Verktækni - 2019, Qupperneq 22
22
flipped classroom and the average performance of a final exam, and a strong indication that students
who practice the course material during lecture hours will have improved exam grades.
Keywords: grades, student ratings, flipped classroom, reversed teaching.
Inngangur
Rannsóknin sem kynnt er í þessari grein er framhald rannsóknar höfunda þar sem samhengi milli
verkefnaálags og prófseinkunna í fyrsta árs verkfræðinámskeiði var kannað (Unnthorsson & Oddsson,
2015). Sú rannsókn náði yfir 10 ára sögu kennslu námskeiðs í verkfræði, frá 2004 til 2014, og samanlagt
úrtak var 827 nemendur. Niðurstöðurnar sýndu að það var ekki marktækt samhengi milli breytanna
þriggja: Verkefnaálags, ánægju nemenda og prófseinkunnar. Út frá niðurstöðunum ákváðu höfundar að
rannsaka frekar hvernig breyta megi högun kennslu þannig að árangur nemenda á lokaprófi yrði betri.
Yfir 12 ára reynsla kennara af því að kenna þetta námskeið er að þó nemendur telji sig skilja námsefni
vikunnar í fyrirlestratímum þá gera þeir það ekki í tölvuverstímum daginn eftir. Þetta verður til þess að
aðstoðakennarar verða að nýta mikilvægan tíma sinn í að fara aftur yfir námsefnið sem kennarinn fór
yfir daginn áður. Höfundar hafa ekki einfalt svar við þessu en mögulega er þetta blanda af eftirfarandi:
Nemendur mæta ekki undirbúnir í fyrirlestra, nemendur fylgjast ekki með í fyrirlestrum og spyrja því ekki
spurninga, nemendur eru vanir því að vera óvirkir í tímum og sjá ekki gildi þess að geta spurt kennara
spurninga og einnig að efnið kann hljóma einfalt þegar kennari útskýrir það en þegar nemendur byrja að
beita aðferðunum þá vakna spurningar.
Höfundar ákváðu að breyta kennsluaðferðum til að takast á við þetta vandamál og höfðu að leiðarljósi
að auðvelda nemendum að læra námsefnið, að nemendur myndu hafa gaman af námskeiðinu og að
þeim myndi ganga betur á lokaprófi. Ákveðið var að skipta yfir í vendikennslu (e. Flipped teaching) og
taka upp fyrirlestra með skjáupptökuhugbúnaði. Meginástæðan fyrir þeirri ákvörðun var að gera
nemendum kleift að stjórna því hvenær og hvernig þeir horfa á fyrirlestrana. Að auki þá geta nemendur
spilað aftur hluta fyrirlesturs ef þeir þurfa þess og gert hlé og haldið áfram síðar. Með þessari nýbreytni
var nemendum gert mögulegt að nýta fyrirlestrana þegar þeir unnu að heimaverkefnum og einnig í
tölvuverstímum – þ.a. aðstoðarkennarar gátu bent nemendum á fyrirlestraupptökur og náð þá betur að
sinna nemendum sem höfðu spurningar sem ekki var svarað í fyrirlestraupptökunum. Að auki þá var
með þessu fyrirkomulagi komið á móts við nemendur sem ekki hefðu getað – vegna mismunandi
ástæðna – mætt í hefðbundnu fyrirlestratímana.
Tvær útfærslur af vendikennslu voru prófaðar á tveimur árum. Vendikennslan fyrra árið fór fram þannig
að fyrirlestratímar voru nýttir í að svara spurningum nemenda úr fyrirlestrum vikunnar. Árið eftir var
fyrirkomulaginu breytt þannig að fyrirlestratímarnir voru nýttir til að fara yfir valin hugtök og aðferðir
auk þess að æfa nemendur í að beita námsefninu.
Rannsóknaspurning
Markmið rannsóknarinnar var að ákvarða hvort nemendum gangi betur á lokaprófi ef stuðst er við
vendikennsluaðferðir en þegar stuðst er við hefðbundna fyrirlestra; þ.e., að ákvarða hvort það sé
samhengi milli kennsluaðferðar og einkunna á lokaprófi. Markmiðið var einnig að kanna áhrif verkefna í
lok fyrirlestratíma á einkunnir á lokaprófi. Við prófuðum eftirfarandi tvær tilgátur:
H1: Það er samhengi á milli kennsluaðferðar og meðaleinkunnar á lokaprófi.
H2: Í vendikennslu þá er samhengi milli verkefna í fyrirlestratímum og meðaleinkunnar á lokaprófi.