Víkurfréttir - 11.05.2022, Side 31
Hætti að spila út af meiðslum
Luka Jagačić, þjálfari Reynis
Sandgerði, kom fyrst til Íslands
árið 2013 og lék þrjú tímabil
með Selfossi. Eftir það sneri
hann aftur til heimalands síns,
Króatíu, og lék þar eitt tímabil
en hann lauk ferlinum með
Njarðvík árið 2018.
„Ég er búinn að fara í átta aðgerðir
á hægra hné en náði því ekki góðu
og þurfti að lokum að hætta að spila
snemma. Árið 2018 kom eiginkona
mín með mér til Íslands og fékk
vinnu fljótlega, við höfum búið hér
síðan.
Þegar Halli [Haraldur Guð-
mundsson] fékk mig til Reynis var
hugmyndin að ég myndi spila með
þeim en vegna meiðslanna gekk það
ekki, ég bara gat ekki spilað. Þá bauð
hann mér að vera áfram sem þjálfari
með honum og síðustu þrjú ár finnst
mér við hafa skilað af okkur góðu
verki með Reynismönnum.“
Jagačić segir undirbúningstíma-
bilið hafa gengið vel þrátt fyrir að-
stöðuleysi yfir vetrartímann. „Það
var mikill akstur fram og til baka til
að sinna æfingum en ég er virkilega
ánægður með hvernig liðið höndlaði
undirbúningstímann, bara almennt
innan og utan vallar. Mér fannst þeir
leggja sig fram við æfingar og þeir
léku vel í leikjum á undirbúnings-
tímabilinu.“
Markmiðið að gera betur
en á síðasta tímabili
„Það er markmið okkar í sumar, að
gera betur en á síðasta tímabili. Við
enduðum með 32 stig í fyrra og það
er eitthvað sem við viljum bæta.
Það hafa eðlilega orðið einhverjar
breytingar á leikmannahópnum
hjá okkur, einhverjir farnir og aðrir
komnir, en ég er heilt á litið mjög
sáttur við hópinn. Við erum með
marga unga leikmenn úr Reykja-
nesbæ og ég nýt þess að vinna með
þeim. Þeir eru efnilegir en þurfa
að halda áfram að vera hungraðir
og metnaðarfullir eins og þeir eru
núna.“
Jagačić segir að mæting á fyrsta
leik hafi verið góð og hann finni
fyrir stuðningi við liðið. „Það skiptir
okkur alla miklu máli. Auðvitað
verðum við líka að skila árangri til
að gefa stuðningsmönnum ástæðu
til að mæta á leikina – og jafnvel að
fjölga í hópnum, það myndi gefa
okkur aukinn kraft.“
Reynir Sandgerði tók á móti
Haukum úr Hafnarfirði á föstudag.
Eftir jafnan leik tókst gestunum
að brjóta varnir Reynismanna rétt
undir lok leiks (84’) og tryggja sér
sigur. Reynismenn töpuðu því fyrsta
leik en Jagačić segir að leikurinn hafi
verið jafn og úrslitin getað fallið með
báðum liðum. „Já, við töpuðum á
föstudag en þetta var erfiður 50/50
leikur sem hefði getað farið á hvorn
veginn sem er. Ég held að deildin sé
mjög jöfn og margir leikir eigi eftir að
verða þannig í sumar.
Ég vil samt hrósa leikmönnunum
sem lögðu sig fram og börðust til
enda en því miður rann tíminn út
án þess að við næðum að jafna. Við
fengum okkar færi en náðum ekki að
klára þau, þess vegna tóku Haukar
öll þrjú stigin.“
Jagačić segist hafa fulla trú á að
Reynismenn komi til baka og sæki
sigur í næsta leik.
„Við munum allir leggjast saman í
greiningarvinnu á síðasta leik til að
sjá hvað við þurfum að bæta. Svo
mætum við sterkir til leiks gegn Völ-
sungi á Húsavík um næstu helgi – ég
hef 100% trú á að liðið sé tilbúið í
það,“ segir Luka Jagačić að lokum.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Luka Jagačić og Haraldur Guðmundsson saman
á hliðarlínunni. Mynd af Facebook-síðu Jagačić
Besta deild karla: Keflavík - ÍBV 3:3
Sigurður Ragnar Eyj-
ólfsson, þjálfari meistara-
flokks karla hjá Keflavík,
eftir jafntefli við ÍBV. Þar
sem Keflvíkingar voru
mikið betri og komust
í 2:0 í fyrri hálfleik en
misstu mann af velli
skömmu fyrir leikhlé. Við það
komust Eyjamenn inn í leikinn,
náðu að jafna og komast yfir en
Adam Árni Róbertsson jafnaði
fyrir Keflavík í uppbótartíma.
„Við spiluðum mjög vel
í síðustu tveimur leikjum
og erum svekktir að vera
ekki með fleiri stig út
úr þeim. Við spiluðum
manni færri í 60 mínútur
gegn ÍBV og sýndum
góðan karakter að jafna
leikinn en þetta var leikur sem við
áttum að vinna. Dómgæslan hafði
mikil áhrif á leikinn en við gerðum
líka okkar mistök. Næsti leikur er
gegn Leikni og við fáum vonandi
góðan stuðning í þeim leik.“
Besta deild kvenna: Valur - Keflavík 3:0
Keflavík mætti Íslandsmeist-
urum Vals í Bestu deild kvenna
í þriðju umferð Íslandsmótsins.
Eftir markalausan fyrri hálfleik
skoruðu Íslandsmeistararnir þrjú
mörk í þeim seinni og fóru með
3:0 sigur af hólmi.
Lengjudeild karla: Þróttur Reykjavík - Njarðvík 0:4
Njarðvíkingar byrjuðu 2.
deild með látum og það
var Þróttur Reykjavík
sem varð fyrir barðinu
á þeim í fyrstu um-
ferð. Fyrirliðinn Marc
McAusland setti tóninn
og skoraði fyrsta markið
(10’) og í kjölfarið fylgdu þrjú
mörk frá Oumar Diouck (26’),
Magnúsi Þóri Matthíassyni
(70’) og Úlfi Ágústi Björnssyni
(77’). Víkurfréttir heyrðu í fyrir-
liðanum eftir leik og spurðum
hvert markmið sumarsins væri.
„Það var frábært að byrja á fjög-
urra marka sigri og halda hreinu.
Við einblýnum á sæti í næstefstu
deild að ári. Ég held að við
séum með sterkasta liðið
í deildinni og ef við náum
að halda mannskapnum í
formi þá held ég að það sé
raunsætt markmið.
Við áttum góðu gengi
að fagna á undirbúnings-
tímanum þar sem við unnum
Lengjubikarinn í B-deild. Við
tókum það með okkur inn í leikinn
núna og byrjuðum á þremur
stigum. Deildin er það sem við ein-
beitum okkur að þótt við eigum
mjög áhugaverðan bikarleik fyrir
höndum gegn Keflavík. Sá leikur
ætti að vera góð skemmtun.“
Lengjudeild karla: Þróttur - Fjölnir 0:3
Byrjunin í næstefstu
deild lofaði góðu en
Þróttarar vörðust vel í
fyrri hálfleik gegn Fjölni
og sköpuðu sér nokkur
álitleg færi. Eftir marka-
lausan fyrri hálfleik
fékk Þróttur á sig fyrsta
markið (53’) og tvö til viðbótar
á skömmum tíma (59’ og 62’).
Hvað fannst Eiði Ben Eiríks-
syni, þjálfara Þróttar, um
frumraun þeirra í Lengju-
deildinni?
„Mér fannst margt
ágætt. Sérstaklega fyrri
hálfleikurinn þar sem
við sköpuðum fín færi. Í
seinni var markið ákveðin
tuska í andlitið og svo fáum við á
okkur tvö alltof ódýr mörk sem
við eigum að koma auðveldlega í
veg fyrir.“
Lengjudeild kvenna: Tindastóll - Grindavík 2:0
Grindavík byrjaði á erf-
iðum útileik gegn Tinda-
stóli sem féll úr efstu
deild í haust. Tindastóll
skoraði tvívegis (10’ og
88’) og var framherjinn
Murielle Tiernan að
verki í bæði skiptin. Jón
Óli Daníelsson, þjálfari Grindvík-
inga, var heilt yfir sáttur
við frammistöðu liðsins.
„Við vorum ívið betri
í leiknum en Tindastóll
voru mjög skipulagðar og
gerðu vel. Þær náðu for-
ystu í fyrri hálfleik og við
reyndum allt til að jafna
en fengum á okkur mark í lokin
og því fór sem fór.“
3. deild karla: KFG - Víðir 0:1
V íðismenn byrjuðu
mótið á góðum útisigri
gegn KFG. Það var Jó-
hann Þór Arnarsson sem
skoraði mark Víðis á 79.
mínútu auk þess sem
annað mark sem Jóhann
skoraði seinna í leiknum
var dæmt af vegna rangstöðu.
„Þetta var mjög góður og verð-
skuldaður sigur. Það lögðu sig allir
fram í liðinu, líka þeir sem
komu inn á, og geggjað að
byrja deildina á þremur
punktum,“ sagði Jóhann.
„Síðan skoraði ég annað
mark sem var dæmt af
vegna rangstöðu en í
myndbandinu eftir leik
sást að ég var það klárlega ekki.“
kNattSPYrNuSaMaNtEkt
BR meistari í 3. deild
Borðtennisfélag Reykjanesbæjar
(BR) varð deildarmeistari í þriðju
deild um helgina eftir að A-lið BR
lagði B-liðið 3:0 í úrslitaviðureign
þriðju deildar Borðtennissambands
Íslands. Þetta er frábær árangur en
BR tefldi fram liði í deildarkeppni í
fyrsta sinn nú í vetur en félagið var
stofnað árið 2021.
Leikið var í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði og með
árangri sínum mun BR-A keppa í 2.
deild á næsta ári. Enn er möguleiki
á að B-lið BR muni einnig vinna sér
sæti í 2. deild en BR-B mun keppa
við A-lið Samherja sem er í 2. deild
um sæti í deildinni á næsta ári.
Liðsmenn A-liðs BR tímabilið 2021–2022 (frá vinstri): Damian Kossakowski, Abbas Rahman Abdullah, Mateusz Marcykiewicz, Piotr
Herman og Bjarni Þorgeir Bjarnason, þjálfari. Á efri myndinni er Piotr Herman, formaður félagsins, stoltur með verðlaunabikarinn.
M
yn
d:
Fó
tb
ol
ti.
ne
t
M
yn
d:
Fó
tb
ol
ti.
ne
t
Úrslit leikja og fréttir
af íþróttaviðburðum á
Suðurnesjum birtast
reglulega á vefnum
vf.issport
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 31