga
fólkið verður sú nýjung í Háskóla-
lestinni að þessu sinni að sér-
stakar kennarasmiðjur verða í
boði fimmtudaginn 13. maí fyrir
alla kennara á Suðurnesjum. Vís-
indasmiðja Háskóla Íslands hefur
undanfarin ár boðið kennurum í
fjölbreyttar smiðjur, með áherslu á
verklega fræðslu og tilraunir. Mikil
eftirspurn hefur verið eftir endur-
menntun af þessu tagi og nú verða
valdar smiðjur í boði fyrir kennara á
landsbyggðinni. Stefnt er á að gera
þessa þjónustu að föstum lið í Há-
skólalestinni.
Háskólalestin hefur heimsótt hátt
á fjórða tug áfangastaða um allt land
og fengið einstaklega hlýjar mót-
tökur hvert sem komið er. Það er því
alltaf mikið tilhlökkunarefni að hefja
ferðina ár hvert með fjölbreytta
fræðslu í en allt starf lestarinnar er
skipulagt í nánu samstarfi við sveit-
arfélög og skóla hvers áfangastaðar.
Það má því með sanni segja að
tilhlökkun sé í lofti fyrir fjölbreyttri
fræðslu Háskólalestarinnar í frá-
bærum félagsskap ungu kynslóðar-
innar.
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 25