Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Blaðsíða 11

Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Blaðsíða 11
yeiða þessa einu bleikju hans Einars á þessum stað og átti ekki heimtingu á meira, hún sinnti beitunni ekki frekar, þótt ég byði henni hana enn nokkrum sinnum. Hélt ég svo niður með bakkan- um og kastaði sífellt fast upp að honum. Er ég liafði farið meðfram um þriðj- ungi bakkans, er tekið í færið af miklu afli. Eg tek á móti, stöngin svignar, það suðar í hjólinu, og hann er fastur. Hann stekkur strax, og enn stekkur hann, t ænsti fiskur, 15—20 pund á að gizka. Ég lrjóst við langri viðureign, því hann vár auðsjáanlega lítið leginn, og ég ætlaði svo sannarlega ekki að missa þenna, hann hafði ekki verið svo ör um morguninn. Svo hagar til þarna við ána, að gegnt bakkanum er malareyri, og stóð ég þeim megin. Aðdjúpt er, en snargrynnkar við landið. Aðstæður eru því hinar ákjósan- legustu til að landa laxi. Eftir tæpra 10 mín. viðureign voru enn engin þreytumerki farin að sjást á lax- inum. En þá bar svo við eitt sinn, að liann synti í áttina til mín að eyrinni utan frá hylnum. Nú sá ég mér leik á borði, tók dálítið í stöngina, herti á ferð- inni, og fyrr en hann varði var hann strandaður á eyrinni. Hann spriklaði í flæðarmálinu og mjakaðist um leið upp á land. Fyrstu köstin á eftir voru árangurs- laus, en svo er tekið í færið, enn af miklu afli. Hann stekkur, álíka stór og hinn fyrri. Jóhannes kom til mín og vildi nú fara að fylgjast með veiðunum. Ég bauð honum að þreyta þenna og landa hon- um. Ekki var hann á því. „Ég ætla að setja í minn lax sjálfur. Má ég ekki taka þann næsta?“ Ég var sízt lengur að landa þessum en hinum fyrri og fór eins að. Hann uggði ekki að sér fyrr en um seinan og hann var á þurru landi. Næst kastaði Jóhannes. Hann var ó- vanur að kasta spæni, og þurfti ég því að leiðbeina honum. Eftir nokkra stund er kippt í færið hjá lionum. Hann tekur á móti, og laxinn er fastur. Hann þreytti laxinn með gætni og fór sér að engu óðs- lega, enda var þetta lians fyrsti lax, 9 pund að þyngd. Nú hélt ég áfram. Sá næsti, sem ték, fór af um það bil, er ég hafði lyft upp stönginni. Þar á eftir tók smálax. Hann sýndi sig strax og hann hafði tekið. Ég þóttist ekki þurfa að beita lagni við hann, hafa í fullu tré við hann, þreytti hann skamma stund og dró hann síðan að landi. En þá var þeim litla nóg boðið, enda var þetta hængur. Hann þóttist vera lax með löxum og losaði sig af önglinum, þegar hann var 5—4 metra frá landi. — Hann var þó ekki slyngari en það, að hann synti áfram til lands og beygði ekki fyrr en hann kenndi grunnsins. Jóhannes fylgdist vel með því, hvað var á seyði. Hann þaut út í ána, og þegar laxinn sneri hliðinni að ánni, var liann kominn fyrir liann og gat sparkað lionum í land. Sá, sem næst tók, var álíka stór og tveir Jieir fyrstu. Síðan missti ég einn rétt eftir að liann hafði tekið, og þegar ég var kom- inn á móts við bakkann neðst, þar sem liylnum lýkur, tók einn enn. Hann stökk þrisvar og var auðsjáanlega vænstur. Nú var klukkan orðin eitt og veiði- leyfi mínu lokið. Frá því fyrsti laxinn tók, unz hinum síðasta var landað, liðu 55 mín. Þeir lágu hlið við hlið á eyrinni, Veicimaðurinn 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.