Verktækni - 2019, Side 5
5
Áhrif loftlagsbreytinga á vatnsveitur og vatnsgæði á
Íslandi – áhættuþættir og aðgerðir
María J. Gunnarsdóttira, Sigurður Magnús Garðarssona, Hrund Ó. Andradóttira og Alfreð
Schiöthb
aVatnaverkfræðistofa, Umhverfis- og byggingarverkfræði, Háskóli Íslands, Hjarðarhaga 6, 107
Reykjavík.
bHeilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra.
Fyrirspurnir:
María J. Gunnarsdóttir
mariag@hi.is
Greinin barst 12. september 2019.
Samþykkt til birtingar 18. desember 2019.
Ágrip
Loftlagsbreytingar munu hafa áhrif á vatnsveitur og vatnsgæði með ýmsum hætti. Það eru fyrst og fremst
þrír veðurtengdir þættir sem hafa áhrif: hærri lofthiti; hækkun á sjávarstöðu; og svæðisbundnar
árstíðarbundnar breytingar á úrkomu í bæði magni og ákafa. Í þessari rannsókn voru rýndar erlendar og
íslenskar greinar og skýrslur um áhrif loftslagsbreytinga á vatnsauðlindina með áherslu á norðurslóðir.
Gerð var greining á ýmsum áhættuþáttum er varðar gæði neysluvatns með greiningu á gögnum úr
reglulegu eftirliti heilbrigðiseftirlita landsins með vatnsveitum og vatnsgæðum. Einnig var gert gróft
hættumat á að skriðuföll eða flóð eyðilegðu vatnsból á eftirlitssvæði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands
eystra. Helstu niðurstöðurnar eru þær að loftlagsbreytingar auka hættu á truflun á rekstri vatnsveitna og
á mengun neysluvatns. Á eftirlitssvæði Norðurlands eystra eru meira en helmingur vatnsbóla í hættu á
skemmdum vegna skriðufalla og á 5% vatnsbóla er skriðuhættan mikil, en flóðahætta er lítil á öllu
svæðinu. Hættan er mjög mismunandi eftir landssvæðum og er almennt séð meiri hjá minni vatnsveitum.
Í lokin eru settar fram tillögur byggðar á greiningunni um nauðsynlegar aðgerðir til að bregðast við
áhættuþáttunum.
Lykilorð: Loftlagsbreytingar, vatnsveitur, neysluvatngæði, skriðuhætta, áhættugreining.
Abstract
Climate change is expected to have impact on water supply and drinking water quality in Iceland.
Foremost there are three influential weather-related factors; increase in temperature; rise in sea level;
and seasonal and regional change in precipitation in both quantity and intensity. In this study international
and local reports and articles were analyzed for expected impact on the water resource with emphasis on
the northern and the arctic region. Water quality risk factors were analyzed based on surveillance data of
the water supplies from the Local Competent Authorities. Preliminary risk assessment of landslides and
flooding was performed in one surveillance area in northern Iceland. The results show that climate change
has impact on water supply and drinking water quality and in one surveillance area more than half of
water intakes are in risk of landslides and thereof 5% sever risk, but few had a risk of flooding. The risk is
different between areas in Iceland and the risk is also generally higher at small water supplies. Finally,
some preventive actions based on the analysis are set forth.
Keywords: Climate change, water supply, drinking water quality, landslides, risk assessment.