Víkurfréttir - 11.05.2022, Síða 28
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Í SVEITARFÉLAGINU VOGUM 14. MAÍ 2022
Kjörstaður og kjörfundur
Kjörfundur hefst kl. 10 og lýkur kl. 22. Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, Tjarnargötu 2, gengið inn frá leikvelli.
Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum á kjörstað. Talning atkvæða fer fram á sama stað eftir lokun kjörfundar.
Framlagning kjörskrár
Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna sveitarstjórnarkosninga liggur frammi á bæjarskrifstofum að Iðndal 2.
Athugasemdir varðandi kjörskrá má gera til sveitarstjórnar fram á kjördag. Viðmiðunardagur kjörskrár var 6. apríl.
Framboðslistar
Eftirfarandi framboðslistar bjóða fram í Sveitarfélaginu Vogum.
D
Sjálfstæðismenn og óháðir
Björn Sæbjörnsson
Andri Rúnar Sigurðsson
Inga Sigrún Baldursdóttir
Guðmann Rúnar Lúðvíksson
Guðrún Sigurðardóttir
Annas Jón Sigmundsson
Bjarki Þór Kristinsson
Þórunn Brynja Júlíusdóttir
Kinga Wasala
Sædís María Drzymkowska
Sigurður Árni Leifsson
Stefán Harald Hjaltalín
Kristinn Benediktsson
Hólmgrímur Rósenbergsson
E
Framboðsfélag E-listans
Birgir Örn Ólafsson
Eva Björk Jónsdóttir
Friðrik Valdimar Árnason
Ingþór Guðmundsson
Hanna Lísa Hafsteinsdóttir
Ragnar Karl Kay Frandsen
Ingvi Ágústsson
Guðrún Kristín Ragnarsdóttir
Davíð Harðarson
Marko Blagojevic
Tinna Huld Karlsdóttir
Elísabet Ásta Eyþórsdóttir
Bergur Brynjar Álfþórsson
Þorvaldur Örn Árnason
L
Listi fólksins
Kristinn Björgvinsson
Eðvarð Atli Bjarnason
Ellen Lind Ísaksdóttir
Anna Karen Gísladóttir
Jóngeir Hjörvar Hlinason
Inga Helga Fredriksen
Berglind Petra Gunnarsdóttir
Garðar Freyr Írisarson
Karen I. Mejna
Tómas Pétursson
Guðmundur B. Hauksson
Gísli Stefánsson
Guðrún Kristmannsdóttir
Benedikt Guðmundsson
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga
Kjósum nýja forystu
í Vogum
Annas Jón Sigmundsson,
6. sæti á D-lista sjálfstæðismanna og óháðra í Vogum.
Undanfarin tvö kjörtímabil hefur E-
listinn verið í meirihluta í sveitarfélag-
inu Vogum. Segja má að flokkurinn hafi
staðið sig með prýði fyrri hluta þess.
Því miður er ekki hægt að segja það
sama með núverandi kjörtímabil sem
nú er senn á enda.
Oddviti E-listans sagði í ávarpi sem
birtist með kosningablaði sem dreift
var inn á öll heimili í Vogum nýlega að
sveitasjóður hefði verið í góðu jafn-
vægi undanfarin átta ár að undan-
skyldum síðustu tveimur árum en slíkt
hefði verið viðbúið í ljósi aðstæðna.
Því miður getur oddviti E-listans
ekki skellt skuldinni af lélegri rekstr-
arafkomu sveitasjóðs í Vogum á Co-
vid-19. Sveitasjóður var þegar farinn
að skila tapi árið 2019 áður en Co-
vid-19 skall á. Þá voru tekjur sveitar-
félagsins á árunum 2020 og 2021
hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Árið 2020 nam halli á sveitasjóði í
Vogum 190 milljónum króna og árið
2021 nam tapið 170 milljónum króna.
Hvort þessi lélega fjármálastjórn undir
forystu E-listans skýrist af vankunn-
áttu á fjármálalæsi eða því að flokk-
urinn sé einfaldlega orðinn þreyttur
á því að fara með völd í sveitarfélag-
inu er ekki gott að segja. Að skýla sig
á bak við það að erfið staða skýrist af
áhrifum Covid-19 stenst að minnsta
kosti ekki þar sem tekjur sveitarfélags-
ins urðu meiri en áætlanir gerðu ráð
fyrir.
Við upphaf núverandi kjörtímabils
var sveitarfélagið Vogar eitt skuld-
minnsta sveitarfélag landsins. Meiri-
hluti E-listans hefur hins vegar þre-
faldað skuldir þess við Lánasjóð sveit-
arfélaga á kjörtímabilinu. Á árunum
2019 til 2021 var farið í 560 milljón
króna fjárfestingar á sama tíma og tap
á sveitasjóði nam um 400 milljónum
króna. Það þarf ekki mikla hagfræði-
þekkingu til þess að sjá að slíkt er bæði
óskynsamlegt og með áframhaldi á
slíkri stefnu verðar skuldir sveitasjóðs
Voga fljótlega ósjálfbærar. Líkt og að
heimili myndu reka sig á yfirdrætti í
engu samræmi við tekjur fólks.
Á lista Sjálfstæðismanna og óháðra
má finna mikið af frambærilegu fólki.
Þar er fólk sem hefur þegar öðlast góða
þekkingu á málefnum sveitarfélagsins
eftir að hafa setið í sveitarstjórn og
í nefndum á þess vegum. Einnig er
mikið af nýju fólki með góða reynslu
og má þar nefna einn fyrrverandi
fjármálastjóra sveitarfélags og annan
lögfræðing sem starfaði hjá Umboðs-
manni skuldara.
Kjósum nýja forystu í Vogum á kjör-
dag næstkomandi laugardag þann 14.
maí. Sjálfstæðismenn og óháðir vilja
koma á ábyrgri fjármálastjórn og
hverfa frá þeim hallarekstri sem E-list-
inn hefur stundað frá árinu 2019. Það
er ekki gott fyrir neitt sveitarfélag að
vera með sama fólk í forystu í meira en
tvö kjörtímabil. Vogar eiga betra skilið
til að geta vaxið og dafnað sem best á
komandi árum.
Fjármálin skipta máli
Kristinn Björgvinsson,
oddviti L-listans, lista fólksins, í Sveitarfélaginu Vogum.
Vér göngum svo léttir í lundu, því lífs-
gleðin blasir oss við. Við lifum á líðandi
stundu, við lokkandi söngvana klið.
Þessi texti á ágætlega við nú í að-
draganda kosninga 2022 þar sem allir
framboðslistar reyna eftir fremsta
megni að syngja viljayfirlýsingar og
loforð fyrir komandi kjörtímabil. Allir
vilja vel og allir ætla að leggja sig fram
um að gera góðan bæ betri og er ég
ekki undanskilinn . Það er nú einu
sinni þannig að við þurfum aðeins að
staldra við og skoða hvað er í boði, líta
aðeins aftur í tímann og setja hlutina
í samhengi.
Ef við tökum til að mynda ábyrga
fjármálastjórn E-listans hvernig hefur
hún verið. Þeir voru í meirihluta 2006-
2011. Árið 2006 bjuggu hér 1106 íbúar
og voru skuldir á hvern íbúa 408.442.-
til rekstrarniðurstöðu ársins 2011
hækkaði skuld á íbúa í 1.572.000.- og
þá voru 1130 íbúar ss skuldir og skuld-
bindingar hækkuðu úr 451.736.852.-
í 1.776.001.000.- Þetta gerist vegna
gengisþróunar óhagstæðra lána og
kannski óviðráðanlegra aðstæðna í
leiguskuldbindingum en skuldir og
skuldbindingar engu að síður þó svo
að E listinn væri búinn að nota vexti
og verðbætur af framfarasjóði sveitar-
félagsins til að rétta af fjárlagahalla yfir
300 milljónir.
Árið 2011 urðu meirihluta slit eftir
skammt samband E-lista og H-lista,
slitnaði upp úr því vegna þess að
E-listinn vildi línur í lofti (þar hefur
reyndar orðið viðsnúningur eins og á
svo mörgu.) enn H listinn í jörðu var
það bitbeinið hjá þeim en ekki rekstur
bæjarins.
Stofnuðu L-listi og H-listi þá meiri-
hluta og á þeim tíma var ákveðið að
ráðast í að greiða niður óhagstæðar
skuldir og kaupa til baka eignir sveit-
arfélagsins af Fasteign hf. Við þessa
gjörninga lækkuðu skuldir og skuld-
bindingar úr 1.572.000.- mv 1130 íbúa
niður í 807.000.- mv 1109 íbúa (árið
2014). Áttu áhrif þessa gjörnings eftir
að lækka skuldir og skuldbindingar enn
frekar næstu 2 árin. Nú tekur E-listin
aftur forystu og við ágætis búi í maí
2014 og heldur ótrauður áfram kaupir
fasteignir á borð við Voga hf ca 40 m.
keypti verslunina í Iðndal 2 á ca milli
25 og 30 m (hef ekki nákvæma tölu),
rekur bensínstöð og hraðbanka. Keypti
Garðhús (kaupverð ekki vitað) mikil
fasteignaviðskipti sem skila engum
arði fyrir skattgreiðslur bæjarbúa.
Enda nú í lok árs 2021 eru skuldir og
skuldbindingar orðnar 1.215.000.- mv
1357 íbúa ss 1.648.755.000.-
Nú kunna menn að segja að hallinn
sé aðstæðum að kenna 2020 og 2021,
enn sannleikurinn er sá að skuldir
og skuldbindingar hafa hækkað um
hundrað til 200 milljónir jafnt og þétt
frá 2018.
Sjálfstæðismenn hafa í tvö kjörtíma-
bil setið í minnihluta með tvo kjörna
fulltrúa og ekki kannski mikið svo sem
um það að segja en er D-listinn flokkur
niðurrifs eða uppbygginga? Oddviti
D-listans hefur viljað rífa Voga hf hús
sem kannski í raun kom Vogunum á
kortið því þar var atvinna, hingað flutt-
ist fólk byggði sér hús og lögðu grunn
að þessum góða bæ sem hann er í dag.
Ég las grein í dag frá oddvita sjálf-
stæðismanna þar talar hann um hafn-
arsvæðið, deiluskipuleggja fyrir íbúa-
byggð „Rífa gamla vigtarskúrinn“ þar
er fyrirtæki í dag sem telur um sjö
störf en við skulum rífa hann, það eru
nokkur fyrirtæki á hafnarsvæðinu eiga
þau öll að víkja sem ekki fara saman
með íbúabyggð. Oddviti sjálfstæðis-
manna talar nær eingöngu um íbúa-
byggð en ekki atvinnu uppbyggingu
sem er ekki alveg í takt við það að þeir
ætla ekki að snúa stefnu sinni í leik-
skóla málum þó svo að sú stefna virð-
ist gera barna fólki mjög erfitt eða nær
vonlaust að setjast að í Vogum ef það
þarf að sækja vinnu í önnur bæjarfélög.
E listinn má þó eiga það að þrátt
fyrir að vera í meirihluta og hafa sam-
þykkt þessar breytinga og getað breytt
til baka fyrir kosningar eru þó komnir
með það að vilja endurskoða afstöðu
sína að afloknum kosningum. En þeirra
listi er fullur af góðu fólki rétt eins og
hjá E- og L-listanum.
En því miður vitum við öll hvað
ábyrg fjármálastjórn þýðir hjá sjálf-
stæðismönnum, vonum bara að Vog-
arnir verði ekki seldir á lokuðu útboði
eða hraðbankinn seldur til vina og
vandamanna
Það þarf ekki að vera erfitt eða
flókið að halda hlutum í lagi og falleg-
um, það þarf að hafa metnað td. mála
bryggjukantinn, setja ruslatunnu,
bekki, gróðursetja tré o.fl. Þetta geta
allir gert.
En við þurfum að laga fjármálin
það eru þau sem skipta máli, þá fyrst
getum við gert góðan bæ betri og
byggilegri fyrir komandi kynslóðir. Ég
reikna með að þessi skrif mín afli mér
ekki mikilla vinsælda hjá forkólfum
framboðanna og kannski ekki margra
stuðningsmanna þeirra en svona lítur
þetta út fyrir mér og þetta þarf að
komast í lag ef Vogarnir eiga að eiga
möguleika á því að vera sjálfstætt bæj-
arfélag. Hvernig sem kosningarnar fara
þá vona ég að við gerum þetta saman
og gerum þetta vel.
Skólastjóri Stóru-Vogaskóla hefur
óska eftir ráðningarheimild fyrir
allt að 50% starfi vegna atvinnu-
leitanda með skerta starfsgetu.
Bæjarráð Sveitarfélagsins sam-
þykkir erindið.
Áheyrnarfulltrúi L-listans óskaði
eftir að eftirfarandi væri bókað við
þennan lið:
„Ég vil benda á að ítrekað hef ég
rætt um að ráða atvinnuleitendur
með skerta starfsgetu til sveitar-
félagsins og styð því heils hugar að
þessi ráðning verði heimiluð.“
Ráða atvinnu-
leitanda með
skerta starfsgetu
Styrkja Frú
Ragnheiði á
Suðurnesjum
til bílakaupa
Bæjarráð Suðurnesjabæjar sam-
þykkti nýverið samhljóða að veita
styrk að fjárhæð kr. 350.000 til
kaupa á bifreið fyrir starfsemi Frú
Ragnheiðar á Suðurnesjum.
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar
hefur samþykkt afgreiðslu bæjarráðs
samhljóða.
28 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM