Víkurfréttir - 11.05.2022, Blaðsíða 32
Mundi
Þessi vél er örugglega úr
sovétskum njósnakafbáti ...
Kaninn var þarna um árið!
Ég komst áþreifanlega að því nú í vik-
unni að lýðræðið kostar – meira um
það hér á eftir.
En lýðræðið er dýrmætt og mikil-
vægt, og eins og Churchill sagði er það
ekki fullkomið, en samt besta stjórnar-
formið sem í boði er. Í tilefni sveitar-
stjórnarkosninganna nýti ég þennan
ágæta vettvang enn og aftur til þess
að brýna okkur öll til að taka þátt,
lýðræðið er ekki sjálfsagt, fyrir því
hafa blóðugar styrjaldir verið háðar í
gegnum aldirnar…og eru enn því miður
eins og stríðið í Úkraínu er átakanlegur
vitnisburður um. Það er því áríðandi
að við kjósendur tökum skyldum
okkar alvarlega, mætum öll á kjörstað
og tökum þátt í að velja okkur fulltrúa
og veita þeim umboð til góðra verka.
Það er alltaf í tísku að tala stjórn-
málin og ekki síst stjórnmálamenn
niður. Hver kannast ekki við sígilda
slagara á borð við að „það skipti sko
engu máli hverja þú kýst – það er sami
rassinn undir þeim öllum“ og að stjórn-
málamenn séu algjörlega duglausir
upp til hópa. Ég leyfi mér að mótmæla
þessu hástöfum. Hafandi verið beinn
þátttakandi í stjórnmálum í tvo ára-
tugi kynntist ég alls konar stjórnmála-
mönnum úr alls konar flokkum. Suma
líkaði mér betur við en aðra, aðra
nánast hef ég haft óbeit á. Það breytir
ekki því að ég þurfti að vinna með
þeim öllum, hvort sem mér líkaði það
betur eða verr, því það gerir lýðræðið
kröfu um. Og allt þetta fólk þurfti líka
að láta sér það lynda að vinna með
mér, hvort sem því líkaði það betur
eða verr.
Það sem ég komst að raun um í öllu
mínu stjórnmálavafstri er að það er
gott fólk í öllum flokkum og að fólk
sem gefur kost á sér í stjórnmálastarf
gerir það fyrst og síðast til að láta gott
af sér leiða og með það eitt að mark-
miði að gera samfélagið sitt betra. Þess
vegna eigum við að fagna því þegar
fjölbreyttur hópur fólks með ólíkar
stefnur og skoðanir býður sig fram til
að gera bæinn okkar betri, við eigum
að brýna þau til góðra verka, vera
gagnrýnin á uppbyggilegan hátt og
umfram allt gera kröfur um efndir fal-
legra fyrirheita fyrir kosningar. Fram-
bjóðendur og kjörnir fulltrúar eiga að
sama skapi að sýna kjósendum sínum
þann metnað og virðingu að leggja sig
alla fram og standa við það sem sagt
er. Ekkert er hallærislegra en að afsaka
eigið aðgerðarleysi með margtuggnum
og þvældum afsökunum.
En þá aftur að kostnaðinum við
lýðræðið. Eftir ofangreinda brýningu
er lesendum væntanlega orðið ljóst
að undirrituð leggur mjög mikið upp
úr því að við nýtum atkvæðisréttinn.
Við fjölskyldan vorum á Íslandi í síð-
ustu viku til að ferma yngri soninn og
kusum við hjónin auðvitað samvisku-
samlega utankjörstaðar. Það uppgötv-
aðist hins vegar þegar heim til Parísar
var komið að frumburðurinn hafði
gleymt því og var auðvitað drifinn í
snatri í sendiráð Íslands hér í borg til
að kjósa. Kjósandinn ber ábyrgð á því
að atkvæðið komist til skila í tíma og
höfðum við einungis nokkra daga til
stefnu. Eftir að hafa varið dágóðum
tíma á pósthúsum bæjarins og fengið
einungis þau svör að það væri erfitt að
lofa að þetta kæmist til skila fyrir helgi
ákvað lýðræðiselskandi móðirin að við
þetta yrði ekki unað - DHL var málið.
Þar var því lofað að atkvæðið góða yrði
komið á áfangastað innan sólarhrings,
ekkert mál! Glöð í bragði smellti ég
kortinu í posann – 79 Evrur mátti þetta
kosta. Lýðræðið kostaði okkur sum sé
rúmlega 11 þúsund krónur í þetta sinn!
En munið bara eitt - þegar við vinnum
með einu atkvæði þá vitið þið hverjum
það er að þakka!
Kostnaður
lýðræðisins
LO
KAO
RÐ
RAGNHEIÐAR ELÍNAR
Sigurður Stefánsson og hans menn
hjá Köfunarþjónustu Sigurðar voru
að sinna viðhaldi á frárennslislögn
frá Keflavíkurflugvelli við Djúpuvík
nærri Stafnesi þegar þeir fundu
óvænt gamla vél úr báti á hafsbotni.
Flotbelgir voru settir á vélina og
henni fleytt að bryggju í Höfnum á
miðvikudag í síðustu viku þar sem
hún var hífð á land.
Um er að ræða glóðarhausvél
frá Skandia með framleiðslunúm-
erið 25616. Nú er eftirgrennslan
í gangi um það úr hvaða báti vélin
gæri verið. Glóðarhausvélar voru
algengar á fyrri hluta síðustu aldar.
Vélin fannst á um 18 metra dýpi eina
150 til 200 metra frá landi.
Leitað hefur verið til kunnugra en
ekki hafa fengist upplýsingar um úr
hvaða bát vélin gæri verið. Þá liggur
heldur ekki fyrir hvað verður um
vélina eða hvar hún verður varð-
veitt.
Fundu gamla glóðarhausvél
undan Djúpuvík nærri Stafnesi
Um er að ræða glóðarhausvél
frá Skandia með framleiðslu-
númerið 25616.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Vélinni fleytt í land í Höfnum. Hópurinn frá Köfunarþjónustu Sigurðar.