Víkurfréttir - 11.05.2022, Side 26
Tómstundir í Suðurnesjabæ
eru ekki aukaatriði
Sigfríður Ólafsdóttir,
skipar 4. sæti á framboðslista Framsóknar í Suðurnesjabæ.
Við verðum að tryggja börnum í
Suðurnesjabæ auknar tómstundir og
íþróttastarf. Börn hefja iðkun tóm-
stunda fyrst og fremst vegna áhuga og
félagsskapar. Við verðum að gefa þeim
tækifæri til að fá útrás fyrir orku, tján-
ingu og hæfileika. Við viljum auka tóm-
stundir og íþróttastarf, dans, rafíþróttir
og virkja körfuboltann svo eitthvað sé
nefnt. Við viljum að það verði eitt tóm-
stundagjald á barn og með því aukum
við forvarnir hjá börnunum okkar.
Það er vond staða að bjóða iðk-
endum og foreldrum upp á að þurfa
að fara á milli bæjarfélaga til að sækja
tómstund er hentar hverju og einu
barni. Aðstæður og staða foreldra eru
mismunandi og því leggjum við til að
komið verði á tómstundarútu til að
koma til móts við þarfir barnanna er
þurfa að fara á milli Garðs og Sand-
gerðis. Atvinna og tómstund eiga
ekki að rekast á heldur eigum við að
létta undir með foreldrum og forráða-
mönnum barna.
Við viljum skipuleggja tómstunda-
og íþróttastarf á þann hátt að börnin
kynnist sem flestum greinum, en þurfi
ekki að velja eina grein þar sem stuðn-
ingur sveitarfélagsins er ekki nægur.
Börn eru líklegri til að finna sín
áhugasvið og styrkleika ef þau vita
hvort áhugi þeirra og styrkleiki liggi
þar. Það er mikilvægt að við gerum
hlutina á forsendum barnanna ekki
duttlungum stjórnmálanna. Við
verðum að hugsa fyrst og fremst um
velferð barna, þroska og möguleika
þeirra. Einnig hefur íþrótta- og tóm-
stundastarf styrkt sjálfsmynd barna. Í
tómstundum eiga börn að fá að rækta
drauma sína.
Ábyrg fjármála-
stjórn
Einar Jón Pálsson,
forseti bæjarstjórnar og skipar 1. sæti á D-lista.
Það hefur alltaf verið grunnur í starfi
mínu í sveitarstjórn að ábyrg fjármála-
stjórn sé höfð að leiðarljósi, þetta er
grunnur framtíðar hvers sveitarfélags.
Ef þessi grunnhugsun er ekki til staðar
getur illa farið, það er nefnilega auð-
veldara að eyða en greiða.
Við á D-lista munum sem fyrr fylgja
því að gæta aðhalds í rekstri og fjár-
festingum en um leið munum við halda
áfram að byggja upp bæinn og þjón-
ustuna fyrir íbúana. Við erum að hefja
byggingu nýs leikskóla í Sandgerði þar
sem byggður verður sex deilda leik-
skóli en fjórar deildir verða teknar
í notkun strax og tvær síðar. Í lok
næsta kjörtímabils munum við þurfa
að hefja byggingu á nýjum leikskóla í
Garði en gert er ráð fyrir honum í nýju
skipulagi. Við höfum verið að stækka
Gerðaskóla og er sú viðbygging tekin í
notkun í nokkrum skrefum. Á komandi
kjörtímabili munum við þurfa að huga
að stækkun á Sandgerðisskóla og von-
andi getum við byggt hann upp á svip-
aðan máta, stækkað og tekið í notkun
í skrefum.
Við munum nálgast byggingu fjöl-
nota íþróttahúss á sama hátt, við
byggjum gervigrasvöll, en gerum ráð
fyrir í hönnun hans að hægt sé að
byggja yfir hann síðar. Margir spyrja
hvers vegna þessi leið sé farin í stað
þess að byggja fjölnota hús strax.
Svarið við þeirri spurningu er einfalt,
við höfum bara ekki efni á því eins
og staðan er í dag og tekið er tillit til
þeirra framkvæmda sem framundan
eru og þeirra fjármálareglna sem
sveitarfélag þarf að uppfylla. Það er jú
þannig að við getum ekki eytt um efni
fram, það kemur alltaf í bakið á okkur
ef við gerum það.
Kæri kjósandi, ef þú ert sammála
okkur á D-listanum og vilt áfram
ábyrga fjármálastjórn sem grunn að
framtíð sveitarfélagsins þá biðjum við
þig um stuðning á laugardaginn.
Setjum X við D
Framtíðarsýn Bæjarlistans í Suðurnesjabæ
Á Bæjarlistanum situr fjölbreyttur
hópur fólks sem hefur hugsjón fyrir
Suðurnesjabæ. Frambjóðendur list-
ans eru á öllum aldri og hafa margvís-
lega reynslu úr námi, atvinnulífinu og
stjórnmálum. Allir eiga það þó sam-
eiginlegt að hafa brennandi áhuga á að
byggja upp gott samfélag í fallegum bæ.
Við á Bæjarlistanum viljum fyrst
og fremst að íbúum líði vel í sveitar-
félaginu og finni að það er gott að búa
í Suðurnesjabæ. Það er mikilvægt að
þjónusta sé góð við alla íbúa en þó
viljum við leggja sérstaklega áherslu
á að skólarnir okkar geti sinnt öllum
sínum nemendum vel og að eldri borg-
arar og fólk með fötlun fái framúrskar-
andi þjónustu.
Okkur langar til að fegra bæinn
okkar, þannig að alls staðar þar sem
komið er inn í hverfi bæjarins blasi við
snyrtilegt umhverfi sem býður fólk vel-
komið. Þar séu skjólgóðir áningarstaðir
þar sem fólk getur sest niður og notið
útiveru og góðir göngu og hjólastígar
á milli staða. Halda þarf áfram með
öfluga uppbyggingu íþróttaaðstöðu.
Íbúar þurfa að finna og sjá að við erum
heilsueflandi samfélag, enda hefur sú
stefna snertiflöt við alla málaflokka.
Við viljum að atvinnulíf blómstri í
Suðurnesjabæ og að vel sé tekið á móti
nýjum fyrirtækjum. Jafnframt eiga þau
fyrirtæki sem þegar eru í bæjarfélaginu
að finna fyrir stuðningi og samvinnu
við bæjarstjórn í markaðssetningu.
Uppbygging atvinnutækifæra er eitt
af mikilvægustu verkefnum samfélags
svo að það nái að vaxa og dafna.
Mikil áhersla verður lögð á fag-
mennsku í stjórnsýslu og fjármálum
og teljum við að sinna þurfi mann-
auðsmálum af festu og mannúð. Til
að stofnanir sem vinnustaðir nái að
sinna sínum verkefnum á sem bestan
máta þarf að halda vel utan um starfs-
mannahópinn. Hjá bæjarfélaginu
starfar öflugur hópur fólks sem sinnir
daglegum störfum af alúð og dugn-
aði og verðum við að leggja mikinn
metnað í að halda í þennan góða hóp
og sinna honum vel.
Framtíðarsýn okkar byggist á þeirri
trú að Suðurnesjabær muni blómstra
og vera lifandi, lýðræðislegt samfélag
með góðri þjónustu, fallegu umhverfi
og nægri atvinnu. Til þess þurfum
við öll að taka höndum saman, íbúar,
starfsfólk og bæjarstjórn.
Setjum X við O í Suðurnesjabæ á
laugardag.
Framtíð Suðurnesjabæjar er björt
Suðurnesin eru skilgreind sem vaxt-
arsvæði af ríkinu og uppbygging í
kringum alþjóðaflugvöllinn ásamt
framtíðarsýn ISAVIA í þeim efnum
gefur tilefni til mikillar bjartsýni hvað
varðar atvinnumöguleika til langrar
framtíðar.
Sveitarfélagið þarf að bregðast hratt
og örugglega við til að anna eftirspurn
eftir íbúðalóðum og lóðum undir at-
vinnustarfsemi. Ganga þarf óhikað í þá
vinnu til að uppbygging verði í takt við
þá gríðarlegu eftirspurn sem myndast
hefur á fasteignamarkaði.
Ásamt þessu þurfa stjórnendur
sveitarfélagsins að vera tilbúnir að
taka djarfar ákvarðanir þegar kemur
að stærri framkvæmdum innan sveit-
arfélagsins til næstu ára. Aðstöðu
til íþróttaiðkunar yfir vetrartímann
verður að bæta strax á næsta ári, við
getum ekki beðið lengur. Sveitarfélagið
telst á þessari stundu ekki samkeppn-
ishæft sem vænlegur búsetukostur
þegar kemur að foreldrum með börn í
íþróttum. Þessu þarf að breyta.
S-listi Samfylkingar og óháðra vill
að Suðurnesjabær byggist upp sem
sveitarfélag sem hefur upp á flest
allt það að bjóða sem íbúar sækjast
eftir. Ákvörðunum um framkvæmdir
þarf að fylgja eftir af festu og áræðni.
Frambjóðendur okkar eru tilbúnir í þá
vinnu.
Setjum X við S á kjördag.
Jarðfræði/náttúrufræðigreinar (100% afleysing)
Íslenska/íslenska sem annað tungumál
(100% afleysing)
Danska (75% afleysing)
Enska (100%)
Sjúkraliðagreinar (50%)
Sérkennari (100%)
Nánari upplýsingar má sjá á starfatorg.is
og umsóknum skal skilað gegnum þann vef.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
óskar að ráða framhaldsskólakennara
í eftirtaldar stöður:
Góðar gjafir frá fimm-
tugum Kiwanisklúbbi
Dagdvöl aldraðra í Garði og félags-
starf aldraðra í Auðarstofu í Garði
bárust góðar gjafir á dögunum frá
félögum í Kiwanisklúbbnum Hofi í
Garði. Dagdvölin fékk þrekhjól til af-
nota og eignar. Hjólið er sérstaklega
ætlað fyrir eldri borgara.
Við sama tækifæri fékk félagsstarf
aldraðra í Auðarstofu afhentar tvær
spjaldtölvur ásamt lyklaborðum og
hlífðarhulstrum fyrir tölvurnar.
Kiwanisklúbburinn Hof er 50
ára á þessu ári en klúbburinn var
stofnaður í Garði árið 1972 og hefur
starfað óslitið síðan. Helsta fjáröflun
klúbbsins í öll þessi ár hefur verið
flugeldasala en undanfarin ár hefur
hún verið í góðu samstarfi við Björg-
unarsveitina Ægi í Garði.
Það voru þær Tinna Torfadóttir
frá dagvöld aldraðra og Vilma Úlf-
arsdóttir, forstöðukona félagsstarfs
aldraðra í Auðarstofu í Garði og Mið-
húsum í Sandgerði, sem veittu gjöf-
unum viðtöku. Fulltrúar Kiwanis við
athöfnina voru þeir Guðmundur Th.
Ólafsson, Magnús Eyjólfsson, Gísli
Kjartansson og Jón Hjálmarsson.
Frá afhendingu gjafanna frá Kiwanisklúbbnum Hofi. F.v.: Jón Hjálmarsson,
Gísli Kjartansson, Vilma Úlfarsdóttir, Guðmundur Th. Ólafsson,
Tinna Torfadóttir og Magnús Eyjólfsson. VF-myndir: Hilmar Bragi
Guðmundur
Th. Ólafsson
á þrekhjólinu í
dagdvölinni ásamt
þeim Jóni, Magnúsi,
Tinnu og Gísla.
Vilma frá félagsstarfi aldraðra í
Suðurnesjabæ og Guðmundur Th.
Ólafsson, forseti Hofs, með gjafabréf
fyrir spjaldtölvum og tengdum búnaði.
26 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM