Víkurfréttir - 11.05.2022, Qupperneq 29
„Klárið verkið drengir“
Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Lögin um sölu á eignarhlutum ríkisins
í bönkunum sem samþykkt voru í des-
ember 2012 áttu að skapa trausta um-
gjörð ef ætti að selja hlutina. Leiðarstef
laganna eru gagnsæi, hlutlægni, jafn-
ræði og hagkvæmni. Draga átti mikil-
vægan lærdóm af söluferli bankanna
fyrir hrun og bankahruninu.
Salan í höndum fjármála- og efna-
hagsráðherrans hefur hins vegar orðið
til þess að almenn óánægja ríkir og
traust til ráðherrans og ríkisstjórnar-
innar hefur beðið hnekki. Ásakanir um
spillingu og vanrækslu eru háværar
og um að lögin um söluna hafi verið
brotin.
Aðferðin sem fjármála- og efnahags-
ráðherra samþykkti að nota var lokað
útboð ætlað hæfum fjárfestum. Á Ís-
landi er ekki til neinn opinber listi yfir
fagfjárfesta líkt og víða erlendis (in-
stitutional investors). Við bankasöluna
sem átti að vera opin og gagnsæ sam-
kvæmt lögum, hringdu valdir miðlarar í
fjárfesta sem þeir þekktu og buðu þeim
að taka þátt í útboðinu og þeir fengu
góðan afslátt frá markaðsverði.
Þeir sem keyptu
Fólki brá þegar listinn yfir þá sem
keyptu var birtur. Nöfn sem þjóðin
þekkir af biturri reynslu í aðdraganda
bankahruns, faðir fjármálaráðherrans
og frændur voru þarna, nokkrir af þeim
sem sáu um söluna meira að segja og
erlendur fjárfestingasjóður sem keypti
og seldi strax með góðum hagnaði í
fyrra útboði fékk tækifæri til að leika
sama leikinn aftur.
Þingmenn stjórnarflokkanna sem og
stjórnarandstöðu hafa lýst vonbrigðum
sínum með niðurstöðuna. Formaður
fjárlaganefndar sagði í ræðu á Alþingi
að hún hefði staðið í þeirri trú að um
langtímafjárfesta væri að ræða og því
hafi niðurstaðan komið á óvart. For-
maðurinn hefði átt að vita að Sjálf-
stæðismönnum er ekki treystandi til
að fara með eignir og fjármál almenn-
ings.
Fjármálaráðherrann segist ekki hafa
vitað hver keypti og virðist halda að
það sé einmitt eins og það á að vera –
en Bankasýslan segir að hvert skref í
söluferlinu hafi verið tekið í nánu sam-
starfi við stjórnvöld sem hafi verið ít-
arlega upplýst um öll skref sem stigin
voru. Enda gera lögin um söluna ráð
fyrir því.
Lög skulu standa
Mér virðist augljóst að við bankasöl-
una hafi lögin um sölu á eignarhlutum
ríkisins í fjármálafyrirtækjum verið
brotin. Um sölumeðferðina er fjallað
í fjórðu grein laganna. Þar er farið yfir
hvað Bankasýslunni er ætlað að gera,
þ.e. undirbúa söluna, leita tilboða, meta
tilboð, hafa umsjón með samingavið-
ræðum við utanaðkomandi ráðgjafa
og væntanlega kaupendur og ann-
ast samningagerð. Seinni málsgrein
greinarinnar er svona: „Þegar tilboð í
eignarhluti liggja fyrir skal Bankasýsla
ríkisins skila ráðherra rökstuddu mati
á þeim. Ráðherra tekur ákvörðun um
hvort tilboð skuli samþykkt eða þeim
hafnað og undirritar samninga fyrir
hönd ríkisins um sölu eignarhlutans.“
Hér er alveg skýrt að það er ráðherra
sem tekur ákvörðun um tilboðin, sam-
þykkir þau eða hafnar. Ráðherrann
getur ekki falið sig á bak við Banka-
sýsluna eða miðlara úti í bæ. Ráðherra
ber alla ábyrgð.
Samkvæmt viðtölum við fjármála-
ráðherrann um málið er engu líkara en
að hann hafi sagt við Bankasýsluna:
„Klárið verkið drengir, ég vil ekkert
vita.“
Ráðamenn hafa sagt að umgjörðin
um bankasöluna hafi ekki haldið og
því þurfi að breyta henni og byrja á að
leggja niður Bankasýsluna.
Mér finnst hins vegar augljóst að
fjármálaráðherra hafi ekki haldið sér
innan umgjarðarinnar sem lögbundin
er og að á því þurfi hann að axla
ábyrgð.
Tímabókanir í síma 568 6880
VANTAR ÞIG
HEYRNARTÆKI?
Glæsibæ | Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Heyrnartaekni.is | 568 6880
Nýju MORE heyrnartækin eru þjálfuð til að þekkja hljóð. Innbyggt djúptauganet
skilar einstaklega nákvæmri hljóðvinnslu og skýrum hljómgæðum.
Árni Hafstað heyrnarfræðingur hjá Heyrnartækni verður í Keflavík
25. maí við heyrnarmælingar, ráðgjöf og sölu heyrnartækja.
Stóra myndin
Birgir Örn Ólafsson, Eva Björk Jónsdóttir, Friðrik Valdimar Árnason, Ing-
þór Guðmundsson, Hanna Lísa Hafsteinsdóttir, frambjóðendur í 1.–5. sæti
E-listans í Sveitarfélaginu Vogum
Kæru kjósendur.
Það er óhætt að segja að margt hafi
breyst á liðnum árum. Efnahagshrun,
heimsfaraldur og eldgos svo eitthvað
sé nefnt. Margt höfum við séð og upp-
lifað sem við áttum ekki von á. Við
horfum fram á krefjandi en spennandi
tíma í Vogum og á Suðurnesjum öllum.
Sveitarfélagið Vogar hefur eðli málsins
samkvæmt þurft að stóla á samvinnu
og samstarf við nágranna sína þegar
kemur að stærri verkefnum. Við höfum
metnað og vilja til að bæta þjónustu
við íbúa okkar en um leið þurfum við
að sýna aðhald og ráðdeild. Undanfarið
kjörtímabil hafa mörg stór mál rekið á
fjöru okkar.
Ber þar fyrst að nefna svokallað
„Línumál“. Án orðalenginga þá höfum
við þurft að berjast á móti straumnum
til að opna augu alþingismanna og ann-
arra fyrir mikilvægi þess að setja Suð-
urnesjalínu 2 í jörðu. Það er ekki ein-
ungis gert vegna ásýndar heldur einnig
vegna mikilvægi skipulags og síðast
en ekki síst öryggisins vegna. Í niður-
stöðuskýrslu jarðvísndarstofnunar Há-
skóla Íslands um náttúru- og eldgosavá
í Sveitarfélaginu Vogum, kemur fram
að öruggast sé að leggja línuna í jörðu
norðan Reykjanesbrautar. Við munum
berjast fyrir þessum hagsmunum Suð-
urnesjamönnum öllum til heilla og
munum ekki láta hræðsluáróður beygja
okkur af leið.
Við höfum einnig talað fyrir því
að rannsóknir hafi sinn gang í Hvass-
ahrauni þegar kemur að mögulegu flug-
vallarstæði. Einsleit atvinnupólitík má
ekki verða til þess að Suðurnesjamenn
kasti frá sér mögulegu tækifæri af því
einu, að alllt þurfi að fara fram á Kefla-
víkurflugvelli. Nú kann vel að verða
að þetta verði ekki fýsilegur kostur
en gerum okkur ekki upp niðurstöður
fyrirfram. Sláum ekki út af borðinu
tækifæri sem getur gefið okkur aukinn
kraft inn á svæðið. Klárum vinnuna og
tökum svo ákvörðun.
Eitt af stóru málum okkar er nýtt
vatnsból fyrir sveitarfélagið. Mikilvægt
er að Sveitarfélagið Vogar eignist sem
fyrst nýtt vatnsból sem gæti þá þjónað
sem varavatnsból fyrir öll Suðurnesin
enda mikilvægt að hugsa í nýrri nálgun
þegar kemur að innviðum á svæðinu.
Á tímum sem þessum skiptir máli að
hafa fjölbreytta innviði sem geta stutt
hver við aðra.
Síðast en ekki síst verður við að hafa
þor og dug til að ræða kosti og galla
sameiningar. Við munum halda áfram
upplýstri og málefnalegri umræðu um
kosti og galla sameiningar en á end-
anum verða það íbúarnir sem ákveða
framtíðina í því.
Áfram Vogar – Áfram Suðurnes.
Fyrsta skóflustungan vegna
framkvæmda við nýja félagsað-
stöðu eldri borgara við Víðihlíð í
Grindavík, var tekin við hátíðlega
athöfn þriðjudaginn 10. maí.
Það var Hjálmar Hallgrímsson,
formaður bæjarráðs, sem tók skóflu-
stunguna, eftir að hafa fengið smá
kennslu hjá Jóni Gunnari Jónssyni
hjá Jón & Margeir.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist
í haust og það muni taka um 18–24
mánuði ár að ljúka því. Sigurbjörn
Daði frá Víkurfréttum tók meðfylgj-
andi myndir.
Hjálmar fór á gröfuna
Tók fyrstu skóflu-
stunguna að félagsað-
stöðu eldri borgara
vf isÞú finnur allar
nýjustu fréttirnar
frá Suðurnesjum á
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
HJÖRLEIFUR MAGNÚSSON
Víkurbraut 15, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 30. apríl.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 12. maí klukkan 13.
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Margrét Hjörleifsdóttir Guðmundur Axelsson
Gróa Björk Hjörleifsdóttir Brynjar Huldu Harðarson
Brynja Hjörleifsdóttir Svavar Marteinn Kjartansson
Unnsteinn Ómar Hjörleifsson Larisa Viktorsdóttir
Sigrún Alma Hjörleifsdóttir Ólafur Árnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
HÖRÐUR JÓHANNSSON
Krossmóa 5
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 9. maí.
Ragnheiður S. Ragnarsdóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 29