Víkurfréttir - 11.05.2022, Qupperneq 27
Menningarsjóður
Suðurnesjabæjar
kemur með víta-
mínsprautu í menn-
ingarlíf bæjarins
Fyrstu styrkirnir úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar voru af-
hentir við hátíðlega athöfn á Almenningsbókasafni Suðurnesja-
bæjar á mánudagskvöld. Að þessu sinni voru afhentir fjórir menn-
ingarstyrkir að upphæð samtals 750.000 krónur. Það er ferða-,
safna- og menningarráð Suðurnesjabæjar sem heldur utan um
menningarsjóðinn.
Boðið var upp á tónlistaratriði frá
tónlistarskólum Suðurnesjabæjar.
Wiktoria Nut spilaði á píanó, Kári
Sæbjörn Kárason spilaði á gítar og
Ingibjörg Hjördís Einarsdóttir söng
tvö lög í lok athafnar við undirleik
Geirþrúðar Fanneyjar Bogadóttur.
Menningarsjóður Suðurnesja-
bæjar byggir stoðir sínar á gjöf frá
Litla leikfélaginu sem starfaði í
Garði um áratuga skeið en skrifað
var undir samkomulag um gjöfina
í september 2020. Um er að ræða
fjármuni sem Litla leikfélagið átti.
Annars vegar í minningarsjóði um
Rögnvald Finnbogason, sem var
virkur félagi í leikfélaginu en lést
langt fyrir aldur fram, hins vegar
fjármunir sem félagið átti á banka-
reikningi þegar starfsemi þess
lognaðist út af. Þegar nýjar reglur
um peningaþvætti og félagasamtök
tóku gildi fyrir fáeinum misserum
var ákveðið að leggja Litla leikfélagið
formlega niður og sjóðir þess voru
þá lagðir sem stofnframlag í Menn-
ingarsjóð Suðurnesjabæjar. Í reglum
sjóðsins segir m.a. að hlutverk
Menningarsjóðs Suðurnesjabæjar
sé að styrkja menningarstarfsemi í
Suðurnesjabæ með fjárframlögum
og efla þannig einstaklinga og fé-
lagasamtök til virkrar þátttöku. Þá
er gert ráð fyrir að sjóðurinn fái
framlag úr fjárhagsáætlun á hverju
ári en að auki getur sjóðurinn tekið
við gjöfum sem ætlaðar eru til að
efla menningarlíf í Suðurnesjabæ,
beri svo við.
Bragi Einarsson frá Litla leikfélaginu og Bergný Jóna Sævarsdóttir frá
Suðurnesjabæ. Hún afhenti Braga blómvönd við upphaf dagskrár sem þakklætisvott
fyrir framlag hins aflagða félags til Menningarsjóðs Suðurnesjabæjar.
Fulltrúar styrkhafa ásamt Braga Einarssyni frá Litla leikfélaginu og Rakel Ósk Eckard,
formanni ferða-, safna- og menningarráðs Suðurnesjabæjar. VF-mynd: Hilmar Bragi
Rakel Ósk Eckard, formaður ferða-, safna- og menningarráðs, afhenti styrki
úr Menningarsjóði Suðurnesjabæjar en að þessu sinni var úthlutað styrkjum
fyrir 750.000 kr.
Hollvinir Unu Guðmundsdóttur í Sjólyst fengu úthlutað kr. 250.000 fyrir
fjögur verkefni sem unnið er að. Verkefnin sem sótt var um eru:
• Ættartré Unu Guðmundsdóttur – sjónrænt og stafrænt.
• Skil – Viskuorð Unu í formi spilastokks.
• Fræðsla – Gerð námsefnis um Unu Guðmundsdóttur, störf hennar og
áhugamál og lífið í Gerðahverfinu á hennar tímum.
• Málþing á Unuhátíð en hugmyndin er að hafa þrjú erindi henni tengd á
málþinginu.
Jazzfjelag Suðurnesjabæjar fékk úthlutað kr. 250.000 vegna tónleikahalds.
Jazzfjelag Suðurnesjabæjar sótti um í sjóðinn vegna tónleikraða félagsins
sem flestir hér hafa orðið varir við og ljóst að félagið hefur lífgað mikið upp
á menningartengda viðburði í Suðurnesjabæ.
Almenningsbókasafn Suðurnesjabæjar fékk úthlutað kr. 100.000 til að
mæta kostnaði við fræðsluerindi sem safnið stendur fyrir. Almenningsbóka-
safn Suðurnesjabæjar hefur staðið fyrir ýmissi kvöld- og seinnipartsdagskrá
í vor og sumar og áform eru um að halda því áfram.
Útskálakirkja fékk úthlutað kr. 150.000 til að standa straum að kærleik-
stónleikum með Regínu Ósk og undirleikara. Hugmyndin er að bjóða upp á
notalega tónleika með tónlist sem tónlistarmaðurinn velur og hefur kærleik,
von og trú að leiðarljósi.
Mikil ánægja var með úthlutunina og ljóst er að menningarlíf í Suðurnes-
jabæ blómstrar þessa dagana en fyrir viku opnaði Byggðasafnið á Garðskaga
aftur eftir endurbætur en þar er m.a. hægt að fræðast um verslunarsögu í
Suðurnesjabæ.
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Fræðsluráð
óskar eftir
tilnefningum
Fræðsluráð Reykjanesbæjar efnir árlega til hvatningar- verðlauna fyrir
verkefni í skólastarfi sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni.
Verðlaunin eru veitt til einstaka kennara, kennarahópa og starfsmanna
í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskóla Reykjanesbæjar sem standa
að baki verkefnunum.
Allir sem vilja geta sent inn ábendingar um áhugaverð verkefni sem hafa
nýst skólasamfélaginu og hafa verið unnin á yfirstandandi skólaári.
Skila þarf inn tilnefningum fyrir 30. maí nk.
Nánari upplýsingar og hlekkur inn á eyðublað fyrir tilnefninguna má
finna á vef Reykjanesbæjar
www.reykjanesbaer.is
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 27